Myndarleg dćgursveifla

Dćgursveifla hitans er myndarleg ţessa dagana. Viđ skulum til fróđleiks líta á stćrđ hennar dagana 15. til 17. (frá sunnudegi til ţriđjudags). Sjá má allan listann í viđhengi en hér ađ neđan er ţeirra stöđva getiđ ţar sem munur á sólarhringshámarki og lágmarki var stćrri en 14 stig einhvern ţessara ţriggja daga.

ármándagurhámarklágmarkmismnafn
201241510,9-9,420,3Ţingvellir
20124177,9-11,018,9Ţingvellir
20124168,9-9,418,3Reykir í Fnjóskadal
20124158,1-9,918,0Setur
20124169,5-7,216,7Möđruvellir
20124168,7-7,115,8Torfur sjálfvirk stöđ
201241510,1-5,415,5Kálfhóll
201241611,9-3,515,4Reykir í Hrútafirđi sjálfvirk stöđ
20124159,7-5,014,7Hjarđarland sjálfvirk stöđ
201241510,5-3,914,4Laufbali
20124169,7-4,614,3Haugur sjálfvirk stöđ
20124166,1-8,214,3Végeirsstađir í Fnjóskadal
20124166,7-7,514,2Ţeistareykir

Sveiflan hefur orđiđ stćrst á Ţingvöllum, 20,3 stig á sunnudaginn (-9,4 stiga lágmarkiđ var á ađfaranótt ţess dags) og á ađfaranótt ţriđjudags mćldist frostiđ ţar -11,0 stig. Ekki veit ég međ vissu hvort jörđ er orđin alauđ á Reykjum í Fnjóskadal, en jörđ var flekkótt á miđvikudagsmorgni á Vöglum í sömu sveit. Stćrđ dćgursveiflunnar á veđurstöđinni á Setri suđvestan viđ Hofsjökul vekur athygli. Snjódýptarmćlirinn á stöđinni sýnir tćplega 160 cm snjódýpt. Líklegt ađ hámarkiđ hafi ţennan dag ráđist af allt öđru heldur en geislunarjafnvćgi, t.d. ađstreymi hlýrra lofts viđ blöndun ađ ofan.

Svipađ má segja um Reyki í Hrútafirđi sem eru ekki sérlega ţekktir fyrir stóra dćgursveiflu hita. Stöđvarnar á listanum ađ ofan eru flestar inn til landsins. Viđ sjóinn er dćgursveiflan miklu minni. Minnst var hún ţessa daga á eftirtöldum stöđvum, minni en 2 stig.

ármándagurhámarklágmarkmismnafn
2012415-0,3-1,61,3Seley
20124172,30,91,4Hólmavík
20124174,12,71,4Surtsey
2012415-1,1-2,61,5Fontur
20124160,8-0,91,7Dalatangi sjálfvirk stöđ
20124161,4-0,31,7Vattarnes
20124172,40,61,8Gjögurflugvöllur
20124156,54,61,9Surtsey

Ţađ er athyglisvert ađ hiti var undir frostmarki allan sólarhringinn í Seley ţ. 15. og ekki var hitinn heldur hár á Dalatanga. Líkan evrópureiknimiđstöđvarinnar segir sjávarhitann undan Austurlandi vera á bilinu 2 til 4 stig. Ţađ gćti veriđ rétt (?) en dugar lítt í köldu ađstreymi lofts úr norđri.  

Á Veđurstofutúni í Reykjavík hefur dćgursveiflan veriđ á bilinu 7 til 9 stig og lágmarkiđ rétt skotist niđur fyrir frostmark. Viđ Korpu og uppi í Hólmsheiđi hefur munur á lágmarki og hámarki fariđ yfir 10 stig ţessa daga.

Mesta frost ţessara  daga mćldist viđ Hágöngur ađfaranótt 17. -13,3 stig en hćsti hitinn mćldist á Reykjum í Hrútafirđi ţann 15., 11,9 stig. Munurinn er 25,2 stig. Stór dćgursveifla međ hörkufrost á annađ borđ en sćmilegan vorhita á hitt er trúlega erfiđ fyrir gróđurinn.

Um helgina á íviđ hlýrra loft ađ berast til landsins úr austri en ţrátt fyrir ţađ verđa enn líkur á nćturfrosti inn til landsins ţegar bjartviđri er.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 79
  • Sl. sólarhring: 404
  • Sl. viku: 1904
  • Frá upphafi: 2350640

Annađ

  • Innlit í dag: 76
  • Innlit sl. viku: 1704
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 76

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband