Fyrri hluti maímánaðar 2024

Meðalhiti í Reykjavík fyrri hluta maímánaðar (2024) er +6,3 stig, +0,4 stigum ofan meðaltals sömu daga 1991 til 2020 og +0,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Raðast hitinn í 11. hlýjasta sæti aldarinnar (af 24). Hlýjastir voru þessir dagar árið 2008, meðalhiti +8,3 stig, en kaldastir voru þeir 2015, meðalhiti +2,8 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 50. sæti af 150. Fyrri hluti maí var hlýjastur 1960, meðalhiti þá 9,4 stig, en kaldastur 1979, meðalhiti þá +0,3 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti dagana 15 +6,7 stig og raðast í 17. hlýjasta sæti síðustu 89 ára. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2000, meðalhiti þá +10,2 stig, en kaldastir voru þeir 1979, meðalhiti -2,3 stig. 
 
Að tiltölu hefur verið hlýjast á Austfjörðum, þar er fyrri hluti mánaðar sá þriðjihlýjasti það sem af er á öldinni, en við Breiðafjörð raðast hann í 11. hlýjasta sæti. Á einstökum veðurstöðvum er jákvætt hitavik mest á Gagnheiði, +3,5 stig og +3,1 stig á Vatnsskarði eystra. Kaldast að tiltölu hefur verið á Garðskagavita, hiti +0,1 stig ofan meðallag síðustu tíu ára.
 
Úrkoma í Reykjavík það sem af er mánuði hefur mælst 37,7 mm og er það um 50 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 11,7 mm og er það við meðallag. Á Dalatanga hefur úrkoman mælst 19,7 mm og er það um 40 prósent meðalúrkomu.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 70,7 í Reykjavík, um 30 færri en í meðalári. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 123,8 og er það 45,7 stundum umfram meðallag.

Bloggfærslur 16. maí 2024

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg030924c
  • w-blogg030924b
  • w-blogg030924a
  • w-blogg020924a
  • w-blogg020924b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 2640
  • Frá upphafi: 2389937

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2250
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband