Oftast ofan meðallags - en ekki langt í kalt loft

Nú gerir evrópureiknimiðstöðin ráð fyrir því að til jóla verði hiti ofan meðallags hér við land. Þrátt fyrir meðalyfirlýsingar af þessu tagi má samt gera ráð fyrir einhverjum köldum dögum - mjög stutt er í mjög kalt loft fyrir norðan land.

w-blogg151215a

Kortið gildir næstu tíu daga - fram til aðfangadags jóla. Sjávarmálsþrýstingur er heildreginn - lægð fyrir sunnan land, strikalínur sýna hita í 850 hPa-fletinum. Litirnir sýna hins vegar vik 850-hPa hitans frá meðallaginu 1981 til 2010 - um landið sunnanvert um 1 til 2 stig ofan meðallags. 

Miklum hlýindum er spáð í Vestur-Evrópu, meir en 6 stigum ofan meðallags þar sem mest er (kannski falla einhver hitamet) - en sérlega kalt er aftur á móti við Grænland. Kaldasta loftið er vestan þess - þar er hita spáð meir en -10 stigum undir meðallagi. Það er mikið í 10 daga meðaltali. Fyrir norðan okkur er neikvæða vikið meir en -6 stig þar sem mest er. 

Þar sem óvissa er mikil í spánum - sérstaklega þegar á líður - er nærvera kalda loftsins óþægileg. Klasaspár evrópureiknimiðstöðvarinnar sýna kalda loftið ná undirtökum hér á landi í um 40 prósent tilvika - og gefa ekki til kynna að mjög hlýtt loft berist til landsins þessa tíu daga. 

En fyrir flesta skiptir sjálfsagt aðalmáli á þessum tíma árs að veður sé friðsamt - hvort það verður það til jóla er fullsnemmt að segja til um. 

[Einhver spurði fyrir nokkrum dögum hvað hPa stæði fyrir. Það er þrýstieiningin hektópascal. - Um hana má lesa í viðhenginu - en því stal ritstjóri hungurdiska úr hinu merka (en þvælna) riti „Veðurbók Trausta“ - með semingssamþykki höfundar - farið ekki með það lengra]. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 14. desember 2015

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg060725a
  • w-blogg040725a
  • w-blogg020725c
  • w-blogg020725b
  • w-blogg020725a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 112
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 1769
  • Frá upphafi: 2482992

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 1592
  • Gestir í dag: 89
  • IP-tölur í dag: 86

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband