Tíu septemberdagar

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tíu daga septembermánaðar (2024) er 8,2 stig, -1,4 stigum neðan meðallags sömu daga árin 1991-2020 og -1,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Raðast hitinn í næstneðsta sæti sömu daga það sem af er öldinni (24 ár). Dagarnir 10 voru hlýjastir árið 2010, meðalhiti þá 13,8 stig, en kaldastir voru þeir 2012, meðalhiti 8,1 stig. Á langa listanum er hitinn í 103. hlýjasta sæti (af 150), hlýjast var 2010, en kaldast 1977, þá var meðalhitinn aðeins 5,7 stig.
 
Meðalhiti á Akureyri er 9,9 stig, +0,2 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, og -0,5 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Að tiltölu eru dagarnir tíu hlýjastir á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum. Þar raðast hitinn í tíundahlýjasta sæti aldarinnar (af 24), en kaldast hefur verið á Suðurlandi, við Faxaflóa og Breiðafjörð þar sem hiti raðast í 20. hlýjasta sætið (fimmtakaldasta).
 
Á einstökum stöðvum er að tiltölu hlýjast á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, hiti +0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast, að tiltölu, hefur verið á Skarðsmýrarfjalli og í Bláfjöllum, -2,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 45,7 mm og er það rúmlega 60 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 13,1 mm og er það um 70 prósent meðalúrkomu. Úrkoma á Dalatanga hefur mælst aðeins 9,6 mm og er það aðeins fimmtungur meðallags.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 48,7 í Reykjavík - það er í rétt rúmu meðallagi, en 45 á Akureyri og er það sömuleiðis í rúmu meðallagi.

Bloggfærslur 11. september 2024

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12
  • Slide11
  • Slide10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 40
  • Sl. sólarhring: 344
  • Sl. viku: 2123
  • Frá upphafi: 2393018

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 1912
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband