Fleiri háloftaskemmtiatriđi (í gúrkutíđ)

Ţađ ţarf ekki mikiđ til ađ gleđja okkur veđurnördin. (Skyldi einhver örvćnting vera í okkur?) Viđ lítum á norđurhvelsháloftaspá evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir snemma á fimmtudagsmorgun (4.júlí).

w-blogg010719a

Jafnhćđarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, af legu ţeirra má ráđa vindátt og vindstyrk. Litir sýna ţykktina en hún mćlir hita í neđri hluta veđrahvolfs - ţví meiri sem hún er ţví hlýrra er loftiđ. Blái liturinn er horfinn af kortinu - slíkt gerist helst í júlí. Viđ viljum helst vera í gulum eđa brúnum litum - ţeir eru líklegir til hlýinda. Í júlí liggja mörkin á milli grćnu og gulu litanna (ţykkt = 5460 m) ađ međaltali um Ísland ţvert. 

Lćgđ á ađ koma ađ landinu annađ kvöld (ţriđjudag) - háloftalćgđin sem hún fylgir er ekki mikil um sig - en er frekar köld í miđju og fer hratt yfir landiđ á fimmtudaginn (á kortinu viđ Suđvesturland). Á eftir fylgir síđan önnur minni, er viđ Grćnland á kortinu og fer líklega fyrir sunnan land á föstudag - norđanátt síđan í kjölfariđ. 

En lítum nú á atriđi í fjarlćgđ. Tvö stór og mikil - og hlý, háţrýstisvćđi sitja hvort sín megin Norđuríshafs. Annađ yfir Alaska en hitt yfir Síberíu (gulu örvarnar benda). Almennt er ţetta frekar óţćgileg stađa fyrir okkur ţví fyrirferđin í hlýindunum er svo mikil ađ kalda íshafsloftiđ hörfar undan - og einhvers stađar verđur ţađ ađ vera. Kannski hér - en kannski ekki. 

Spár virđast almennt sammála um ađ Alaskahćđin hreyfi sig ekki mikiđ - en ef trúa má spám á Síberíuhćđin ađ teygja sig til vesturs - og ţađ svo (segir skemmtideildin) ađ hún nái alla leiđ til Íslands. Sé sú hugmynd rétt fáum viđ aldrei ţessu vant sumarhlýtt háloftaloft úr norđaustri ţegar líđur á helgina - evrópureiknimiđstöđin nefnir allt ađ 5600 metra ţykkt og meir en 12 stiga hita í 850 hPa-fletinum (frá Síberíu af öllum stöđum). 

Taka verđur fram ađ ţegar ţetta er ritađ verđur ţessi möguleiki enn ađ teljast til skemmtiatriđa - og sömuleiđis verđur ađ hafa í huga ađ leiđ loftsins liggur yfir hafsvćđi sem er mjög fjandsamlegt öllum hlýindum - líklegt ađ neđstu loftlög verđi alls ekki sérlega hlý. 

Bandaríska veđurstofan býđur upp á svipađa sögu - en ţó ţannig ađ hlýindin ađ austan komist ekki alveg alla leiđ til okkar heldur sveigi ţau af til suđurs áđur en hingađ er komiđ. 

Kannski verđa horfurnar gjörbreyttar strax á morgun (jafnlíklegt). 


Bloggfćrslur 2. júlí 2019

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 159
  • Sl. viku: 1753
  • Frá upphafi: 2348631

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1534
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband