Nokkur órói

Veðurspár eru mjög órólegar þessa dagana (órólegri heldur en veðrið sjálft?). Sterkir háloftavindar blása nú yfir landinu - ekki er langt í kalt loft norðurundan, en jafnframt leitar sunnanátt lags fyrir sunnan land. - Reiknimiðstöðvar hafa verið óvissar í meðferð stöðunnar - en svo virðist samt að við ætlum að sleppa furðuvel (eða þannig). 

w-blogg170117a

Fyrsta kort dagsins sýnir stöðuna í 300 hPa-fletinum í fyrramálið (17. janúar kl.6) - að mati evrópureiknimiðstöðvarinnar. Jafnhæðarlínur eru heildregnar - við erum hér í um 9 km hæð. Vindhraða og vindátt má sjá af hefðbundnum vindörvum - en litir sýna hvar vindhraðinn er mestur. Það er einmitt yfir Íslandi. Á þessum árstíma er algengast að heimskautaröstin sé suður í hafi - en sveigjur hennar eru miklar þessa dagana - röstin kemur langt að norðan vestast á kortinu - fer langt suður í höf - en sveigir síðan aftur langt til norðurs - og svo enn aftur suður til Miðjarðarhafs austast á kortinu.

Þetta er ávísun á mikil hitavik - bæði jákvæð og neikvæð - auk þess sem lítið má út af bera með vind - lægðir geta orðið mjög krappar. 

w-blogg170117b

Hér má sjá sjávarmálsþrýsting (heildregnar línur) á sama tíma - kl. 6 á þriðjudagsmorgni 17. janúar. Hes vestanstrengsins nær alveg niður að sjávarmáli yfir landinu og svæðinu norðurundan - en með því að horfa á þykktarmynstrið (daufar strikalínur) má sjá að kalda loftið norðurundan dregur þó mjög úr vindi - er þó ekki nærri því nógu kalt til að snúa honum til norðaustanáttar. 

Litirnir sýna 3 klukkustunda þrýstibreytingar. Rauðu litirnir tákna þrýstifall, en þeir bláu ris. Lægðakerfið tvöfalda fyrir sunnan land hreyfist hratt til norðausturs. - Í gær og fyrradag var helst gert ráð fyrir því að þessar tvær lægðir næðu saman og færu þá yfir Ísland með nokkrum látum - en nú eru reiknimiðstöðvar frekar á því að þær sameinist ekki. 

Eystri lægðin er sú hættulegri - en sú vestari virðist ætla að sjá til þess að hún fái ekki kalda loftið „í bakið“ fyrr en komið er framhjá Íslandi - mikilli dýpkun og kreppu verði því slegið á frest í tæpan sólarhring - Norður-Noregur fær þá að finna til tevatnsins síðdegis á miðvikudag. 

Við höfum tilhneigingu til að trúa reiknimiðstöðvum varðandi 1 til 2 daga spár - en rétt er samt að gefa þessari lægð auga meðan hún fer hjá - og þeirri vestari svosem líka - þótt hún eigi að veslast upp. 

w-blogg170117c

Norðurhafabloggarar - hafísnördin - spjalla nú um stöðuna við norðurskautið. Kortið gildir á sama tíma og kortin að ofan - kl.6 þriðjudag 17. janúar. Við sjáum hér gríðarmikið lægðasvæði norður af Svalbarða. Að sögn er hafísinn óvenju hreyfanlegur um þessar mundir - enda með þynnsta móti. Venjulega gerir ein lægð sem þessi ekki mikið af sér á þessum árstíma - en vegna „þynnkunnar“ og hreyfanleikans er talað um að hún gæti sturtað óvenju miklu af ís út úr íshafinu - þá í „átt til“ okkar.

Varla hefur ritstjóri hungurdiska mikið vit á - en kannski rétt að gefa þessu máli gaum líka.  


Bloggfærslur 16. janúar 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg160524a
  • w-blogg160524i
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 381
  • Sl. sólarhring: 394
  • Sl. viku: 1230
  • Frá upphafi: 2354453

Annað

  • Innlit í dag: 358
  • Innlit sl. viku: 1104
  • Gestir í dag: 338
  • IP-tölur í dag: 331

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband