September, haustiđ og tvímánuđur

Sem kunnugt er september talinn međ sumrinu í árstíđauppgjöri Veđurstofunnar. Af hverju ţađ stafar er ekki gott ađ segja. Víst er ađ á upphafsárum Veđurstofunnar var ekkert sérlega hlýtt í september, međalhiti í Reykjavík 6,8 stig (1920 til 1929). Međalhitinn í ágúst á ţessum árum var svosem ekkert sérstakur heldur, 10,0 stig. Milli mánađanna kólnađi ţví um 3,2 stig ađ međallagi.

Ég hef ekki séđ nein plögg sem gefa til kynna nákvćmlega hvenćr ákvörđun um árstíđir var tekin, en ţađ var búiđ ađ ţví ţegar ársyfirlit Veđráttunnar fyrir 1925 kom út. Ţá var líka ljóst ađ Veđurstofan taldi veturinn ná yfir tímann desember til mars. Ţađ geta vćntanlega flestir sćtt sig viđ. Fyrst veturinn var 4 mánuđir, varđ ţá ekki líka ađ telja sumariđ jafnlangt. Vor og haust urđu ţví tveir mánuđir hvort um sig.

Ákvörđunin um september fékk góđa stađfestingu nćstu 10 árin, frá og međ 1930. Međalhitinn í Reykjavík í september var allt í einu kominn upp í 9,1 stig og ágúst í 11,0 stig. Ţá kólnađi ađeins um 1,9 stig milli mánađanna. Síđan höfum viđ margan september sopiđ. Á tímabili töldum viđ hann tvímćlalaust heyra til haustsins, t.d. 1974 til 1983, ţá var hann aftur kominn niđur í 6,8 stigin.

Međaltal 20. aldarinnar allrar var 7,8 stig, og síđustu 10 árin er hann 8,7 stig og hćkkar vonandi viđ ţađ ađ september 2010 bćtist viđ og telst ţá vćntanlega til sumarsins.

Hvort er hann svo í raun og veru, haust eđa sumar? Tvímánuđur hefst eftir gamla íslenska misseristímatalinu á ţriđjudegi í 18. viku sumars og lýkur á miđvikudegi síđast í 22. viku sumars. Ađ venjulegu almanaki eru ţessir dagar í kringum 26. ágúst og 25. september. Mér ţykir harla ólíklegt ađ nafniđ vísi til ţess tvíeđlis mánađarins sem hér er til umrćđu (sumar eđa haust?). En ţetta torrćđa nafn er einna minnst notađ af gömlu mánađanöfnunum öllum en fćr međ ţessum vangaveltum mína alţýđuskýringu sem á vel viđ.

Kannski hafa forfeđur okkar vitađ ađ haustiđ gćti stundum byrjađ 24. ágúst en stundum gćti ţađ dregist til 23. september, ţá vćri haustiđ hins vegar nćr örugglega komiđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörleifur Guttormsson

Mér líst prýđilega á ţessa alţýđuskýringu Trausta. Var einmitt ađ velta fyrir mér ţví sama um tvímánuđ fyrir fáum dögum.

Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson má á bls. 599 lesa vangaveltur um einmánuđ og tvímánuđ. Hann telur nafniđ einmánuđur "sprottiđ af ţví ađ ađ mánuđurinn er einn eftir af vetrarmánuđunum, á sama hátt og tvímánuđur er annar síđasti mánuđur sumars." Segir Árni stundum talađ um "tvímánađ sumars" í fornum ritum. 

Hjörleifur Guttormsson, 11.9.2010 kl. 10:22

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 106
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1855
  • Frá upphafi: 2348733

Annađ

  • Innlit í dag: 96
  • Innlit sl. viku: 1626
  • Gestir í dag: 87
  • IP-tölur í dag: 87

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband