Fyrri hluti júlí

Međalhiti fyrri hluta júlí í Reykjavík er 11,2 stig, nákvćmlega í međallagi sömu daga áranna 1991 til 2020 og +0,3 stigum ofan međallags síđustu tíu ára. Hitinn rađast í 12. hlýjasta sćti aldarinnar (af 23). Hlýjastir voru ţessir sömu dagar 2007, međalhiti ţá 13,3 stig, en kaldastir voru ţeir 2013, međalhiti 9,6 stig. Á langa listanum rađast hitinn í 51. sćti (af 151). Fyrri hluti júlí var hlýjastur 1991, međalhiti ţá 13,5 stig, en kaldastur 1874, međalhiti 7,7 stig.

Á Akureyri er međalhiti fyrri hluta júlí 9,0 stig, -1,8 stigum neđan međallags 1991 til 2020 og -2,0 stigum neđan međallags síđustu tíu ára. Síđustu 88 árin vitum viđ um 8 kaldari fyrri hluta júlí á Akureyri, síđast 2015.

Hita er nokkuđ misskipt um landiđ. Langhlýjast hefur veriđ á Suđurlandi. Ţar er hiti í 6. hlýjasta sćti aldarinnar. Aftur á móti er ţetta kaldasta júlíbyrjun hennar á Ströndum og Norđurlandi vestra, og sú nćstkaldasta á Norđausturlandi og Austurlandi ađ Glettingi. Ţriđjaköldust er hún á Miđhálendinu.

Miđađ viđ síđustu tíu ár hefur veriđ hlýjast í Selvogi, ţar er hitinn +1,7 stig ofan međallags. Kaldast - ađ tiltölu - hefur veriđ í Möđrudal ţar sem hiti hefur veriđ -2,8 stig neđan međallags.

Úrkoma í Reykjavík hefur mćlst 16,4 mm, um tveir ţriđju hlutar međalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mćlst 14 mm og er ţađ í tćpu međallagi.

Sólskinsstundir hafa mćlst 188.1 í Reykjavík og hafa aldrei mćlst fleiri fyrri hluta júlímánađar - og dćgursólskinsmet tveggja daga slegin. Á Akureyri hafa mćlst 74,4 sólskinsstundir og er ţađ í međallagi.

Nokkrir lesendur hungurdiska hafa nefnt ţađ viđ ritstjórann ađ međalhiti síđustu tíu ára sé lćgri heldur en međaltaliđ 1991 til 2020. Ţetta átti líka viđ um fyrstu tíu daga mánađarins. Tölurnar sem eru nefndar hér á eftir eiga viđ Reykjavík eingöngu. Sé máliđ rannsakađ nánar kemur í ljós ađ međalhiti einstakra daga ársins síđustu tíu ár hefur í 150 tilvikum (af 366) veriđ lćgri heldur en međalhitinn 1991 til 2020, 21 dag er hann jafn, en 195 daga er hann hćrri. Tilhneigingin er til aukins hita. Fimmtán dagar ársins hafa síđustu 10 ár veriđ meir en 1 stigi kaldari heldur en međaltaliđ 1991 til 2020, en 51 dagur hefur veriđ meir en 1 stigi hlýrri. Tilhneiging einnig til aukins hita. Ef viđ skiptum um viđmiđunartímabil og notum 1921 til 2000 í stađ 1991 til 2020 eru ađeins fjórir dagar ársins meir en 1 stigi kaldari á síđara tímabilinu (síđustu tíu ár) heldur en ţví fyrra en aftur á móti 124 dagar meir en einu stigi hlýrri. 

Nú verđum viđ ađ hafa í huga ađ breytileiki frá degi til dags er auđvitađ meiri í 10-ára međaltali heldur en 30- eđa 80 ára međaltölum. Ţađ sést vel á myndinni hér ađ neđan.

w-blogg170723

Grćni ferillinn sýnir árstíđasveiflu hitans (frá degi til dags) í Reykjavík 1921 til 2000. Tiltölulega „mjúkur“ ferill, međalbreytileiki frá degi til dags er um 0,2 stig. Blái ferillinn er 30-ára međaltaliđ 1991 til 2020. Eins og sjá má er hann nćrri ţví alltaf ofan viđ ţann grćna - ţađ eru ţó 49 dagar ţegar munurinn er fyrra og lengra tímabilinu í hag. Međalhitinn er jafn 15 daga, en hćrri 302 daga. Međalmunur frá degi til dags á 30-ára tímabilinu er 0,3 stig. Síđustu tíu árin (rauđur ferill) er breytileikinn međaltalsins meiri, um 0,5 stig, enda árin fá. Hoppar hann mjög til, bćđi langt upp fyrir hin međaltölin tvö, en einnig niđur fyrir (en oftast mun minna). 

Ţó hnattrćn hlýnun hafi sinn gang er hún til allrar hamingju ekki svo langt gengin ađ kaldir dagar, mánuđir eđa jafnvel ár séu alveg úr sögunni. Ţađ verđur seint svo (vonandi). Ţađ er samt ţannig ađ fregnir af hnattrćnni hlýnun virđast vera mikiđ í tísku ţessar vikurnar - einkennilega mikiđ. Allt sem međ nokkru móti getur talist öfgakennt er ţefađ uppi međ smásjá og lagt fram sem sönnunargögn um syndsamlega hegđun mannskyns. Nóg um ţađ. 

Viđbót 17.júlí:

Til og međ 16. júlí hafa sólskinsstundir í Reykjavík mćlst 197,3, munurinn á 1. sćti (nú) og 2. (1968) er nú 18,6 stundir (og 42,7 stundir eru niđur í 3. sćtiđ frá toppnum). Ţann 6. mćldust sólskinsstundirnar 19,0 í Reykjavík, ţađ mesta sem mćlst hefur á einum degi í júlímánuđi. Ţann 12. mćldust sólskinsstundirnar 17,8, 0,9 fleiri en mest hafđi áđur mćlst ţann almanaksdag (1941).

Viđ verđum ađ hafa í huga varđandi dćgurmetin ađ mćlirinn sem nú er notađur getur í heiđskíru veđri mćlt lengur á kvöldin heldur en fyrri mćligerđ gat. Dregur ţađ úr vćgi metanna. Aftur á móti er munurinn svo mikill á heildarsummu mánađarins til ţessa og nćsthćstu tölu ađ mćligerđin skiptir ţar varla máli.

Flestar urđu sólskinsstundirnar í júlí öllum áriđ 1939, 308,4. Okkur vantar ţví 111,2 stundir afgang mánađarins til ađ slá ţá tölu út. Áriđ 1970 mćldist 177.1 stund dagana 17. til 31. júlí. Standi júlímánuđur nú sig svo vel fćrum viđ upp í 374,4 stundir. Mesta sólskin í einum mánuđi í Reykjavík mćldist í júní 1928, 338,3 stundir. Fćstar sólskinsstundir frá 17. til 31. júlí mćldust 1955 (rigningasumariđ mikla), 15,9.

Eins og áđur sagđi er ţađ fyrri hluti júlí 1968 sem hefur átt sólskinsmetiđ fram ađ ţessu (178,6 stundir). Ţá var hins vegar „slökkt á sólinni“ og ekki mćldist nema 23,1 stund afgang mánađarins og hann rétt marđi 200 stundir. Af ţessu má sjá ađ fyrri hlutinn segir ekkert um ţann síđari. Hvernig nú fer vitum viđ auđvitađ ekki.


Bloggfćrslur 16. júlí 2023

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 191
  • Sl. sólarhring: 284
  • Sl. viku: 1277
  • Frá upphafi: 2352236

Annađ

  • Innlit í dag: 173
  • Innlit sl. viku: 1159
  • Gestir í dag: 168
  • IP-tölur í dag: 168

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband