Hvernig miđar haustinu? (2024)

Haustiđ 2014 birtist hér á hungurdiskum syrpa pistla ţar sem velt var vöngum yfir haustkomunni. Hvenćr hún vćri, hvort hćgt vćri ađ mćla framgang haustsins á einfaldan hátt og hvort breytingar hefđu orđiđ í gegnum tíđina. Niđurstađan var í megindráttum sú ađ hausti hefđi lítillega seinkađ í hlýindum síđustu áratuga miđađ viđ fyrri tíđ.

Haustiđ 2017 birtist síđan pistill undir sama nafni og notađ er á ţennan. Spurningin ţá var hins vegar borin upp 11. október - en viđ notum nú ţann 21. til viđmiđunar. 

Einn ţeirra möguleika sem ritstjórinn nefndi var ađ nota međalhita í byggđum landsins til ađ skilgreina haustdaga - og telja ţá síđan.

Í tilraunaskyni stakk ritstjórinn upp á 7,5 stigum sem viđmiđi. Dagur telst haustdagur sé međalhiti sólarhringsins í byggđum landsins neđan ţess. Ţađ gefur auga leiđ ađ slíkir dagar koma á stangli allt sumariđ - án ţess ađ komiđ sé haust, en ţegar á líđur ţéttast ţeir smám saman. En svo munar auđvitađ töluverđu hvort međalhitinn er t.d. 7,4 stig eđa 3,0 stig. Fimm dagar međ međalhita 7,4 stig eru varla jafngildir fimm dögum međ međalhita 3,0 stig. Ţeir síđarnefndu eru mun haustlegri.

Hentugast ţótti ţví ađ skilgreina einskonar „haustsummu“. Reiknađ var hversu langt hiti hvers dags vćri neđan 7,5 stiga og síđan lagt saman. Eftir nokkrar vangaveltur (sem lesa má um í fornum hungurdiskapistli) ţótti hentugt ađ segja haust komiđ (eđa skolliđ á) ţegar haustsumman nćđi 30 stigum. Til ađ ná ţeirri tölu ţarf ađeins fjóra daga međ hita viđ frostmark, en 12 daga međ međalhita 5,0 stig.

Ađ međaltali fer haustsumman í 30 stig 18. september - og 100 stig 12. október. Á ţessu hefur reynst nokkur tímabilamunur - og mikil áraskipti.

w-blogg211024a

Hér eru „haustdagar“ hvers árs á landinu taldir frá 1949 ţar til í haust 2024. Fleiri eiga auđvitađ eftir ađ bćtast viđ, en eins og áđur sagđi er hér miđađ viđ stöđuna 21. október. Almannarómur telur haustiđ í ár nokkuđ snemma á ferđ - og stađfestir ţessi mynd ţađ álit. Nú ţegar eru haustdagarnir (skilgreindir á áđurnefndan hátt) orđnir 47. Ţađ er meira heldur en hefur veriđ síđan 2012, en ţá var stađan svipuđ og nú. Margir muna e.t.v. eftirminnilegt septemberhret ţađ ár - og reyndar var líka eftirminnilegt hret áriđ eftir, 2013, og voru haustdagar ţá orđnir nćrri ţví eins margir 21. október og nú. Ađ öđru leyti eru haustdagar í ár heldur margir miđađ viđ síđustu áratugi (og minni allrar yngri kynslóđarinnar).

Viđ skulum taka sérstaklega eftir rauđu línunni á myndinni. Hún sýnir 10-ára keđjumeđaltöl. Ţađ stendur nú í 31 degi (og haustdagar nú ţví 16 dögum fleiri en ađ međaltali síđustu tíu ár). Lítum viđ aftur til fyrri áratuga - ţegar ritstjórinn var ungur mađur ađ byrja sinn veđurfrćđingsferil. Haustiđ 1979 stóđ tíu ára međaltaliđ í 48 dögum - og komst yfir 50 nćstu ár á eftir. Stađan nú er ţví í međallagi ţess tíma - hiđ venjulega ţá. Mun sumum finnast muna um ţessa fćkkun. Viđ vitum auđvitađ ekki hvernig framtíđin verđur hvađ ţetta varđar.

En viđ lítum líka á haustsummuna áđurnefndu - einskonar safntölu um ţađ hversu kaldir ţessir haustdagar hafa veriđ. Fyrst lítum viđ á dreifirit - til ađ sannfćra okkur um ađ viđ getum notađ upplýsingar frá Stykkishólmi allt aftur til 1846 til ađ sjá langtímaţróun.

w-blogg211024b

Lárétti ásinn sýnir haustsummu í Stykkishólmi (fram til 21.október 1949-2024), en sá lóđrétti haustsummu landsins. Ţetta eru nánast sömu upplýsingarnar. Hallatalan er ţó ţannig ađ Hólmurinn vanmetur haustsummu landsins dálítiđ, sérstaklega ţegar hún er há - en langtímabreytingar ćttu ţó ađ sýnast ţćr sömu. 

w-blogg211024c

Súlurnar sýna haustsummu í Stykkishólmi (21.október hvert ár), rauđi ferillinn er 10-árakeđja en sá grćni er 10-ára landskeđja. Á kalda tímabilinu liggur hún heldur hćrra en Stykkishólmslínan. Líklegt er ađ ţađ eigi einnig viđ um fyrri köld tímabil. Haustiđ í ár sýnir sig vel, haustsumman í Hólminum er sú langhćsta síđan 2005 og ţar á undan ţarf ađ leita yfir á 9. áratuginn til ađ finna hćrri tölu. Haustiđ 1981 sker sig úr - enda alveg sérlega kalt. Svo kalt ađ grunur lék á ađ frostavetur myndi fylgja á eftir - sem hann gerđi ekki. 

Lćgst á myndinni liggur (eins og á fyrri mynd) hiđ ofurhlýja haust 2016 og sömuleiđis ámóta óvenjulegt haust 1959, en ţađ muna víst ađeins fáeinir eldri borgarar. Ţađ vekur athygli ađ haustsumma hefur fariđ heldur lćkkandi gegnum tíđina, í samrćmi viđ hćkkandi hita. Viđ skulum ţó taka vel eftir ţví ađ breytileiki er mjög mikill frá ári til árs - og ađ klasamyndun (mörg köld eđa hlý haust í röđum) er ekki veruleg. Á 19.öld kom slatti af haustum sem hefđu sómt sér ágćtlega međal hlýrra hausta ţessarar aldar - ţótt hin köldu séu fleiri. Munur á hita á 19. og 20. öld er einna minnstur í október hér á landi - og haustiđ hefur ekki alveg fylgt takti í áratugasveiflum hinna árstíđanna ţriggja. 

Niđurstađan er ţví sú ađ haustinu miđi vel í ár - kannski of vel - en ţađ segir ekkert um veturinn. Hann er frjáls eins og venjulega. 

 


Bloggfćrslur 22. október 2024

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Okt. 2024
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg241024c
  • w-blogg241024c
  • w-blogg241024b
  • w-blogg241024a
  • w-blogg211024c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.10.): 12
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 1696
  • Frá upphafi: 2405412

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1423
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband