Meðaltalamoli - fyrir nördin

Ritstjóri hungurdiska fylgist daglega (jæja - nærri því daglega) með stöðu meðalhita á landinu í það og það sinnið. Þegar hann horfði á tölurnar fyrir fyrstu þrjá daga desembermánaðar sá hann - sér til nokkurrar furðu að meðalhiti áranna 1961 til 1990 reynist vera hærra heldur en meðaltal síðustu tíu ára þessa daga. Svona lítur það út:

Meðalhiti 1. til 3. des og vik   vik  
stöðármándagafjmhiti1961-1990  
120141231,370,10 Reykjavík
17820141231,420,71 Stykkishólmur
42220141232,312,21 Akureyri
62020141234,482,63 Dalatangi
        
     vik  
stöðármándagafjmhiti2004-2013  
120141231,371,88 Reykjavík
17820141231,421,87 Stykkishólmur
42220141232,313,74 Akureyri
62020141234,483,15 Dalatangi

Af hitavikin eru öll jákvæð - dagarnir þrír eru fyrir ofan meðalag beggja tímabila - en í samanburðinum er óvenjulegt að sjá stærri jákvæð vik séu miðað við síðustu tíu árin heldur en „kalda“ tímabilið 1961 til 1990. 

En þannig er það. Ritstjóranum þótti rétt í framhaldi af þessu að kanna hversu margir dagar ársins það eru sem voru að meðaltali hlýrri á kalda tímabilinu heldur en því hlýja. Svarið var auðfundið (kannski ekki alveg auðfundið - því ritstjórinn fékk óvenjuskætt kast af svonefndri sql-blindu við gerð fyrirspurnarinnar í gagnagrunninn - en ekki meir um það).

Þetta eru 58 dagar ársins sem státa af hærri hita 1961 til 1990 heldur en á árunum 2004 til 2013. - Þar af er 30. nóvember og fyrstu sjö dagar desembermánaðar. Þeim heiðri deila tveir dagar í janúar, 9 dagar í febrúar, 2 í mars, 3 í apríl, 11 dagar í maí, enginn í júní og júlí, 3 í ágúst, 2 í september, 15 í október, 2 í nóvember og 9 í desember - alls 58 eins og áður sagði. - Lista yfir dagana má finna í viðhenginu.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 4. desember 2014

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg110725c
  • w-blogg110725b
  • w-blogg110725a
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.7.): 199
  • Sl. sólarhring: 249
  • Sl. viku: 1995
  • Frá upphafi: 2484875

Annað

  • Innlit í dag: 167
  • Innlit sl. viku: 1780
  • Gestir í dag: 146
  • IP-tölur í dag: 146

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband