Hlýjar sunnanáttir?

Ađ sögn reiknimiđstöđva verđur sunnanátt ríkjandi á nćstunni međ hlýviđri miđađ viđ árstíma og mikilli úrkomu um landiđ sunnanvert. Fjölmörg lćgđakerfi eiga ađ fara yfir landiđ eđa vestan viđ ţađ og erfitt ađ fylgja ţeim öllum eftir í spám. Viđ lítum vonandi á ţau mál ef einhver sérstök tíđindi verđa uppi - en lítum í dag til heiđhvolfsins  - en ţar virđist merkileg breyting vera í uppsiglingu.

Lítum á spá bandarísku veđurstofunnar (gfs-líkaniđ) um hćđ 30 hPa-flatarins og hita í honum um hádegi á morgun (miđvikudaginn 2. janúar).

w-blogg020113a

Kortiđ sýnir meginhluta norđurhvels jarđar norđan viđ 25. breiddarstig, Ísland er rétt neđan viđ miđja mynd. Kort -, tölur og kvarđar sjást mun betur sé kortiđ stćkkađ. Jafnhćđarlínur eru svartar og merktar í dekametrum (1 dam = 10 metrar), en litafletir sýna hita. Fjólublái liturinn byrjar viđ -82°C frost. Brúna svćđiđ er hlýjast, ţar er frostiđ ekki nema -30°C. Ef vel er ađ gáđ má sjá örsmáa dökkbrúna bletti ţar sem talan -28 sést.

Innsta jafnhćđarlínan, alveg inni undir L-inu sýnir 22100 metra (22,1 km), en sú hćsta 23800 metra (23,8 km). Ađeins ein lćgđ er á öllu hvelinu. Ţađ er venjulegt ástand. Mikill vindur blćs umhverfis lćgđina í vindröst sem á erlendum málum er kennd viđ heimskautanóttina (polar night jet) - viđ gćtum kallađ hana skammdegisröstina. Hámarksvindur hennar er venjulega heldur ofar en ţetta kort sýnir, í 25 til 30 km hćđ frá jörđ.

Ef trúa má reikningum bćđi gfs-líkansins og evrópureiknimiđstöđvarinnar verđur gríđarleg breyting í heiđhvolfinu nćstu daga og sýnir síđara kortiđ stöđuna eins og reikningar sýna hana verđa á sunnudaginn kemur, 7. janúar.

w-blogg020113b

Viđ sjáum hér ađ lćgđin hefur skipst alveg í tvennt og austanátt er ríkjandi norđan viđ lćgđarmiđjurnar. Skammdegisröstin hefur slitnađ í sundur. Ţegar ţetta gerist getur ástandiđ í bylgjumynstri veđrahvolfsins orđiđ mjög óstöđugt í nokkra daga á eftir međ tilheyrandi hitabylgjum og kuldaköstum víđa um norđurhvel. Áđur en vit fór ađ verđa í veđurspám meira en 1 til 3 daga fram í tímann ţóttu snöggar breytingar í heiđhvolfinu hafa forspárgildi ţví tölvuspárnar náđu illa til heiđhvolfsins. En nú talast hvolfin tvö náiđ hvort viđ annađ í líkönum.

En ţađ er gaman ađ geta fylgst međ svona risastórum breytingum í beinni útsendingu.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Trausti minn ćtlarđu ekki ađ koma međ yfirlit yfir vindhrađa síđustu daga ársins 2012? Svo var líka mikil úrkoma og lágur loftţrýstingur ţarna um daginn.

Pálmi Freyr Óskarsson, 2.1.2013 kl. 15:23

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 162
  • Sl. viku: 1104
  • Frá upphafi: 2352063

Annađ

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 1002
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband