Af heldur köldum alþjóðavetri

Alþjóðaveðurfræðistofnunin telur vetur á norðurhveli ná til mánaðanna desember, janúar og febrúar. Alþjóðaveturinn er því styttri en vetur á Íslandi, við teljum mars með - enda alloft kaldasti mánuður ársins hér á landi. Ritstjóri hungurdiska hefur undanfarin ár reiknað meðalhita alþjóðavetrarins hér á landi og fjallað um niðurstöður þeirra reikninga.

w-blogg280224

Reiknaður er meðalhiti veðurstöðva í byggð aftur til 1874 - og árum aftur til 1823 bætt við (en landsmeðalhiti fyrstu áranna er mikilli óvissu undirorpinn). Meðalhiti í byggðum landsins síðustu 3 mánuði er -1,7 stig og er það nokkuð kalt, miðað við það sem verið hefur síðustu áratugina (eins og sjá má á myndinni) -1,6 stigi undir meðaltali áranna 1991 til 2020 og kaldasti alþjóðavetur á landinu síðan 1994-95.

Veruleg leitni reiknast yfir tímabilið, +1,4 stig á öld. Á 20. öld allri var meðalhiti alþjóðavetrarins 16 sinnum ofan við frostmark, en hefur 9 sinnum verið það nú þegar á þessari öld - þó veturnir séu aðeins orðnir 24. Slíkt væri mikil breyting frá fyrra ástandi. Á 19.öld þekkjum við ekki nema 3 vetur ofan frostmarks (gætu þó verið eitthvað fleiri - reiknióvissa er mikil) á 78 árum.

En sannleikurinn er þó sá að við vitum ekkert um framtíðina frekar en venjulega. Rætist spár um hnattræna hlýnun að fullu verða hlýju veturnir væntanlega enn fleiri en 40 á 21.öld - en einnig er vel hugsanlegt að við höfum þegar „tekið út“ meiri hlýnun en okkur „ber“ og talan orðið nær 35 - jafnvel lægri.

Reiknuð leitni á myndinni er ekki síst há fyrir þá sök að vetur kuldaskeiðs 19. aldar voru almennt töluvert kaldari heldur en kaldir vetur kuldaskeiðs 20.aldar. Sömuleiðis hafa mjög kaldir vetur alls ekki látið sjá sig á nýrri öld.

En þrátt fyrir „kulda“ hefur verið lítið um slæm veður það sem af er vetri, lægðabrautir oftast fjarri og oft ræst úr á betri veg en vænta mátti.

Við lítum einnig á hita í Reykjavík.

w-blogg280224b 

Í ljós kemur að þessi vetur, það sem af er, hefur ekki verið alveg jafn kaldur og sá í fyrra, en samt að honum slepptum sá kaldasti síðan 1994-95, rétt eins og á landinu í heild. Miðað við landið í heild var óvenjukalt í Reykjavík bæði í desember og janúar á fyrra vetri. Nú hefur það frekar snúist við.

En eins og áður sagði telst mars líka til vetrarins hér á landi (hvað sem alþjóðaveðurfræðistofnunin segir) og rétt að spyrja að leikslokum (eins og sagt er).

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 91
  • Sl. sólarhring: 106
  • Sl. viku: 1466
  • Frá upphafi: 2351050

Annað

  • Innlit í dag: 78
  • Innlit sl. viku: 1270
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 73

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband