Fyrstu tíu dagar septembermánaðar

Hiti fyrstu tíu daga septembermánaðar er 9,7 stig og er það í meðallagi áranna 1991 til 2020, en -0,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast því í 14. hlýjasta sæti aldarinnar (af 23). Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2010, 13,8 stig, en kaldastir 2012, meðalhiti þá 8,1 stig. Á langa listanum raðast hitinn nú í 48. sæti (af 149). 2010 er einnig á toppi þess lista, en 1977 á botninum, þá var meðalhitinn aðeins 5,7 stig.

Á Akureyri er meðalhiti nú 11,2 stig, 1,6 stig ofan meðallags 1991 til 2020, en 1,0 ofan meðallags síðustu tíu ára.

Að tiltölu hefur verið heldur svalara um landið sunnanvert heldur en nyrðra. Við Faxaflóa og á Suðurlandi raðast hitinn í 13. hlýjasta sæti aldarinnar, en í það sjöundahlýjasta á svæðinu frá Ströndum og Norðurlandi vestra austur að Austurlandi að Glettingi er hitinn í 7. hlýjasta sætinu.

Á einstöku stöðvum hefur (að tiltölu) verið hlýjast á Gjögurflugvelli, hiti þar +1,8 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast að tiltölu hefur verið í Þúfuveri, -1,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma hefur mælst 37,2 mm í Reykjavík og er það um þriðjung umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 16 mm og er það í tæpu meðallagi. Enn hefur verið óvenjuþurrt austanlands, Úrkoma á Dalatanga hefur aðeins mælst 15,1 mm og er það þriðjungur meðalúrkomu.

Sólskinsstundir hafa mælst 29,3 í Reykjavík, 11,2 færri en í meðalári. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 42,4 og er það 7 stundum ofan meðallags.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 1832
  • Frá upphafi: 2353132

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1652
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband