17.2.2024 | 20:17
Órólegt - en ekki illkynja
Nú (laugardag 17.febrúar) hefur hlýnað talsvert á landinu og útlit fyrir hláku á láglendi viðast hvar á landinu í fáeina daga. Mjög djúpar lægðir eru á ferð, en svo virðist sem þær missi afl áður en þær ná til landsins - úrkomu- og vindakerfi þeirra fara þó hjá. Þegar þetta er skrifað er úrkomusvæði einmitt að fara yfir landið - það rignir talsvert sums staðar á Suðurlandi, en vindur er ekki verulegur nema rétt á stöku stað. Lægðin grynnist svo ört að hún verður alveg horfin á morgun - en þá á svipað að gerast.
Kortið gildir kl.18 síðdegis á morgun (sunnudag). Þá er ný lægð á Grænlandshafi og úrkomusvæði hennar að koma upp að landinu. Lægðin grynnist hins vegar mjög ört og verður alveg horfin fyrir hádegi á mánudag. Á kortinu er mjög öflug lægð við Nýfundnaland. Fárviðri er spáð sunnan lægðarinnar og á þrýstingur í miðju hennar að fara niður undir 950 hpa á mánudaginn. - En það er sama með þessa lægð og þá fyrri að úr henni verður mestallur kraftur þegar kerfið nær hingað. Það á að gerast síðdegis á mánudag.
Snemma á þriðjudagsmorgun segir evrópureiknimiðstöðin að staðan verði sú sem sýnd er á kortinu hér að neðan.
Lægðin er risastór, um 952 hPa í miðju, en vindur hér á landi samt lítill og veður meinlítið, sennilega skúrir eða slydduél, snjóél til fjalla. Oft er staða sem þessi mjög varasöm og hér fyrr á árum hefði ritstjóri hungurdiska verið mjög órólegur yfir henni. Örvarnar benda á tvö kerfi. Það yrði hið versta mál féllu þau saman - en spár allra reiknimiðstöðva fullyrða að svo verði ekki. Nú er svo komið að þriggja daga veðurspár reiknimiðstöðva hafa langoftast rétt fyrir sér í málum sem þessu. Ritstjórinn ætti því að vera rólegur.
Sé farið í smáatriði framhaldsins kemur reyndar í ljós að samkomulagið er ekki algjört. Þessi ákveðna reikniruna reiknimiðstöðvarinnar lætur nyrðra kerfið renna til norðausturs og síðan norðurs rétt við vesturströndina - án verulegra vinda þó. Bandaríska veðurstofan lætur kerfin tvö ná lítilsháttar samspili - þannig að nyrðra kerfið dregst aðeins í suður og dýpkar meira - og fer síðan sem allkröpp lægð til norðausturs skammt vestur af Færeyjum. Aðrar spár má finna með einhverri blöndun þessara tveggja lausna.
En alla vegar er rétt að fylgjast vel með - ekki má miklu muna. Frekara framhald er svo heldur óljóst - en samt virðast stórviðri ólíkleg - þetta sé ekki illkynja. Vonandi er það rétt.
Bloggfærslur 17. febrúar 2024
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 251
- Sl. sólarhring: 297
- Sl. viku: 1329
- Frá upphafi: 2475121
Annað
- Innlit í dag: 233
- Innlit sl. viku: 1185
- Gestir í dag: 223
- IP-tölur í dag: 223
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010