Fyrri hluti ágústmánaðar

Meðalhiti fyrri hluta ágústmánaðar í Reykjavík er 12,3 stig. Það er +0,8 stigum ofan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og +1,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 6. hlýjasta sæti aldarinnar (23 ár). Hlýjastir voru þessir dagar 2004, meðalhiti þá 14,0 stig, en kaldastir voru þeir í fyrra, 2022, meðalhiti 10,0 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 16. hlýjasta sæti (af 151). Hlýjast var 2004, en kaldast 1912, meðalhiti þá aðeins 7,4 stig.

Á Akureyri er meðalhiti nú 11,1 stig, -0,3 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, en +0,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Hita á landinu er enn misskipt. Langkaldast, að tiltölu, hefur verið á Austfjörðum. Þar er þetta þriðjakaldasta ágústbyrjun aldarinnar. Við Faxaflóa og á Suðurlandi er hún hins vegar sú sjöttahlýjasta.

Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Þverfjalli, hiti +2,4 stigum ofan meðallags, en kaldast hefur verið á Fonti á Langanesi, hiti þar -1,4 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára, meðalhiti 7,0 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 22,2 mm og er það um 20 prósent minna en í meðalári. Á Akureyri hefur úrkoman mælst aðeins 0,5 mm, 0,2 mm í Stykkishólmi, 1,2 á Dalatanga og 0,1 á Höfn í Hornafirði. Allt óvenjulágar tölur. Á Akureyri mældist engin úrkoma fyrstu 15 daga ágústmánaðar árið 2012 og árið 1951 var staðan svipuð og nú, aðeins höfðu mælst 0,7 mm í miðjum mánuði. Í Stykkishólmi mældist engin úrkoma fyrri hluta ágúst 1952 og 1888 mældust aðeins 0,2 mm, eins og nú. Í fáeinum tilvikum til viðbótar hefur úrkoma á sama tíma mælst 1 mm eða minni. Á Dalatanga mældust aðeins 0,3 mm fyrri hluta ágúst 1968 og 0,8 mm 1957. Árið 1976 var úrkoma þar fyrri hluta ágúst sú sama og nú, 1,2 mm. Á Höfn í Hornafirði mældistu úrkoma fyrri hluta ágúst 2019 aðeins 0,1 mm, rétt eins og nú og 0,4 mm sömu daga 1967. 

Ljóst er að undanfarnar 6 vikur hafa verið sérlega þurrar víða á landinu. Umskiptin miklu milli júní og júlí þýða þó að heildarúrkomutölur sumarsins eru viðast hvar enn varla farnar að teljast með því óvenjulegasta. Höfum þó í huga að snjór var óvenjulítill síðastliðinn vetur og fannir í fjöllum hafa verið fljótar að hverfa, stórfannir jafnvel orðnar rýrar. Því má búast við því að víða sé orðið þurrt í lækjum og jafnvel ám, en mjög þó misjafnt eftir því hversu rennslið er háð úrkomu lengri eða skemmri tíma - og leysingu vetrarsnævar. 

Sólskinsstundir eru 105,5 í Reykjavík, 24,1 fleiri en í meðalári. Á Akureyri hafa mælst 100,2 sólskinsstundir, 30 fleiri en í meðalári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 60
  • Sl. sólarhring: 149
  • Sl. viku: 1886
  • Frá upphafi: 2353088

Annað

  • Innlit í dag: 55
  • Innlit sl. viku: 1691
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband