Hlýr dagur

Hámarkshiti dagsins á landinu í dag (föstudag 25.ágúst) var 26,4 stig og mældist á Torfum í Eyjafirði. Þetta er landsdægurmet - það eldra var 24,2 stig, sett á Vopnafirði 1991. Fyrir tveimur árum varð þó enn hlýrra á landinu þegar hiti fór í 29,4 stig á Hallormsstað þann 23 [hæsti hiti á landinu í ágúst]. Hugsanlega hafa ágústmet fallið á einhverjum veðurstöðvum - en það kemur í ljós í lok dags.
 
Við vitum ekki um mörg tilvik með meir en 26 stigum síðar í ágúst eða í september. Þó mældist hiti 27,0 stig á Seyðisfirði bæði 27. og 28. ágúst 1976 og 27,7 stig á Akureyri þann 28. Og árið 2017 fór hiti í 26,4 stig á Egilsstaðaflugvelli þann 1. september - það hæsta sem mælst hefur í september. Hiti mældist 26,0 stig á Dalatanga 12. september 1949.
 
Eins og við er að búast er óvenjuhlýtt loft yfir landinu. Það fer hins vegar hratt hjá og ekki gott að segja hvort hinar strjálu háloftaathuganir yfir Keflavíkurflugvelli ná að mæla hámörkin. Athugunin í kvöld (25.) er þó spennandi. Um hádegi var að tiltölu einna hlýjast í 400 hPa - næst ágústmeti, en hiti í bæði 300 hPa og 500 hPa var þá ekki kominn í flokk tíu hæstu - hvað sem svo gerist í kvöld.
 
Viðbót - eftir miðnætti: Svo fór að hitamet ágústmánaðar í 400 hPa /7,5 km hæð) var jafnað í háloftaathugun yfir Keflavík, en í 700, 500 og 300 hPa náði mælingin nú að jafna nokkrar aðrar sem eru í 8. hlýjasta sæti. 
 
Fáein ágústmet voru sett á sjálfvirkum veðurstöðvum, en aðeins tveimur sem athugað hafa nægilega lengi til að geta „upplifað“ hitana miklu í ágúst 2004. Þetta var í Jökulheimum. Hiti fór í 20,2 stig í dag. Eldra ágústmet var 19,6 stig sett 25. ágúst 2003. Hin stöðin er Ögur við Ísafjarðardjúp. Þar fór hiti í dag í 20,3 stig. Eldra ágústmet í Ögri var 18,9 stig, sett 13. ágúst 2004. Hámarkshitinn var víða sá hæsti á árinu, t.d. á Ísafirði (22,2 stig), Sauðárkróksflugvelli (24,5 stig) og á báðum stöðvunum á Akureyri. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 62
  • Sl. sólarhring: 148
  • Sl. viku: 1888
  • Frá upphafi: 2353090

Annað

  • Innlit í dag: 57
  • Innlit sl. viku: 1693
  • Gestir í dag: 57
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband