16.1.2022 | 18:43
Af árinu 1780
Það er rétt svo að ritstjóri hungurdiska hafi sig í að fara að lýsa veðri og veðurfari á 18. öld frá ári til árs. Að vísu hefur hann nú þegar birt lýsingar fáeinna ára, en löng er leiðin öll. Málið er líka það að finna má allgóðar lýsingar í annálum þeim sem Bókmenntafélagið gaf út (Annálar 1400 til 1800) og varla ástæða til að tyggja það allt upp. Þorvaldur Thoroddsen fór líka í gegnum þessa annála flesta (en ekki þó alla) auk þess að líta á ýmsar aðrar ritaðar heimildir. Samantekt hans á tíðarfari frá ári til árs má finna í riti hans Árferði á Íslandi í þúsund ár. Þetta rit er aðgengilegt á netinu. Varla er því sérstök ástæða til að endurtaka hinar ágætu samantektir hans.
Á móti kemur að heimildir eru fleiri, Þorvaldur nýtir sér t.d. ekkert þær mælingar sem gerðar voru (þó hann hafi vitað af þeim flestum). Þessar mælingar, þótt ófullkomnar séu, gefa að sumu leyti fyllri mynd en hinar almennu lýsingar. Sama má segja um dagbækur frá þessum tíma - þær eru ekki margar - og flestar illlæsilegar - samt eru í þeim upplýsingar sem lítt hafa komið fram. Ritstjóri hungurdiska efast um að samantekt hans sjálfs úr annálunum yrði nokkuð betri heldur en samantakt Þorvaldar, en það má e.t.v. reyna að vitna beint í annálana (en ekki endursegja þá eins og Þorvaldur gerði) - og hið rafræna form hungurdiska hefur alltént þann kost að hægt er að láta allt flakka án prentkostnaðar.
Það sem hér fer á eftir er eins konar tilraun - ekki endilega víst að henni verði fylgt frekar eftir. Kannski er þó rétt að ná inn árunum 1780 til 1785, örlagatíma Móðuharðindanna.
Árið 1780 voru nokkrir hitamælar og loftvogir í landinu. Samfelldar mælingar eru aðgengilegar úr Skálholti og úr Lambhúsum við Bessastaði þetta ár - og athyglisvert að bera þær saman. Í Lambhúsum athugaði Rasmus Lievog konunglegur stjörnuathugunarmeistari - en í Skálholti Helgi Sigurðsson konrektor. Sömuleiðis er til önnur veðurbók úr Skálholti, sem Hannes Finnsson biskup hélt, en ekki hefur ritstjórinn borið þær saman við athuganir Helga. Mælar Helga voru báðir innivið, hitamælirinn í óupphitaðri skemmu. Sést tregða skemmunnar allvel í mælingunum. Þetta hefur þrátt fyrir allt þann kost að sól skein aldrei á mælana. Hitamælir Rasmusar var hins vegar utandyra - sól gat skinið á hann að morgni dags - og e.t.v. gat óbein geislun frá jörð eða húsum haft einhver áhrif á hann á öðrum tímum. Sömuleiðis var mælirinn óvarinn fyrir úrkomu. Hefur það haft áhrif á mælingarnar stöku sinnum.
Myndin hér að neðan sýnir mælingar þeirra beggja á árinu 1780. Helgi mældi aðeins einu sinni á dag (rauðir þríhyrningar á myndinni) - en Rasmus þrisvar - og veldur það óróleika Lambhúsferilsins (grá lína) - við sjáum allar mælingarnar.
Ánægjulegt er hversu vel mælingunum ber saman - undravert nánast. Fyrst tökum við eftir því að skemman er lengur að hlýna að vorinu heldur en mælir Rasmusar - sennilega hafa veggir hennar og þak borið í sér kulda vetrarins.
Annars hefur þetta ekki verið sérlega kaldur vetur. Ákveðið kuldakast í kringum miðjan janúar - og síðan leiðindakuldi í kringum sumarmálin. Vorið fær þó mjög slæma dóma - og sumarið líka, einkum framan af. Mjög eindregið kuldakast er upp úr miðjum september og svalt með vetri - fram yfir miðjan nóvember.
Giskað er á að ársmeðalhiti í Lambhúsum hafi verið 3,9 stig. Sumarið var kalt. Meðalhiti í júní ekki nema 7,0 stig, 9,0 í júlí og 9,4 í ágúst. Desember var hins vegar mjög hlýr, meðalhiti 3,2 stig og einnig virðist hafa verið hlýtt í febrúar, meðelhiti þá 1,8 stig. Mars kaldasti mánuður ársins, meðalhiti -1,4 stig. Einnig var kalt í apríl, meðalhiti 0,6 stig.
Þrýstimælingum ber líka allvel saman (rétt þó að geta þess að fáeinar villur eru greinilega í skráningu úr handritum og hafa þær ekki verið leiðréttar hér). Við sjáum að fyrstu tvo mánuði ársins var ekki mikið um djúpar lægðir - eða mikinn háþrýsting. Mikið lægðasvæði er viðloðandi stóran hluta marsmánaðar (talað um fannir á góu) og aftur eftir miðjan október, en þá gerði mikið illviðri - sem stóð þó ekki mjög lengi. Þá tekur aftur við hærri þrýstingur. Mikið illviðri gerði 16.desember. Sumarþrýstingurinn er með allra lægsta móti - enda var víða votviðrasamt.
Við skulum nú líta á það sem annálarnir segja. Hér er reynt að skipta þeim upp eftir ártíðum (sem ekki tekst alltaf). Ekki er tiltekið í hvaða bindi annálasafnsins hver annáll er - en aftur á móti er blaðsíðutal tilgreint.
Vetur - annálarnir eru til þess að gera fáorðir um hann:
Vatnsfjarðarannáll yngsti [vetur]: Vetrarveðurátta mikið góð frá nýjári og fram á einmánuð á Austur-, Suður- og Vesturlandi, en norðanlands ekki lengur en fram um miðþorra, ...
Úr Djáknaannálum [vetur]: Vetur yfrið góður á Íslandi frá nýári fram á góu. Gjörði mikla hláku og þíðviðri eftir miðþorra í 10 daga samfleytt svo snjólaust varð uppí háfjöll og sýndist grænka í hlaðvörpum. Kom skorpa með góu með hörkum, snjó og hríðum svo jarðbönn urðu í sumum sveitum, varaði þetta í 6 vikur frá 22. febr. til 6tta apr. Kom þá hagstæð hláka og góður bati.
Höskuldsstaðaannáll [vetur]: Veturinn fyrir jól 1780 oftast með sterkum frostum, stundum hríðum og ógæftum til sjós, linari að veðuráttu um og eftir jól, oft þítt. Þorri stilltur og frostalítill. Á hans síðara parti 10 daga samfleytt (nótt og dag) þíðviðri. Þá kom með gói skorpa með sterkum frostum og hríðum, sem varaði í fullar 6 vikur, frá 22. Februarii til 6. Aprilis, svo jarðbann varð í miðju héraðinu og til dala, og varð útigangspeningi hey gefa. Þar eftir kom hagstæð hláka og góður bati og komust vermenn ei fyrr vestur aftur.
Íslands árbók [vetur]: Gjörðist vetur í meðallagi vel lengi og ekki stóráhlaupum fram til gói, en upp þaðan tók til að þyngja með áfreðum og jarðbönnum.
Espihólsannáll [vetur]: Vetur allgóður sunnan og norðan lands frá nýári og fram í þorralok. Eins var austur um land.Ketilsstaðaannáll [vetur]: Vetur allgóður fram í þorralok, en úr því harðnaði veðrátt með hríðum, kuldum og umhleypingum.
Vor - hið versta hret upp úr miðjum apríl. Virðist hafa haft afleiðingar langt fram á sumar.
Vatnsfjarðarannáll yngsti [vor] síðan hret og köföld með frostum og kuldum miklum fram um (s396) fardaga. Þann 20. Apr., eður sumardag fyrsta, og næsta dag eftir, sem var bænadagurinn, gjörði soddan norðanstorm og stórkafald, að víða hraktist fé manna, fennti og fékk stóran skaða. Vorið var því mjög hart að segja yfir allt, þó helst norðanlands, þar snjór var ekki víða af túnum tekinn um Jónsmessu. Peningahöld hin lökustu og frábær harðindi meðal fólks, helst norðan- og austanlands.
Úr Djáknaannálum [vor] Vor eitt hið harðasta í manna minnum frá sumarmálum til þess fram yfir Urbanum [25. maí] með sífelldum norðan- og austanstormum og sterkum frostum nætur og daga. Þá var í 12 daga bærilegt veður. Aftur kalt og þurrt fram til Jónsmessu, svo þá var snjór sumstaðar á túnum og í 11tu sumarviku var ei allstaðar búið að vinna á þeim í Húnavatnssýslu.
Höskuldsstaðaannáll [vor] Aftur norðanfjúk í síðustu vetrarviku. (s573) ... Í þeirri stóru sumarmálahríð [sem ekki er frekar skýrt frá í annálnum] varð skaði á skipum. Fiskibátur nýr í Höfðakaupstað fór í sjóinn. Sexæringur brotnaði þar, ei bætandi, og fleiri skip brotnuðu á Skagaströnd, þó bætandi. Kaupmanns nýja hús reif nokkuð til skaða á efsta þaki, og víðar varð nokkur skaði á hrossum og húsum. Þessi tvö skip sem fórust áttu danskir. Vesöld af bjargarleysi var að spyrja hvarvetna. Í sumum sveitum landsins fólk kennt við hrossakjötsát. Stór peningafellir sagður vera í austursveitum, ei síst á Skógarströnd, Helgafells- og Eyrarsveit, líka syðra og kringum Jökul, og þetta ei einasta á sauðfé, heldur og kúm. Í greindri sumarmálahríð hafði og orðið töpun sumstaðar á fé hrossum og skipum. Um vorið frá téðri sumarmálahríð gengu miklir sífelldir norðan- og austanstormar með sterkum frostum nætur og daga allt fram yfir Urbanum [25. maí] svo það var hið mesta kulda-, neyðar-, sultar- og hungurvor hjá allmörgum. Þá í 12 daga viðunarlegt veður. Aftur kalt og þurrt með náttfrostum. (s574) ...
Íslands árbók [vor] En með sumarmálum gjörði allt um eitt, á sumardaginn fyrsta [20. apríl] gjörði hrakviður með bleytu, á föstudaginn sem var [Kóngs-] bænadagurinn, hið mesta stórviðri af austri með krepju, en á laugardaginn hina mestu snjóhríð úr hafi. Ruddi þá niður ógnasnjófönn. Í þessum hríðum misstu menn fé sitt í Vesturlandi sums staðar, sem keyrði út á sjó. ... Var þessi vetur hinn harðasti að spyrja yfir allt land og eins vorið kalt og gróðurlaust allt til Jónsmessu, so engir treystust að norðan eða austan að ríða til þings. ...
Espihólsannáll [vor] Úr því harðnaði veðurátt og var hin bágasta yfir mikinn part landsins fram á messudaga eður til þess síðla í Junio með hríðum, kuldum og umhleypingum. Fyrir austan fennti víða fé um sumarmál, en í Ísafjarðarsýslu (s165) fyrir vestan og líka í Barðastrandarsýslu etc. Hrakti fé í sjó í þeirri sokölluðu sumarmálahríð. Víða lá snjór á völlum fram um Jónsmessu, hvers vegna peningur varð gagnslaus norðan lands víða, og víða var ekki lokið vallarvinnu (að berja á og ausa tún) fyrr en í 12 viku sumars. Mestu bjargræðisharðindi voru nú víða um landið, so fólk neyddist til að lóga nautpeningi sér til bjargar, og af harðindum var þó allra bágast undir Jökli, hvar fólk leið stóran skort, og fáeinir dóu af hor og hungri.
Ketilsstaðaannáll [vor] Þá gjörðust þau minnisstæðu austrænu sumarmála krapa- og snjóveður, er á lágu í full 6 dægur og sagt er að um land allt komið hafi. Hrakti þá fé víða í sjó í Ísafjarðar-, Barðastrandar-, og Strandasýslum fyrir vestan, en fennti í Múlasýslu, hvar jarðlaust var fyrir sauðfé og hesta fram í fardaga, en snjór lá á völl- (s446) um víða, svo norðan lands sem austan, fram um Jónsmessu, og sumstaðar var ei vallarvinnu lokið fyrr en í 11. og 12. viku sumars. Og til enn meira marks, hvað þetta vor hart verið hafi, er það að þann 27. Maii, þá sýslumaður Pétur Þorsteinsson hélt manntalsþing að Ási í Fellum, var hestís á öllu Lagarfljóti allt upp í fljótsbotn, og þann 10. Junii var það ennþá með hestís, þó varlegum, á Egilsstaðaflóa. Mikill sultur og seyra var þá víðast á landinu, svo fólk neyddist til að lóga naut- og sauðpening sér til bjargar, en þó var tilstandið bágast undir Jökli, hvar nokkrar manneskjur fórust af hungri.
Sumar: Nokkuð misjafnt - greinilega talsverð hrakviðri, en skárra á milli.
Vatnsfjarðarannáll yngsti [sumar og haust] Sumarið vætusamt, haustið mjög óstöðugt, með hretum og köföldum mitt í Septembri, sem oftast öðru hverju viðhélst allt til komanda nýja árs. (s397)
Úr Djáknaannálum [sumar] Fyrst sauðjörð í Fljótum um Jónsmessu; eftir hana brá veðráttu til sunnanáttar með votviðrum. Þá áleið sumar voru ákafleg úrfelli syðra og vestra. Haustið óstöðugt, komu fjúk snemma, viðraði stirt frá veturnóttum til jólaföstu, þá miklar hlákur svo allar ár voru þíðar. Af vorharðindum féll sauðfé hrönnum á Vesturlandi af megurð og nokkrar kýr, því allstaðar var mjög heylítið, einkum á Skógarströnd, Helgafells- og Eyrarsveitum. Hrossadauði nokkur syðra. Í sumarmálahríðinni hróflaðast líka af fé og hestum.
Höskuldsstaðaannáll [sumar og haust] Haustið fyrir forgekk, að sagt var, nokkurt flutningaskip syðra. Um veturinn skiptapi 6 manna við Suðurnes. Tvö skip fórust í Ísafjarðarsýslu með 5 mönnum hvort um sig. Item skiptapi í Bervik 5 eða 6 manna. ... Kom sauðjörð upp fyrst í Fljótum um Jónsmessu (25. Junii). ... Grasvöxtur yfir allt kom seint, víða lítill, sumstaðar í meðallagi, á túnum betri en útengjum, þó víða í betra lagi. En heyin skemmdust sumstaðar, þar iðuglegur óþerrir var af suðvestanátt og stundum regn. Að austan var að spyrja (ei síður en að sunnan) ásamt fiskaflaleysi, að töður hefðu fúnað á túnum og ei hirt verið í 18. viku sumars. Viðlíkt að fregna úr (s575) Þingeyjarsýslu og Eyjafirði, en betra í Svarfaðardal og Ólafsfirði etc. (s576) ... Frá veturnóttum til aðventu stirð og óstöðug veðurátta og sjóbönn. ... Um Michaelsmessu sendi klausturhaldari á Reynistað ... tvo syni sína, Bjarna og Einar ... austur í Hreppa .. Með því þessara heimkomu móti von seinkaði enn nú, sendi hann í þriðja sinn tvo menn, sem fóru austur fjöllin, því þá gengu góðviðri og snjóleysur. Þessum var sagt, þá til byggða komu, að hinir hefðu upp á fjöllin lagt að austan laugardaginn þriðja í vetri (sem var 4. Novembris) með vel hálft annað hundrað fjár og (s578) hér um 20 hesta 5 menn að tölu. Hafa þeir farist í þeim krapahríðum og fjúkstormum, er þá uppkomu. (s579)
Íslands árbók [sumar] Var gróðurlítið og næsta seingróið um sumar, heyja- (s97) nýting hin versta, bæði vegna hvassviðra, sem gjörðu mikinn heyskaða á túnum manna, so og óþerra, so hey lágu víðast úti um Michaelsmessu. Sama tilstand eður enn nú verra var að heyra úr Suðurlandi. ...
Espihólsannáll [sumar] Þar eftir gafst gott sumar um tíma fyrir norðan og austan, en bágborið fyrir sunnan og vestan sökum óþurrka og regna, hvar af bæði töður og úthey víða skemmdust.
Ketilsstaðaannáll [sumar og haust] Sá efri partur sumarsins var góður allt fram að höfuðdegi, hvers vegna tún vel spruttu og hirtust, en víðast varð ei sláttur byrjaður fyrr en þann 7. Augusti. Eins og það grasvöxturinn varð á túnunum í betra lagi, svo varð og temmilegur á engjunum, en sökum óþurrka og regna, sem viðhéldu frá höfuðdegi og til veturnótta, varð það slegna, sem þá fyrst var farið að hirða, að litlum notum, sem nærri má geta, og sumstaðar fyrir norðan og vestan höfðu menn ei fengið tækifæri til að samanbera þennan heyfrakka (svo) fyrr en á jólaföstu. (s447) Laugardaginn fyrsta í vetri [21. okt] gjörði hríðaráhlaup fyrir vestan, sem viðhélst í 4 daga. Í því hrakti bát frá eyjunni Sviðnum og rak síðan á land undir Jökli með árum óbrotinn, en fólk, er á var hafði týnst ... (s450)
Haust - og vetur til áramóta. Mikið hret upp úr miðjum október - síðan öllu skárra. Þarna um haustið var hin ólukkulegi leiðangur sem kenndur er við Reynistaðarbræður farinn.
Úr Djáknaannálum [haust] Um haustið fennti fé eystra en hrakti í sjó vestra. Sultur og hallæri syðra og vestra og þröngt um bjargræði nyrðra, svo sumum lá við uppflosnun. Nokkrar manneskjur dóu úr hor undir Eyjafjöllum og víðar. Grasvöxtur varð víða sæmilegur, þó seint kæmi, betri á útengi en túnum, en hey skemmdust víða af ákaflegum óþerrir, helst syðra og vestra, eins innkomin í garða, líka fyrir austan, hvar töður fúnuðu á túnum. Í Þingeyjarþingi og Eyjafirði lágu töður sumstaðar á túnum eftir Michaelismessu [29. sept.] og það innkomst þar skemmdist, svo að sumu var kastað út úr görðum og tóftum. Nokkuð betri nýting heyja var í Svarfaðardal, Ólafsfirði og Húnavatnssýslu. (s220) ...
Íslands árbók [haust] Um haustið bar svo til, að Halldór Vídalín, klausturhaldari að Reynisstað, tók fyrir sig að senda suðaustur í Skaftafellsýslu til fjárkaupa menn úr seinni sveit. ... þá skeði það óráð, [á bakaleiðinni] að þeir tóku sig upp á laugardaginn síðasta í sumri og lögðu upp á fjöllin. Þá var hér norðan lands mikið stórviðri á sunnan, so (s98) varla var hestfært, með regni og krepju, sem ætla má, að snúist hafi upp í snjóhríð og fjúk, er á leið, so þeir hafi ei enst til að rata frá sér vegin, og hér í Eyjafirði gjörði hið mesta hrakviðri, og menn, sem hér voru á ferð innsveitis, leituðu til bæja. (s99)
Espihólsannáll [haust] Sömuleiðis urðu og úti hey fyrir norðan og austan, þar menn urðu að hætta útheysönnum sökum íhlaupa og óveðra í miðju kafi og sumstaðar varð mikið hey undir snjó og sumir náðu fyrst því heyi á jólaföstu. Þá slógu nokkrir og heyjuðu á Langanesi norður, nokkrir drógu að sér ísastör. Vetrardag hinn fyrsta gjörði mikla hríð, og fennti fé norður um land. Aftur þann 16. Decembris kom mesta stormviðri með hríð, sem bæði skemmdi hús og hey, en braut skip manna sumstaðar. Þá varð úti maður við Stóruvörðu og Heljardalsheiði. (s166)
Úr Djáknaannálum [Skaðar og slysfarir] Um vorið skiptapi í Höfnum syðra með 8 mönnum ... 1 í (s222) Dritvík 19da Apríl með 5 mönnum. 1 á Ísafirði með 14 mönnum, 1 á Hvammsfirði með 3 karlmönnum og 1 kvenmanni. ... Laugardaginn 1tan vetrar (21. Oct.) hraktist skip frá Sviðum á Breiðafirði, týndust af því 3 karlmenn og 1 kona. Skagastrandarkaupfar forgekk á útsiglingu við Buðlungavík austan til við Hornbjarg, tapaðist þar gjörsamlega fólk, skip og góss allt. ... Þann 19. Apr. urðu úti 2 kvenmenn og barn eitt í Mávahlíðarplássi, og Skafti Hallsson milli Ber- og Dritvíkur. Um haustið urðu úti á Kjalvegi 5 menn, sem lögðu frá Hamarsholti í Hreppum laugardag 3ja vetrar, 4ða Nóv. Með 1 1/2 hundrað fjár og 17 hesta og ætluðu norður. ... Enginn maður né skepna fannst lifandi aftur af þessum hópi. [Þetta var leiðangur Reynistaðarbræðra]. Piltur einn lamdist til dauðs á Heljardalsheiði. (s223) ... Í sumarmálahríðinni 19da Apr. fór bátur í sjóinn frá Höfðakaupstað og 6æringur brotnaði þar og fleiri skip á Skagaströnd löskuðust. Þá reif kaupmannsstofuna þar, nýbyggða, svo að skemmdist þak hennar. Þann 16da Desember gjörði mikið útsynningsveður, brotnuðu þá 5 skip á Vatnsnesi og fleiri annars staðar; þá reif líka freðin hús og hey. (s224)
Í árbókum Espólíns er stutt yfirlit um tíðarfar ársins - og helstu óhöpp og slysfarir.
Árbækur Espólíns: XXIII. Kap. Eftir nýárið var vetur góður til gói, en þaðan af harðnaði, voru menn þá lítt staddir, þvíað kúpeningur var ganglítill, en sauðfé mjög fátt, sakir fjársýkinnar, en undan hafði farið, urðu nú og ill peningahöld, en vorið þungt fram á messur, svo bæði fennti sauðfé manna og hrakti í sjó, en nokkrir fáir dóu af megurð undir Eyjafjöllum. Um sumarmál og bænadag gekk yfir á Vestfjörðum kafaldshríð svo mikil, að drap sauðfé margt og nokkur hross; hrakti í sjó af einum bæ í Ísafjarðarsýslu 60 fjár, og öðrum 30, og drap 80 í Búðardal; týndist þá skip af Ísafirði með 4 mönnum, en hinn fimmti lifði, og brotnuðu tvö skip prestsins í Aðalvík, og eitt í Oddbjarnarskeri á Barðaströnd; tvö týndust eystra, var annað í Fáskrúðsfirði. (s 23).
Fiskafli var þá all lítill, en misfarir ýmsar; voru hvalrekar miklir fyrir norðan land. Voru góðviðri um hríð það sumar, og grasvöxtur í betra lagi. (s 24). XXIV. Kap. Það haust komu mikil áhlaupaveður, og braut skip, en fennti fénað víða; þá gjörði hríðarveður laugardaginn fyrstan í vetri, og stóð í 4 daga, hrakti skip frá Sviðnum vestra, og rak að landi undir Jökli óbrotið með árum en menn höfðu týnst af. (s 26).
Brot úr dagbókum Sveins Pálssonar uppskrift Haraldar í Gröf [1779 til 1787]:
8-2 1780 (Í Skagafirði) Ógna stórviðri á suðvestan með regni reif hús
11-2 Gressilegt veður nótt - reif hús
5-4 mikill kuldi á sunnan gressilegt frost
7-4 gjörði blessaðan bata með hita og hlýju - sólskin
8-4 sama blessað blíðuveður
15-4 Norðan fjúk með frosti og rosa
1-5 yrja á norðaustan, kom ís á Eyjafjörð
12-6 fréttist til íss á hafinu
18-6 gott veður, vatnavextir
24-6 sár norðan kuldi með grimmd stórri
26-7 farið að slá hér
23-8 ei slegið hér fyrir hvassviðir á útvestan
14-10 þennan 1/2 mánuð hafa gengið mollur og þoka, stundum frost
26-11 þennan mánuð hafa verið að sönnu óstöðugt en ætíð bætt úr með góðri hláku
Færeyskur maður Nicolai Mohr dvaldist hér á landi veturinn 1780 til 1781 á vegum danskra stjórnvalda og leitaði að leir til postulínsgerðar. Þorvaldur Thoroddsen segir frá því máli í Landfræðisögu sinni, 3. bindi (s.61 og áfram í nýrri útgáfunni): Árið 1786 kom út bók um ferð hans: Forsög til en Islandsk Naturhistorie, Kaupmannahöfn, 1786. Bókin lýsir fyrst náttúrunni, dýrum, plötum og steinum. Síðan er eins konar ferðasaga og að lokum sérstakur (en sundurlaus) kafli um veður á þessum tíma. Tillæg om Veirets Beskaffenhed samt Kulde og Varme (s384 og áfram). Bókina má finna á netinu. Mohr kom til Skagastrandar 7. ágúst og vakti athygli hans að snjóskafl var þar enn undir bakka í fjörunni - þó ofan á bakkanum hefðu jurtir blómgast og myndað þroskuð fræ. Mikið hefur skafið á Skagaströnd þetta vor. Við heyrum meira af Mohr - á árinu 1781.
Ég legg veðuryfirlitið í viðhengi (á dönsku) - en þetta er það helsta:
Ágúst 1780: 8. til 11. blástur og skúrir, 12. til 15. stillt og heiðríkt veður, 10-12 stiga hiti. 16. til 18. mikil rigning, nokkur blástur. 19. lygnt, bjart og þægilegt. 20. stormur með miklu regni. 21. og 22. Skúraveður. 23. haglhryðjur með blæstri, 5 stiga hiti. 24. til 26. aftur fagurt veður. 27. þoka með regni og blæstri. 28. til 31. hægur og fagur. 10 stiga hiti.
September 1780: 1. til 11. aðallega hægur, stundum nokkur þoka 7. til 10. stig. 12. upphófst sterkur stormur af norðaustri með þéttri snjókomu sem stóð til 19. 4. til 7. stiga hiti. 19. til mánaðarloka. Lítill vindur, oftast stillt og bjart.
Október 1780: Sama fagra veðrið til 8. 9. til 11. ísing og snjór. 12. til 14. bjart veður og næturfrost. 15. til 18. þoka með regni og blæstri, 4 til 8 stiga hiti. 19. og 20. stormur, þétt snjókoma, 3 stiga frost. 21. hægur og bjartur, 5. stiga frost, þegar hallaði að nóttu var 4 stiga hiti. 22. og til mánaðamóta mest hægur, 4 til 8 stiga hiti.
Nóvember 1780: 1. og 2. blástur og regn. 3. stormur og snjókoma 2 stiga frost, 4. og 5. sama veður, 5 stiga frost. 6. þykkt loft og hægur vindur, 4 stiga hiti. 7. og 8. sama veður, 7 stiga hiti. 9. og 10. skarpur vindur 2 stiga frost. 11. þykkt loft 2 stiga hiti, 12. hægur, 6 stiga frost. 13. til 20. sama veður, 4 til 7 stiga frost. 21. og 22. blástur og snjókoma 2 stiga frost. 23. og 24. blástur með snjókomu 2 stiga frost. 25. og 26. blástur og rigning, 27. hægur 1 stigs frost. 28. og 29. hægur og bjartur, 6 stiga hiti. 30. blástur með þéttri snjókomu, 0 stig.
Desember 1780: 1. til 7. mest hægur og bjartur, 5 til 7 stiga hiti. 7. og 8. hægur og bjartur 3. stiga frost. 9. til 11. breytilegt loft, næstum logn 4 stiga hiti. 12. til 15. dálítill vindur fagurt veður 3 stiga frost. 16. kröftugur stormur af suðri, líkur fárviðri, á Ufsaströnd fuku tveir bátar út á sjó. 17. til 20. lítilsháttar vindur, fagurt veður 7 stiga hiti. 21. hægur 0 stig. 22. og 23. sama veður 3 stiga frost. 24. til 29. óstöðugt veður, 1 til 4 stiga hiti. 30. hægur og bjartur 6 stiga frost. 31. norðanblástur með þéttri snjókomu allan daginn.
Hér lýkur umfjöllun hungurdiska um tíðarfar og veður á árinu 1780. Þakka Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir mestallan innslátt annála og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt Árbóka Espólíns (stafsetningu hnikað hér - mistök við þá aðgerð sem og allan annan innslátt eru ritstjóra hungurdiska).
16.1.2022 | 14:02
Hálfur janúar
Bloggfærslur 16. janúar 2022
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 466
- Sl. sólarhring: 714
- Sl. viku: 2487
- Frá upphafi: 2480706
Annað
- Innlit í dag: 416
- Innlit sl. viku: 2192
- Gestir í dag: 402
- IP-tölur í dag: 389
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010