Febrúarhiti í Stykkishólmi 1799 til 2010

Myndin sýnir meðalhita í febrúar í Stykkishólmi jafn langt aftur og séð verður. Fyrstu áratugirnir eru þó ógreinilegir og varasamt er að taka allt of mikið mark á mælingunum, sérstaklega fyrir 1830. En fyrsti febrúarmánuðurinn með mælingum í kauptúninu sjálfu er 1846.

w-t178-feb

Við sjáum að langtímaleitnin er söm við sig. Rauða línan sýnir að hlýnað hefur að meðaltali um 0,15 stig á áratug í 200 ár. Ekki er þó allt sem sýnist í þeim efnum. Segja má að hitinn haldist i svipuðu meðaltali fram til 1920, þá kemur þrep um 1 til 1,5 stig (megnið af hlýnuninni allt tímabilið) og síðan helst hiti svipaður síðan. Annað sem vert er að benda á er að enginn febrúar er undir 5 stiga frosti eftir 1892. Segja má með vissum rétti að þá sé annað þrep í hitaþróuninni.

Febrúar 1881 er kaldastur, febrúarmánuðir áranna 1810, 1811 og 1812 eru líka mjög kaldir, en við tökum hóflega mark á því.

Það er athyglisvert að febrúar 1935 er kaldastur eftir 1892 en 1935 er inni í miðju hlýindaskeiðinu mikla. Ómarktækur munur er að vísu á þeim mánuði og febrúarmánuðunum 1902 og 1907. Síðan er febrúar 2002 kaldastur á síðustu áratugum. Sá mánuður er síðasti kaldi mánuðurinn sem við höfum enn upplifað. Ofurhlýindi síðustu ára hafa staðið óslitið síðan.  

Það er líka merkilegt með febrúar að hann var eini mánuður ársins sem var hlýrri 1961 til 1990 heldur en 1931-1960. Hann var þá að meðaltali hlýrri en bæði janúar og mars. Þessi afbrigði komu einnig fram í úrkomu og vindáttatíðni.

Við skulum líka taka eftir því á myndinni að febrúar hlýnaði strax 1921 en aðrir mánuðir komu flestir seinna inn í hlýindasyrpuna. Tveir mánuðir skera sig úr hvað hlýindi snertir, 1932 og 1965. Hitinn 1932 var með miklum ólíkindum, 4,7 stig að meðaltali en það er svipað og algengt er í Stykkishólmi í maí. Við lá að ámóta hlýtt yrði 1965 en hafísárin hófust hér við land í lok þessa febrúarmánaðar - öllum að óvörum held ég.   

Enga langtímaþróun er að sjá í hitamun janúar og febrúar hitasveiflur milli þeirra mánaða sýnast algjörlega tilviljanakenndar eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

w-t178_feb-jan

Það er helst að tímabilið 1975 til 1985 skeri sig aðeins úr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Afar athyglisvert, þetta með: "Segja má að hitinn haldist i svipuðu meðaltali fram til 1920, þá kemur þrep um 1 til 1,5 stig (megnið af hlýnuninni allt tímabilið) og síðan helst hiti svipaður síðan."

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.2.2011 kl. 01:13

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Trausti.

Mér finnst afar athyglisvert að ekki er hægt að greina neina hlýnun frá árinu 1930 þar til dagsins í dag, og það þrátt fyrir mikla losun manna á CO2.

Fram til ársins 1930 var aukning á styrk koltvísýrings í andrúmsloftinu aðeins orðið lítið brot af því sem það er í dag (295ppm um 1900, 300ppm um 1920, 305ppm um 1930, 390ppm nú árið 2011).   Öll hlýnunin á sér stað á tímabili þar sem aukningin á magni Co2 er óveruleg.

  Hvað skyldi valda þessu mikla misræmi? 
  Hvað var það sem orsakaði þessa miklu hlýnun frá um 1920 til um 1935?

Með góðri kveðju og þakklæti fyrir fróðlega pistla.

Ágúst H Bjarnason, 4.2.2011 kl. 08:36

3 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ágúst og Gunnar, ekki ætla ég að leggja Trausta orð í munn, en hann er að skoða þróun hitastigs í einum einstökum mánuði á Stykkilshólmi en ekki meðalhita jarðar. Stór munur á staðbundnu hitastigi sem er unnið út frá einum mánuði og svo meðalhitastigi Jarðar.

Sveinn Atli Gunnarsson, 4.2.2011 kl. 09:13

4 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Ágúst er að benda á styrk koltvísýrings frá 1900 til 1930 og bera saman við núverandi gildi. Þar sést einfaldlega að hlýnun frá 1930 má varla hengja á hækkun koltvísýrings á sama tímabili.

Ég segi því eins og Ágúst að hvað var það sem kveikti á þessari hlýnun á árunum upp úr 1930? Það væri einnig mjög fróðlegt að bera þetta saman við meðaltal jarðar yfir sama tímabil.

Sindri Karl Sigurðsson, 4.2.2011 kl. 11:39

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll aftur Trausti.

Þegar ég las útskýringar Svatla á spurningum mínum (takk Svatli fyrir að passa svona vel upp á hvað ég segi, skrifa og meina  ),   þá kom mér í hug ein spurning til viðbótar:

Hvað segir kenningin um áhrif CO2 á hitastig á norðurslóðum:
Hvort má vænta meiri hlýnunar að vetri til eða sumri til?

Mig minnir að í skýrslum IPCC séu það veturnir sem eiga að verða mildari með auknum styrk CO2, en febrúar er einmitt um hávetur. Þess vegna hefði ég talið að áhrifin ættu frekar að koma fram í þessum febrúarferli en einhverjum sumaferli.  Kannski er ég að misskilja eitthvað.

-

(www.geographyteachingtoday.org.uk/.../KS3_CC_predictions.doc)

Royal Geographival Society:

" Mediterranean and Europe: Annual mean temperatures in Europe are likely to increase more than the global mean. Seasonally, the largest warming is likely to be in northern Europe in winter and in the Mediterranean area in summer. Minimum winter temperatures are likely to increase more than the average in northern Europe.."

Ágúst H Bjarnason, 4.2.2011 kl. 15:22

6 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ágúst: Hinn sænski frumkvöðull Svante Arrhenius (1896) benti á (og vísað reyndar í Tyndall 1865) að gróðurhúsaáhrif myndu valda því að það myndi hlýna meira að vetri en sumri - það hefur gengið eftir - sjá aukningu hitastigs að vetri og sumri á norðurhveli (Braganza o.fl. 2003 og 2004):

 

Sjá nánar hér:  The human fingerprint in the seasons

Þessi áhrif hafa sem sagt verið þekkt í eina og hálfa öld - og hafa komið fram í hitamælingum Jarðar - þó þau komi kannski ekki fram nákvæmlega í þessari staðbundnu hitaröð á Snæfellsnesi.

P.S. gervihnattamælingar sína þetta líka: 

 

Höskuldur Búi Jónsson, 4.2.2011 kl. 15:45

7 identicon

Ég vil benda á að ekki er hægt að tala um globala aukningu á CO2 og bera saman við hitastig í Stykkishólmi.

Ég hef oft bent á að allt hjal um meðalhitastig Bandaríkjanna allra og samanburð þess við við globala aukningu á Co2 er út í hött. Öll Bandaríkin eru aðeins 1.8% af yfirborði jarðar.

Baldur Eliasson (IP-tala skráð) 4.2.2011 kl. 22:59

8 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, hitaferillinn á Stykkishólmsmyndinni sýnir enga sérstaka hlýnun síðustu 80 árin, en hann er bara einn úr risastóru þýði ámóta ferla sem ná yfir sama tímabil. Þegar rætt er um hnattræna hlýnun ætti frekar að tala um safnið heldur en einstaka sauði. Í heildarsafninu má örugglega finna ferla sem sýna kólnandi veðurfar allt tímabilið - sumir sýna enga hlýnun en aðrir mikla. Og - það er þrátt fyrir allt hlýnun upp á 1,5 stig á myndinni þótt hún komi mestöll snögglega fram í heilu lagi milli 1920 og 1930. Eins og ég hef oft bent á áður eru áratugasveiflur svo miklar hér á landi að erfitt getur verið að heyra í hlýnuninni fyrir hávaðanum. Slíkt mun halda áfram jafnvel þótt hratt hlýni. Það er bara eins gott að ástandið sé þannig að tína megi til megi tína til fjölda raða sem eru án hlýnunar. Væri svo ekki myndu válegir tímar vera alveg á næsta leyti og illt í efni. Við þökkum þeim sem liggja í útgildum leitnidreifingarinnar á báða bóga bara pent fyrir að nenna að taka þátt í leiknum. Megi þeir halda því áfram sem lengst. Um ástæður áratugabreytileikans get ég ekki fjallað hér á blogginu fyrr en að hafa skrifað meira um undirliggjandi eðli veðrakerfisins. Það tekst e.t.v. um síðir.

Trausti Jónsson, 5.2.2011 kl. 01:22

9 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Bestu þakkir fyrir svarið Trausti, svo og pistla þína.

Með kærri kveðju,

Ágúst

(Kærar þakkir einnig til loftslagsfræðinganna Svatla og Höska Búa fyrir ómakið. Ekki veitir nú að að reyna að halda villuráfandi manni inni í hjörðinni, manni sem vill ekki þýðast hjarðhegðun vísindanna, scientific concensus, eða það sem kallast því fína nafni groupthink, og er útskýrt hér. Svona fer þegar menn eru að eðlisfari tortryggnir og síspyrjandi. Kunna ekki við sig á trúarsamkomum. Ég þakka samt umhyggju ykkar Svatla og Höska Búa fyrir sálarheill minni).

Ágúst H Bjarnason, 5.2.2011 kl. 07:06

10 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ágúst, við bendum þér bara á það sem okkur þykir passa í hverju tilfelli, það er af nógu að taka...hefur ekkert með groupthink að gera heldur bara heilbrigðar efasemdir okkar um t.d. að hægt sé að taka einstaka sérsvaldar hitaraðir sem dæmi um heildarþróunina...eins og í þessu tilfelli, eða aðrar þær heilbrigðu efasemdir sem við höfum við þinn málflutning.

Það eru þín orð, Ágúst, að þú sért "villuráfandi" - en kannski finnst þér þú vera orðin eitthvað týndur eftir athugasemdir okkar...en þú verður að eiga það við sjálfan þig, kæri Ágúst.

Sveinn Atli Gunnarsson, 5.2.2011 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 87
  • Sl. viku: 1381
  • Frá upphafi: 2350965

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1197
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband