Allstríđur á vestan

Í dag, 8.október er vindur á landinu allstríđur á vestan. Lćgđ er ađ dýpka viđ landiđ og hreyfist hratt til austurs. Viđ erum nánast beint undir mikilli vindröst í háloftunum og teygist hes hennar í átt til jarđar. 

w-blogg081025a

Kortiđ gildir kl.18 núna síđdegis og sýnir stöđuna í 500 hPa, jafnhćđarlínur eru heildregnar, af ţeim ráđum viđ vindstyrk og stefnu. Litir sýna ţykktina en hún mćlir hita í neđri hluta veđrahvolfs. Međ ákveđnum rétti má segja ađ Grćnland hafi búiđ til lćgđina sem er viđ Norđurland. Kalt loft kom yfir jökulinn úr vestri og austan hans kom sveigja á röstina. Viđ sjáum leifar kalda loftsins sem bláan blett nćrri lćgđarmiđjunni. Uppi í 300 hPa (um 9 km hćđ) er hins vegar ámóta hlýr blettur, afleiđing niđurdráttar veđrahvarfanna. Ef viđ rýnum í kortiđ getum viđ séđ ađ yfir landinu er hćđarbratti frá norđri til suđurs um 120 metrar (tvćr jafnhćđarlínur). Hins vegar er sáralítill munur á ţykktinni ţvert yfir landiđ, blái bletturinn nćr ţvert yfir landiđ. Ţess vegna er ekki mjög mikill munur á vindi í 5 km hćđ og í fjallahćđ yfir landinu. Enn neđar kemur núningur viđ sögu og deyfir vindinn, mun meira yfir landi heldur en sjó..

Ţađ er lćrdómsríkt ađ líta einnig á spákort sem gildir undir morgun á föstudaginn.

w-blogg081025b

Hér er háloftavindurinn enn meiri, hćđarmunur á milli norđur- og suđurstrandar landsins er um 200 metrar, vindur í 500 hPa um 50 m/s. Ţykktarbrattinn er einnig mikill, ólíkt ţví sem er í dag, ţađ munar um 180 metrum á ţykktinni nyrst og syđst á landinu. Ţetta ţýđir ađ ekki eru eftir nema um 20 metrar til ađ knýja vindinn niđur undir jörđ, hann er jafnvel innan viđ 10 m/s. Viđ skulum ţó taka vel eftir ţví ađ jafnţykktarlínurnar ţurfa mjög lítiđ ađ hnikast til til ţess ađ rastarhesiđ nái niđur undir mannheima, viđ skulum ţó trúa ţví (í bili ađ minnsta kosti) ađ líkaniđ reikni ţetta rétt. Svo verđur ađ hafa í huga ađ fjöllin á landinu geta vakiđ bylgjur sem geta dregiđ vind niđur, t.d. nćrri fjöllum á Norđaustur- og Austurlandi. 

Í framhaldinu er síđan gert ráđ fyrir ţví ađ vindur snúist til suđlćgra átta međ hlýindum.  


Bloggfćrslur 8. október 2025

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Okt. 2025
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg081025b
  • w-blogg081025a
  • w-blogg061025b
  • w-blogg061025a
  • w-blogg041025a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 185
  • Sl. sólarhring: 206
  • Sl. viku: 1893
  • Frá upphafi: 2503895

Annađ

  • Innlit í dag: 161
  • Innlit sl. viku: 1710
  • Gestir í dag: 150
  • IP-tölur í dag: 147

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband