Fyrstu 20 dagar septembermánaðar

Meðalhiti fyrstu 20 daga septembermánaðar er 8,9 stig í Reykjavík, -0,1 stigi neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og -0,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 16. hlýjasta sæti (af 23) á öldinni. Hlýjastir voru dagarnir árin 2006 og 2010, meðalhiti þá 10,9 stig, en kaldastir voru þeir 2013, meðalhiti 7,2 stig. Á langa listanum er hitinn í 50. sæti af 150. Hlýjast var 1939, meðalhiti 12,0 stig, en kaldast var 1979, meðalhiti 5,3 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú 9,1 stig, +0,3 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, en -0,2 neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Ekki er mjög mikill munur á röðun hita eftir spásvæðum. Hlýjast að tiltölu hefur verið á Ströndum og Norðurlandi vestra, þar raðast hitinn í 12. hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast hefur verið við Faxaflóa, á Suðausturlandi og Suðurlandi, þar sem hitinn raðast í 16.hlýjasta sætið.
 
Á einstökum stöðvum hefur verið hlýjast að tiltölu á Hornbjargsvita, +0,7 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast í Þúfuveri, -1,4 stig neðan meðallags sömu ára.
 
Úrkoma hefur mælst 56 mm í Reykjavík, og er það í meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 83 mm, meir en tvöföld meðalúrkoma.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 96,4 í Reykjavík, 14 fleiri en í meðalári og 95 á Akureyri sem er 31 stund fleiri en að meðaltali.

Bloggfærslur 21. september 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg300625a
  • w-blogg280625a
  • w-blogg270625a
  • Slide11
  • Slide13

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.7.): 146
  • Sl. sólarhring: 498
  • Sl. viku: 2770
  • Frá upphafi: 2481141

Annað

  • Innlit í dag: 133
  • Innlit sl. viku: 2425
  • Gestir í dag: 126
  • IP-tölur í dag: 126

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband