Hann hrekkur stundum viđ

Stöku sinnum tekst skemmtideild evrópureiknimiđstöđvarinnar ađ láta ritstjóra hungurdiska hrökkva dálítiđ viđ. Slíkt gerđist núna áđan (laugardagskvöld 13. ágúst) ţegar rennt var yfir tíu daga hádegisspárunu reiknimiđstöđvarinnar. Í henni birtist ţetta spákort:

w-blogg130822a

Ţađ gildir eftir viku, laugardagskvöldiđ 20. ágúst og sýnir 962 hPa djúpa lćgđ viđ Jan Mayen. Svona djúpar lćgđir eru sárasjaldséđar í ágúst og ritstjórinn telur nćr víst ađ engin dćmi séu um ţćr viđ Jan Mayen. Líkur eru heldur meiri viđ Ísland, ágústíslandsmetiđ er 960,7 hPa sett í Hólum í Hornafirđi 27. ágúst 1927. Gamall fellibylur kom ţar viđ sögu. 

Auđvitađ er líklegast ađ ţessi spá rćtist ekki, enda er uppruni lćgđarinnar harla óvenjulegur. Ţótt hún sér skilgetinn afkomandi djúprar lćgđar sem á ađ koma ađ landinu á miđvikudaginn er kraftur hennar kominn úr „bylgju“ sem kemur eiginlega sunnan frá gömlu Júgóslavíu. Nota orđiđ eiginlega vegna ţess ađ erfitt er ađ fylgja kerfinu eftir eđa greina uppruna ţess á ţessu stigi (ţađ er ekki enn orđiđ til). Síđan á ţessi bylgja ađ fara norđur um Noreg vestanverđan og dýpka rćkilega á leiđ sinni til norđvesturs, vestnorđvesturs og vesturs fyrir norđaustan land. Allt međ talsverđum ólíkindum.

Bandaríska veđurstofan er međ ađra útgáfu - líklegri fyrir okkur. Í ţeirri útgáfu dýpkar lćgđin ekki heldur strandar ađ mestu viđ Noreg og veldur ţar miklu (og hćttulegu) úrhelli austanfjalls og í Ţrćndalögum um og rétt fyrir nćstu helgi. Heldur ótrúleg spá líka. 

Eins og áđur sagđi er líklegast ađ lofthjúpurinn taki á ţessu međ einhverjum allt öđrum hćtti heldur en reiknimiđstöđvar gera á ţessari stundu - en ţađ kemur ţá fljótlega í ljós - og ekki síđar en í vikulok. 

Viđbót rúmum sólarhring síđar:

Ţađ fór sem líklegt var ađ nćsta spáruna dró tennurnar úr spánni - en sú ţarnćsta (og nýjasta nú - hádegisruna sunnudags) er enn međ lćgđina - frestađ um 2 sólarhringa og 17 hPa grynnri:

w-blogg130822b

Ćtti ađ gefa ţessu gaum áfram?


Bloggfćrslur 13. ágúst 2022

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 24
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 665
  • Frá upphafi: 2351226

Annađ

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 597
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband