Fyrstu 20 dagar októbermánaðar

Nokkrir hlýir dagar í röð hafa komið meðalhita fyrstu 20 daga október upp að meðaltalinu 1991-2020. Meðalhiti dagana 20 í Reykjavík er 5,8 stig, +0,1 stigi ofan meðallags 1991 til 2020, en -0,3 stig neðan meðallags síðustu tíu ára og raðast í 13. hlýjasta sæti á öldinni (af 23). Hlýjastir voru þessir dagar árið 2016, meðalhiti þá 9,1 stig. Kaldastir á öldinni voru þessir sömu dagar árið 2008, meðalhiti þá 4,2 stig. Á langa listanum er hitinn í 50. sæti (af 150). Hlýjast var 1959, meðalhiti þá 9,5 stig. Kaldastir voru þessir dagar 1981, meðalhiti -0,3 stig, árið áður, 1980, voru þeir næstkaldastir.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga mánaðarins 4,4 stig, í meðallagi 1991 til 2020, en -0,5 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Það hefur verið hlýrra að tiltölu um landið vestanvert, nær 11. hlýjasta sæti við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Suðurlandi. Á Austfjörðum er hiti dagana 20 hins vegar í 21. hlýjasta sæti aldarinnar (þriðjakaldasta) og skera sig nokkuð úr.
 
Á einstökum veðurstöðvum hefur verið hlýjast að tiltölu á Mörk á Landi og Hellu, +0,2 stig ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast að tiltölu hefur verið á Gagnheiði þar sem hiti hefur verið -2,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 115,9 mm, það er í kringum tvöfalt meðaltal og það fjórðamesta á mæliskeiðinu. Úrkoma á Akureyri hefur mælst 64,1 mm og er það um 40 prósent umfram meðallag.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 36,4 í Reykjavík, 25 færri en í meðalári. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 22,3, 14 færri en í meðalári.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 26
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 1851
  • Frá upphafi: 2353151

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 1669
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband