Af septemberástandinu

Nú eru liđnir 9 dagar af september 2010 og óhćtt ađ líta til beggja átta. Metahrinan á dögunum stóđ í 5 daga, met voru sett á 73 sjálfvirkum stöđvum (vegagerđarstöđvar taldar međ). Síđasta metahrina í september var áriđ 2002 ţannig ađ hálfgert ómark er ađ telja međ stöđvar sem byrjuđu eftir ţađ. En 26 eldri sjálfvirkar stöđvar slógu sín gömlu met.

Flest metin voru slegin ţann 4. en met féllu einhvers stađar alla dagana 1. til 5. september. Flest merkari metin eru vel tíunduđ á bloggi Sigurđar Ţórs Guđjónssonar ţannig ađ ég sleppi ţví hér.

Tíu mannađar stöđvar slógu met. Merkast var fall Akureyrarmetsins frá 1939 og 1941 (22,0 stig) - nýja metiđ var 23,6 stig og 24,0 mćldust á sjálfvirku stöđinni viđ Krossanesbrautina.

Í vissum skilningi heldur metiđ á Akureyri frá 19. september 1941 sér, nú sem hćsti hiti á Akureyri svo seint á sumri (já, já, ţađ er líka met).

Lauslega ađ stöđunni í Reykjavík. - Međalhitinn ţađ sem af er er 13,9 stig. Ţađ er talsvert fyrir ofan ţađ sem hćst hefur veriđ sömu daga síđustu 60 árin rúm, en nánast ţađ sama og í september 1939. Ţađ ár er ásamt 1941 ađalkeppinauturinn um nýtt međalhitamet í september. Síđara áriđ tók gríđarlegan sprett eftir miđjan mánuđ (samanber 22 stigin á Akureyri) og verđur erfitt viđ ađ eiga ţó ađ fyrstu 10 dagarnir ţá hafi veriđ nćrri 2 stigum kaldari en sömu dagar nú.

En hvernig eru svo framtíđarhorfurnar? Um ţćr má segja ađ ţćr séu einkennilegar.

Sem stendur er nefnilega spáđ norđanáhlaupi fyrri hluta nćstu viku. Ţar sem nú nálgast miđur september mćtti helst reikna međ slydduhreti og frostmarkskulda af ţeirri átt. Svo bregđur hins vegar viđ ađ hitinn í „hretinu“ minnir frekar á júlíkast heldur en eitthvađ sem kemur ţegar dregur ađ jafndćgrum. En séu spár teknar bókstaflega fer hiti niđur í međallag hér í Reykjavík um miđja vikuna. Ţó norđanáttin sé hlý slćr hún samt mjög á möguleika mánađarins í metaslagnum. En enn lengri spár gera aftur ráđ fyrir hita yfir međallagi - hvađ svosem er ađ marka ţćr.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Samkvćmt skrá sem ég nálgađist á vef Veđurstofunnar á sínum tíma eru september 1939 og 1958 skráđir jafnir međ 11,4 stig og 1941 međ 11,1 stig.

1939 og 1941 hitatölurnar virđast hafa veriđ lćkkađar frá upphaflegum tölum en ekki 1958. Sjálfsagt er erfitt ađ eiga viđ ţetta vegna flutninga Veđurstofunnar innan borgarinnar.

Emil Hannes Valgeirsson, 10.9.2010 kl. 23:08

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, ţađ er rétt hjá ţér Emil, reynt er ađ taka tillit til flutninga innan borgarinnar međ ţessum reiknikúnstum. Rökstuđningurinn er ekkert sérlega sterkur, en felst ţó í samanburđi viđ ađrar stöđvar, samanburđarmćlingum á flugvelli og viđ Veđurstofuhúsiđ auk ţess sem dćgursveifla hitans á ţessum stöđum kemur viđ sögu. Mér ţykir ekki ótrúlegt ađ reynt verđi ađ nálgast leiđréttinguna betur í framtíđinni. Lengi hefur stađiđ til ađ setja sjálfvirkan hitamćli á ţak Oddfellowhússins í kvosinni. Ţar eru fleiri mćlitćki tengd flugvellinum. Af ţessu hefur ţó ekki orđiđ vegna ţess sem teljast brýnni verkefni. En sannleikurinn er auđvitađ sá ađ manni finnst dálítiđ svindlađ á metum ţegar ţau eru borin saman viđ leiđréttar tölur, samviskubitiđ er fyrir hendi nema međalhiti fari upp fyrir gömlu, óhnikuđu tölurnar.

Trausti Jónsson, 11.9.2010 kl. 01:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 52
  • Sl. sólarhring: 146
  • Sl. viku: 561
  • Frá upphafi: 2351352

Annađ

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 482
  • Gestir í dag: 44
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband