Af sjávarhita um þessar mundir

Við lítum til gamans á sjávarhita og sjávarhitavik á Norður-Atlantshafi um þessar mundir. Fyrsta myndin sýnir sjávarhitagreiningu evrópureiknimiðstöðvarinnar í dag, 14. september 2022.

w-blogg140922a

Norðvestur af Vestfjörðum eru skörp skil í sjónum (eins og alltaf), þar er meir en 9 stiga hiti út af Ísafjarðardjúpi - en ekki nema þrjú stig úti á Halanum og þar fyrir utan. Sex til sjö stiga heitur sjór er úti af Hornbjargi, en þar rétt austan við, (við getum sagt við Skagagrunn) er blettur af mun kaldari sjó, eins og leki út úr Austurgrænlandsstraumnum þar norðan við. Fremur hlýtt er aftur á móti við norðausturströndina. Við sjáum hinn kalda Austuríslandsstraum úti af Austurlandi, ekki er hann þó sérlega kaldur. Skörp skil eru svo líka úti af Hornafirði, stutt þar í 11 til 12 stiga heitan sjó. Sé þetta borið saman við undanfarin ár kemur í ljós að hér munar helst um kalda sjóinn á Strandagrunni og þar um kring. Þar er talsvert kaldara en á þessum árstíma undanfarin ár. Greiningin segir að sjávarhiti sé ekki nema 3 stig á bletti. Þessi kuldi kemur reyndar einnig fram í lofti í háupplausnarveðurlíkani Veðurstofunnar. 

w-blogg140922b

Næsta mynd sýnir sjávarhitavikaspá reiknimiðstöðvarinnar fyrir þessa viku (miðað við um 20 ára tímabil). Þar segir að kaldi bletturinn við Strandagrunnið sé nærri -3 stigum neðan meðallags (þar sem mest er) - enda er blái liturinn dökkur þar. Á bláa svæðinu fyrir austan land er hiti hins vegar aðeins lítillega undir meðallagi (-0,2 til -1,0 stig) - og annars staðar í námunda við landið er sjávarhiti nærri meðallagi síðustu áratuga, en þó vel ofan þess. 

Langeftirtektarverðast á þessu korti eru jákvæðu hitavikin miklu austur af Nýfundnalandi (og þar um kring). Hiti er meir en 4 stigum ofan meðallags þar sem mest er. Svona stór vik eru ekki óalgeng á jaðarsvæði Golfstraumsins, en eru óvenjulega útbreidd nú, bæði til vesturs, norðurs og austurs. Áður en farið er að hrópa upp verður þó að benda á að við vitum ekki hvers eðlis þessi hitavik eru (með því að skoða kortið eitt og sér). Þau ná ef til vill ekki nema einhverja tugi metra niður í hafið. Sólarylur sumarsins gæti valdið slíkum grunnstæðum vikum nærri því einn og óstuddur. 

En á næstu vikum mun eðli vikanna koma betur í ljós. Um leið og vindar fara að vaxa að ráði blandast yfirborðssjórinn því sem neðar liggur og kemur þá „sannleikurinn“ í ljós. Af vikaspákorti reiknimiðstöðvarinnar fyrir október til desember virðist líkanið ekki trúa því að vikin standi undir nafni norðan við Golfstrauminn.

w-blogg140922c

Hér hafa jákvæðu vikin norðaustan Nýfundnalands horfið, í stað þeirra er allmikið neikvætt vik. En á heildina er litið er Norður-Atlantshaf samt hlýtt, hiti yfirleitt 0,5 til 1 stig ofan meðallag. Mjög hlýtt verður norðaustur í hafi og sömuleiðis á jaðarsvæði Golfstraumsins suður af Nýfundnalandi. 

Ritstjóri hungurdiska er heldur tregur til að fara á eitthvað allsherjartúlkunarfyllerí horfandi á þetta spákort. En það er kannski í lagi að fá sér lítinn sopa. Vikin stóru við Nova-Scotia og þar um kring eru norðan við Golfstrauminn - hann virðist e.t.v. hafa breitt úr sér - straumhraði minni en venjulega(?). Kannski er hann á móti heldur snarpari en venjulega austan Nýfundnalands - það er kannski ekki aðeins bein vindblöndun sem er á ferð heldur einnig uppdráttur á kaldari sjó? eða er kælingin af völdum kaldra vetrarvinda frá Labrador? Ekki veit sá sem þetta ritar. Hlýindin miklu fyrir sunnan land eru ávísun á að sunnanáttir haustsins verði úrkomusamar (en segja hins vegar ekkert um tíðni þeirra - sem líka ræður úrkomunni). 

Mikil jákvæð hitavik suðvestur og suður af Grænlandi(sem ekki ná hingað) geta verið heldur óheppileg fyrir veðurlag hér á landi - bæta í afl háloftavinda og snúa (meðal-) vindáttum í hávestur - tíðni norðankuldakasta vex þá (eða þannig). (En nú er nóg drukkið).

Blái bletturinn litli á Strandagrunni er of smár fyrir þessa spá - en kannski hverfur hann líka? 


Bloggfærslur 14. september 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 161
  • Sl. viku: 1099
  • Frá upphafi: 2352058

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 997
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband