Ađeins meira af sólarleysismetingi

Sumariđ sem nú má heita liđiđ var heldur sólarlítiđ um suđvestanvert landiđ. Um ţađ hefur veriđ fjallađ áđur á ţessum vettvangi. Ţó var spurt hvernig máliđ yrđi ef maí og september vćru teknir međ.

Hér ađ neđan er mynd sem sýnir uppsafnađan sólskinsstundafjölda fjögurra sumra í Reykjavík frá 1. maí og út september. Áriđ í ár á eftir ađ bćta fáeinum stundum viđ til mánađamóta - en ekki svo mörgum ađ ţađ raski myndinni. Halli ferlanna gefur til kynna hvort sólríkt var eđa ekki, sé hann lítill var sólarlítiđ, sé ferill brattur hefur veriđ sólríkt á ţeim tíma.

w-blogg260913

Lóđrétti ásinn sýnir sólskinsstundafjöldann, sá lárétti dagafjölda frá og međ 1. maí. Lituđu ferlarnir sýna síđan uppsafnađa stöđu frá degi til dags sumariđ út. Hér eru tekin fjögur ár, 1955 (fyrir illt orđ sem af ţví fer), áriđ í ár (2013) og árin 1983 og 2012 sem annars vegar sýna sólarrýrasta tímabiliđ og hins vegar ţađ sólríkasta.

Eftir fyrsta mánuđinn er 1983 strax aumast, áriđ í ár fer ađeins betur af stađ, en vart má milli sjá hvort áriđ 1955 eđa 2012 gerir betur. Skemmst er frá ţví ađ segja ađ áriđ 1983 stendur sig jafnilla allt tímabiliđ í gegn - helst ađ athygli veki nćr algjörlega sólarlaust (flatt) tímabil frá 2. til 14. ágúst. Ţá mćldust sólskinsstundirnar ađeins 5 í Reykjavík.

Áriđ 2012 (grćnt) heldur sínu striki út í gegn, ţađ er ađeins vika snemma í ágúst sem hefđi getađ gert betur. Minnkandi halli á línunni undir lokin sýnir fyrst og fremst styttri sólargang.

Sumariđ 1955 sló ađeins af í júní en snemma í júlí keyrđi um ţverbak. Síđari hluti tímabilsins var jafnvel enn rýrari heldur en sami tími 1983.

Sumariđ í ár, 2013, er öđru vísi heldur en 1955 og 1983 ađ ţví leyti ađ býsna brattar brekkur (sólrík tímabil) koma tvisvar eđa ţrisvar, mest munar um hálfan mánuđ kringum mánađamótin júlí/ágúst. Ţá fór 2013 fram úr 1955 og hékk síđan ofan viđ ţađ sem eftir lifđi.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, ţađ er hćgt ađ ljúga miklu međ línuritum.

Dáldiđ fyndiđ t.d. ađ taka maí međ - en nauđsynlegt til ađ ná nćst bestu útkomunni fyrir áriđ í ár (og svo auđvitađ ađ velja tvö verstu árin ađ auki).

Annađ hefđi reyndar veriđ uppá teningnum ef hitinn vćri reiknađur á sama tímabili (voriđ (apríl og maí) var kalt, međalhiti í Reykjavík hefur ekki orđiđ lćgri síđan 1989).

Enn eru menn í nauđvörn hvađ síđastliđiđ sumar varđar. Ekki svo slćmt segir línurit Trausta.

Allar opinberar tölur segja hins vegar ađ sumariđ hafi veriđ mjög slćmt, svo sem ađ međalhiti ţess (júní-ágúst) sé 1,2 stigum undir međaltali síđustu 10 ára.

Og ekki bćtir september úr skák ...

Torfi Stefánsson (IP-tala skráđ) 26.9.2013 kl. 13:35

2 identicon

Viđ skulum ekki vera ósanngjarnir Torfi. Spámenn Veđurstofu Íslands hafa lofađ landsmönnum allt ađ +6°C aukningu ársmeđalhita á ţessari öld: (http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/visindanefndloftslagsbreytingar.pdf).

Ţađ er ţví alveg sjálfsagt ađ taka nettan Dr. James Hansen á vísindin ef fjandans náttúran neitar ađ fara eftir flottu spálíkönunum og sviđsmyndunum . . . ;)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 26.9.2013 kl. 17:27

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Torfi. Spurning barst um ţađ hvernig sumarsólin liti út ef maí og september vćru teknir međ - ţađ var allt og sumt. Maí var ekki „nauđsynlegur“ gagnvart sólarsamanburđinum, sé byrjađ í júní kemur nánast ţađ sama út. Kíktu á viđhengi pistilsins. Um daginn var sagt hér á ţessum vettvangi ađ síđastliđiđ sumar hefđi veriđ ţađ lakasta í Reykjavík síđan 1984 - ađ fimmtungamati hungurdiska - en ţađ munu vera ýkjur - verri sumur hafa komiđ síđan. Hilmar - nú birtist ágrip af nýrri sérfrćđiskýrslu IPCC á morgun - föstudag og fyrsti hluti ađalskýrslunnar kemur út á mánudaginn. Ţá er bara ađ grafa sig í hana og leita ađ villum og rangfćrslum. Ég veit ekki hvort eđa hvenćr Veđurstofan gefur út álit fyrir Ísland byggt á ţessari nýju skýrslu. Almenn frétt mun ţó birtast á vef Veđurstofunnar.

Trausti Jónsson, 27.9.2013 kl. 00:52

4 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Trausti. Hér er nýjasta umfjöllunin um hiđ reykvíska "sumar": "Sé litiđ á sérstakan vinsćldakvarđa sem m.a. mćlir úrkomu og fjölda sólarstunda ţá fćr sumariđ í ár falleinkunn, ađeins níu stig af 48 mögulegum í höfuđborginni. Ţađ stendur langt ađ baki góđviđrissumrum síđustu ára. 2009 fćr hćsta einkunn í samkeppninni um besta sumariđ, alls 41 stig, sumrin 2010 og 2012 eru skammt undan međ 39 stig og sumariđ 2011 fékk 38 stig. Maí og september bćttu litlu viđ gćđi sumarsins..."

Torfi Kristján Stefánsson, 27.9.2013 kl. 08:02

5 identicon

Sćll Trausti. Ég dreg ţađ ekki í efa ađ spámenn Veđurstofu Íslands munu leggja sig fram um ađ grafa sig í nýútkomiđ Evangelum IPCC til ađ leita ađ villum og rangfćrslum :)

Svo er ţađ auđvitađ spurning um hvenćr hin hámenntađa íslenska vísindanefnd um loftslagsbreytingar ţiggur nćst laun íslenskra skattborgara fyrir ađ ţýđa innihald skýrslu IPCC og samsama áliti sínu á vćntanlegri kólnun á landinu bláa.

Erum viđ ekki ađ tala um a.m.k. -1°C kólnun á Íslandi fram til 2050? Eigum viđ bara ekki ađ setja fram hógvćra spá og sleppa öllum öfgum? Ţađ er jú ljóst ađ Veđurfrćđin í dag býđur ekki upp á neina nákvćmni í veđurspám sem toppa tíu daga fram í tímann - ekki satt Trausti?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 27.9.2013 kl. 13:24

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 370
  • Sl. viku: 1843
  • Frá upphafi: 2350579

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1646
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband