Af sjávarhita um ţessar mundir

Viđ lítum til gamans á sjávarhita og sjávarhitavik á Norđur-Atlantshafi um ţessar mundir. Fyrsta myndin sýnir sjávarhitagreiningu evrópureiknimiđstöđvarinnar í dag, 14. september 2022.

w-blogg140922a

Norđvestur af Vestfjörđum eru skörp skil í sjónum (eins og alltaf), ţar er meir en 9 stiga hiti út af Ísafjarđardjúpi - en ekki nema ţrjú stig úti á Halanum og ţar fyrir utan. Sex til sjö stiga heitur sjór er úti af Hornbjargi, en ţar rétt austan viđ, (viđ getum sagt viđ Skagagrunn) er blettur af mun kaldari sjó, eins og leki út úr Austurgrćnlandsstraumnum ţar norđan viđ. Fremur hlýtt er aftur á móti viđ norđausturströndina. Viđ sjáum hinn kalda Austuríslandsstraum úti af Austurlandi, ekki er hann ţó sérlega kaldur. Skörp skil eru svo líka úti af Hornafirđi, stutt ţar í 11 til 12 stiga heitan sjó. Sé ţetta boriđ saman viđ undanfarin ár kemur í ljós ađ hér munar helst um kalda sjóinn á Strandagrunni og ţar um kring. Ţar er talsvert kaldara en á ţessum árstíma undanfarin ár. Greiningin segir ađ sjávarhiti sé ekki nema 3 stig á bletti. Ţessi kuldi kemur reyndar einnig fram í lofti í háupplausnarveđurlíkani Veđurstofunnar. 

w-blogg140922b

Nćsta mynd sýnir sjávarhitavikaspá reiknimiđstöđvarinnar fyrir ţessa viku (miđađ viđ um 20 ára tímabil). Ţar segir ađ kaldi bletturinn viđ Strandagrunniđ sé nćrri -3 stigum neđan međallags (ţar sem mest er) - enda er blái liturinn dökkur ţar. Á bláa svćđinu fyrir austan land er hiti hins vegar ađeins lítillega undir međallagi (-0,2 til -1,0 stig) - og annars stađar í námunda viđ landiđ er sjávarhiti nćrri međallagi síđustu áratuga, en ţó vel ofan ţess. 

Langeftirtektarverđast á ţessu korti eru jákvćđu hitavikin miklu austur af Nýfundnalandi (og ţar um kring). Hiti er meir en 4 stigum ofan međallags ţar sem mest er. Svona stór vik eru ekki óalgeng á jađarsvćđi Golfstraumsins, en eru óvenjulega útbreidd nú, bćđi til vesturs, norđurs og austurs. Áđur en fariđ er ađ hrópa upp verđur ţó ađ benda á ađ viđ vitum ekki hvers eđlis ţessi hitavik eru (međ ţví ađ skođa kortiđ eitt og sér). Ţau ná ef til vill ekki nema einhverja tugi metra niđur í hafiđ. Sólarylur sumarsins gćti valdiđ slíkum grunnstćđum vikum nćrri ţví einn og óstuddur. 

En á nćstu vikum mun eđli vikanna koma betur í ljós. Um leiđ og vindar fara ađ vaxa ađ ráđi blandast yfirborđssjórinn ţví sem neđar liggur og kemur ţá „sannleikurinn“ í ljós. Af vikaspákorti reiknimiđstöđvarinnar fyrir október til desember virđist líkaniđ ekki trúa ţví ađ vikin standi undir nafni norđan viđ Golfstrauminn.

w-blogg140922c

Hér hafa jákvćđu vikin norđaustan Nýfundnalands horfiđ, í stađ ţeirra er allmikiđ neikvćtt vik. En á heildina er litiđ er Norđur-Atlantshaf samt hlýtt, hiti yfirleitt 0,5 til 1 stig ofan međallag. Mjög hlýtt verđur norđaustur í hafi og sömuleiđis á jađarsvćđi Golfstraumsins suđur af Nýfundnalandi. 

Ritstjóri hungurdiska er heldur tregur til ađ fara á eitthvađ allsherjartúlkunarfyllerí horfandi á ţetta spákort. En ţađ er kannski í lagi ađ fá sér lítinn sopa. Vikin stóru viđ Nova-Scotia og ţar um kring eru norđan viđ Golfstrauminn - hann virđist e.t.v. hafa breitt úr sér - straumhrađi minni en venjulega(?). Kannski er hann á móti heldur snarpari en venjulega austan Nýfundnalands - ţađ er kannski ekki ađeins bein vindblöndun sem er á ferđ heldur einnig uppdráttur á kaldari sjó? eđa er kćlingin af völdum kaldra vetrarvinda frá Labrador? Ekki veit sá sem ţetta ritar. Hlýindin miklu fyrir sunnan land eru ávísun á ađ sunnanáttir haustsins verđi úrkomusamar (en segja hins vegar ekkert um tíđni ţeirra - sem líka rćđur úrkomunni). 

Mikil jákvćđ hitavik suđvestur og suđur af Grćnlandi(sem ekki ná hingađ) geta veriđ heldur óheppileg fyrir veđurlag hér á landi - bćta í afl háloftavinda og snúa (međal-) vindáttum í hávestur - tíđni norđankuldakasta vex ţá (eđa ţannig). (En nú er nóg drukkiđ).

Blái bletturinn litli á Strandagrunni er of smár fyrir ţessa spá - en kannski hverfur hann líka? 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skál!

Helga Kristjánsdóttir, 15.9.2022 kl. 04:27

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide11
  • w-1945v
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 178
  • Sl. sólarhring: 367
  • Sl. viku: 1321
  • Frá upphafi: 2355081

Annađ

  • Innlit í dag: 174
  • Innlit sl. viku: 1193
  • Gestir í dag: 173
  • IP-tölur í dag: 173

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband