Fyrstu 20 dagar júlímánaðar

Nokkuð misskipt. Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 20 daga júlímánaðar er 11,1 stig, -0,3 stigum neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og +0,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 15. hlýjasta sæti aldarinnar (af 23). Hlýjastir voru þessir dagar 2009, meðalhiti þá 13,5 stig, en kaldastir voru þeir 2018, meðalhiti 9,9 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 59. sæti (af 151). Hlýjast var 2009, en kaldast 1885. Þá var meðalhitinn 8,2 stig (og 8,3 stig 1983).

Á Akureyri er meðalhiti dagana 20 nú 9,0 stig, -1,9 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -2,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hita er nokkuð misskipt á landinu. Að tiltölu hefur verið hlýjast á Suðurlandi. Þar eru dagarnir 20 í 7. hlýjasta sæti aldarinnar, og því 9. á Suðausturlandi, 12. við Faxaflóa. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er þetta hins vegar kaldasta júlíbyrjun aldarinnar og sú næstkaldasta eða þriðjakaldasta á Norðausturlandi, Austurlandi og á Austfjörðum.

Miðað við meðalhita síðustu tíu ára hefur verið hlýjast að tiltölu við veginn hjá Reynisfjalli og í Selvogi, jákvætt vik +1,7 stig. Kaldast hefur verið í Vatnsskarði eystra, hiti þar -3,3 stig neðan meðallags, og -3,1 stig í Möðrudal.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 16,4 mm, um helmingur meðalúrkomu. Sums staðar á sunnan- og vestanverðu landinu hefur úrkoma verið mjög lítil, en tölur bíða staðfestingar. Á Akureyri hefur úrkoma nælst 16,1 mm og er það um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu.

Sólskinsstundir hafa verið sérlega margar í Reykjavík, höfðu eftir daginn í gær mælst 241,9. Mánuðurinn myndi teljast sólríkur þótt algjörlega sólarlaust yrði til mánaðarmóta. Þetta er 121,9 stund umfram meðallag. Júlísólarmetið var sett 1939, og enn vantar 66,6 stundir upp á að það verði slegið. Við fylgjumst með. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 112,8 og er það í ríflegu meðallagi.


Bloggfærslur 21. júlí 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 112
  • Sl. sólarhring: 234
  • Sl. viku: 1198
  • Frá upphafi: 2352157

Annað

  • Innlit í dag: 101
  • Innlit sl. viku: 1087
  • Gestir í dag: 100
  • IP-tölur í dag: 100

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband