Fyrstu tíu dagar maímánaðar 2024

Hiti er mjög nærri meðallagi í Reykjavík fyrstu tíu daga maímánaðar. Meðaltalið er 5,5 stig, -0,1 stigi neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og í meðallagi síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 13. sæti (af 24) á öldinni og í 68. sæti (af 150) á langa listanum.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 6,7 stig og er í 13. hlýjasta sæti síðustu 89 ára.
 
Að þessu sinni hefur verið hlýjast að tiltölu á Austfjörðum. Þetta er þriðjahlýjasta maíbyrjun aldarinnar þar, en svalast (að tiltölu) hefur verið á Suðulandi og við Faxaflóa þar sem hitinn er í tíundahlýjasta sæti (af 24).
 
Jákvætt vik miðað við síðustu tíu ár er mest á Gagnheiði, +3,3 stig. Vik eru jákvæð á langflestum veðurstöðvum, en þó er hiti á Þingvöllum -0,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma hefur mælst 33,3 mm í Reykjavík og er það um 80 prósent umfram meðallag. Ekki hefur frést af úrkomu á Akureyri - ekki alveg ljóst hvort það er rétt, en það hefur þó alloft gerst að fyrstu tíu maídagarnir hafa verið alveg þurrir á Akureyri, síðast 1977. Austur á Dalatanga hefur úrkoma mælst 19,9 mm og er það rúm 60 prósent meðalúrkomu.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 56,6 í Reykjavík, 8 færri en í meðalári. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 82,1.
 

Bloggfærslur 11. maí 2024

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg130925-ak-a
  • w-blogg130925a
  • w-blogg130925b
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 11
  • Sl. sólarhring: 223
  • Sl. viku: 1493
  • Frá upphafi: 2498823

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1357
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband