Hálfur október

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 15 daga septembermánaðar er +5,1 stig. Það er -0,9 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og -1,2 stigum neðan meðallags síðustu 10 ára. Hitinn raðast í 18. hlýjasta sæti á öldinni (af 23). Hlýjastir voru þessir dagar árið 2010, meðalhiti þá 9,5 stig. Kaldastir voru þeir 2005, meðalhiti 3,8 stig. Á langa listanum raðast hitinn nú í 86. hlýjasta sæti (af 150). Á þeim lista var hlýjast 1959, meðalhiti +10,2 stig, en kaldast 1981, meðalhiti þá -0,7 stig (minnisstæð kuldatíð).
 
Á Akureyri er meðalhiti nú +3,5 stig. Það er -1,3 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 g -1,6 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Hiti á öllum spásvæðum raðast í kaldasta þriðjung á öldinni. Kaldast að tiltölu hefur verið á Austfjörðum þar sem þessi hálfi októbermánuður er sá næstkaldasti á öldinni. Á öðrum svæðum raðast hitinn í 18. til 21. hlýjasta sæti.
 
Á einstökum veðurstöðvum hefur að tiltölu verið kaldast á Gagnheiði. Þar er hiti nú -3,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. Hiti er neðan tíuárameðaltalsins um land allt, en minnst í Surtsey og á Stórhöfða þar sem hiti er -0,7 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Líklegt er að hiti þokist heldur nær meðallaginu næstu daga - en ekki sér enn til mánaðamóta.
 
Úrkoma hefur mælst 72,1 mm í Reykjavík, rúmlega 50 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 63,6 mm og er það nærri 70 prósent umfram meðallag.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 33,9 í Reykjavík það sem af er mánuði og er það um 12 stundum minna en í meðalári. Á Akureyri hafa stundirnar mælst 17,4 og er það líka um 12 stundum minna en í meðalári.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 51
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 1876
  • Frá upphafi: 2353176

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 1690
  • Gestir í dag: 40
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband