Tuttugu júnídagar

Tuttugu júnídagar. Meðalhiti í Reykjavík er 9,3 stig, -0,1 stigi neðan meðallags 1991 til 2020, en -0,5 neðan meðallags síðustu tíu ára og í 15.hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru dagarnir 20 árið 2002, meðalhiti 11,5 stig, en kaldastir voru þeir 2001, meðalhiti 7,8 stig. Á langa listanum er hiti nú í 47. sæti (af 147). Hlýjast var 2002, en kaldastir voru sömu dagar 1885, meðalhiti þá aðeins 6,6 stig.

Á Akureyri er meðalhiti nú 10,8 stig, 1,7 stigi ofan meðallags 1991 til 2020, en +1,3 ofan meðallags síðustu tíu ára.

Að tiltölu hefur verið kaldast á Suðurlandi og við Faxaflóa, hiti í 15.hlýjasta sæti á öldinni, en hlýjast á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Austurlandi að Glettingi, hiti þar í 7.hlýjasta sæti á öldinni.

Á einstökum stöðvum er hlýjast að tiltölu á Rauðanúpi, hiti +1,7 stig ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast hefur verið í Þúfuveri, hiti þar -1,1 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma hefur mælst 41,1 mm í Reykjavík, það er hátt í 50 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 14,1 mm - ekki fjarri meðallagi.

Sólskinsstundir hafa mælst 117,7 í Reykjavík, lítillega undir meðallagi.


Bloggfærslur 21. júní 2020

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 399
  • Frá upphafi: 2343312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 361
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband