Fyrstu tíu dagar júlímánaðar

Veðurlag fyrstu tíu daga júlímánaðar hefur verið nokkuð misjafnt eftir landshlutum. Meðalhiti í Reykjavík er 11,5 stig, +0,4 stigum ofan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og +0,7 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 12. hlýjasta sæti aldarinnar (af 23), en á langa listanum í 42. sæti (af 151). Dagarnir tíu voru hlýjastir árið 1991, meðalhiti þá 14,0 stig, en kaldastir voru þeir 1874, meðalhiti 7,6 stig (nokkur óvissa í þeirri tölu reyndar).

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 10,0 stig, -0,8 stig neðan meðallags 1991 til 2020 og síðustu tíu ára.

Hita hefur verið nokkuð misskipt milli landshluta. Að tiltölu hefur verið hlýjast á Suðurlandi, þar eru dagarnir tíu í 5. hlýjasta sæti aldarinnar. Mun svalara hefur verið fyrir norðan, sérstaklega á Ströndum og Norðurlandi vestra þar sem þetta er næstkaldasta júlíbyrjun aldarinnar. Sömuleiðis hefur verið kalt við Breiðafjörð og á Norðausturlandi (18. hlýjasta sæti á báðum spásvæðum).

Jákvætt hitavik er mest í Bláfjöllum, +2,4 stig ofan meðallags síðustu tíu ára, en það neikvæða er mest á Hornbjargsvita þar sem hiti hefur verið -2,0 stig neðan meðallags, aðeins 5,8 stig.

Úrkoma hefur mælst 14,6 mm í Reykjavík og er það í meðallagi, en 8,0 mm á Akureyri og er það í tæpu meðallagi.


Bloggfærslur 11. júlí 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg300625a
  • w-blogg280625a
  • w-blogg270625a
  • Slide11
  • Slide13

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 724
  • Sl. sólarhring: 729
  • Sl. viku: 2745
  • Frá upphafi: 2480964

Annað

  • Innlit í dag: 640
  • Innlit sl. viku: 2416
  • Gestir í dag: 599
  • IP-tölur í dag: 581

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband