Sumareinkunn Reykjavíkur og Akureyrar 2023

Ritstjóri hungurdiska hefur nú reiknað „einkunn“ sumarsins 2023 í Reykjavík og á Akureyri. Aðferðin hefur verið skýrð áður (og er auðvitað umdeilanleg). Sumarið nær hér til mánaðanna júní til ágúst - aðferðin gæti gengið fyrir maí líka en varla september. Hæsta mögulega einkunn í þessu kerfi er talan 48 - ekkert sumar hefur náð slíkum hæðum - hvorki í Reykjavík né á Akureyri. Lægsta talan er núll, sumarið 1983 komst nærri henni í Reykjavík - einkunn þess sumars var einn. Rétt er að taka fram að einkunnin er háð hverjum stað - hún gefur engan tölulegan samanburð milli stöðva (sem sumardagatalningin sem hér var fjallað um fyrir nokkrum dögum gerir frekar).

w-blogg040923a

Sumareinkunn Reykjavíkur 2023 er 33. Það er tíu stigum yfir meðalagi síðustu aldar (meðaltalið er 23), og en 5 stigum yfir meðallagi aldarinnar til þessa. Súlurnar á myndinni sýna einkunn hvers árs. Tvö sumur síðustu 10 ára voru áberandi lökust, það var 2013 og 2018, Í ár gáfu júlí og ágúst báðir mjög mörg stig (júlí 15, en ágúst 13). Júní gaf hins vegar ekki nema fimm stig - varð sumarspillir.

Það vekur alltaf athygli á sumareinkunnarmyndinni í Reykjavík hversu tímabilaskipting er mikil. Tíuárameðaltal fór lægst niður í 15 stig á árunum 1975 til 1984, en hæst í 32 stig, á árunum 2003 til 2012 - árin 2009 til 2012 skera sig sérstaklega úr fyrir gæði - og 2019 síðan í sama flokki. Ekki vantaði nema herslumun til að sumarið í ár yrði í flokki þeirra bestu. Þrátt fyrir lakleg sumur 2013 og 2018 má segja að sumur hafi síðasta áratug verið alveg á pari við það sem best gerðist áður en kuldaskeiðið alræmda skall á af fullum þunga á sjöunda áratug 20. aldar.

Ritstjórinn reiknar einnig einkunn á kvarðanum 1 til 10 (eða rúmlega 10 reyndar), sumarið nú fær 7,7 í einkunn á þeim kvarða - og lendir þar með meðal tuttugu bestu síðustu öldina. Hæsta einkunn fær sumarið 2009, 9,3, en lægst er sumarið 1983 (auðvitað) með 0,9 í einkunn.

w-blogg040923b

Sumarið var einnig til þess að gera gott fyrir norðan, fær 34 stig (11 yfir). Telst gott, en það var júlí sem dró það niður, fékk ekki nema fimm stig, júní fékk 14 og ágúst 15. En þetta er þó langt neðan við sumarið einstaka 2021 þegar bæði júlí og ágúst fengu fullt hús stiga (16).

Heildaútlit línurits fyrir Akureyri er nokkuð annað en fyrir Reykjavík. Lægsta tíu ára meðaltalið er þannig 19 (1966 til 1975) og það hæsta 29 (2000 til 2009) - munar 10 stigum, en 17 í Reykjavík. Ritstjóri hungurdiska túlkar það svo að meiri þráviðri séu syðra heldur en nyrðra - mánuðirnir „sjálfstæðari“ á Akureyri heldur en í Reykjavík. Þannig eru það 6 sumur í Reykjavík sem ekki ná 10 stigum, en aðeins 1 á Akureyri (1985). Ellefu sumur ná 35 stigum eða meira í Reykjavík - en ekki nema sex á Akureyri. Þetta bendir til þess að mánuðir í Reykjavík „vinni“ fremur sem heild heldur en fyrir norðan. Ekki er þó á þessari hegðan byggjandi við langtímaveðurspár - eins og sumarið í sumar sýnir glögglega.

Það er nákvæmlega ekkert samband á milli sumareinkunnar nyrðra og syðra. Þó eru fleiri sumur góð á báðum stöðum (samtímis) heldur en vond á báðum. Frábærlega góð á báðum stöðum voru 1931, 1939, 1957, 2004, 2007, 2008 og 2012, en 1959, 1969 og 1992 voru slök á báðum stöðum - 1983 var ekki sérlega gott á Akureyri heldur - á mörkum hins slaka. Sumarið í sumar var líka allgott á báðum stöðum - þótt ekki væru það sömu hlutar þess.

Munum að lokum að þetta er bara ábyrgðarlaus leikur - ekki má nota þessar niðurstöður í neinni alvöru. Svo er september eftir - hann telst formlega til sumarsins í árstíðaskiptingu Veðurstofunnar. Kannski má finna rökstuðning fyrir því í fjögurra ára gömlum pistli hungurdiska: September sem sumarmánuður - áhugasamir - og efasemdamenn - ættu að lesa hann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birnuson

Kærar þakkir! Getur verið að súlan sem merkt er „2010“ á fyrri myndinni eigi að vera merkt „2009“?

Birnuson, 11.9.2023 kl. 13:20

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Jú, það er rétt hjá þér - lagfæri þetta við tækifæri - bestu þakkir.

Trausti Jónsson, 11.9.2023 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 83
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 1909
  • Frá upphafi: 2353111

Annað

  • Innlit í dag: 75
  • Innlit sl. viku: 1711
  • Gestir í dag: 72
  • IP-tölur í dag: 68

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband