Ágúst hálfnaður

Þá er ágúst hálfur. Meðalhiti hans til þessa reiknast 10,9 stig í Reykjavík. Það er +0,1 stigi ofan meðallags áranna 1961-1990 en -0.8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhiti daganna 15 raðast í 15.hlýjasta sæti (af 19 á öldinni), hlýjastir voru dagarnir 15 árið 2004, 14,0 stig, en kaldastir 2013, meðalhiti var þá 10,4 stig. Dagarnir 15 raðast í 74.sæti (af 145) á langa listanum. Á honum eru sömu dagar 2004 líka hlýjastir, en kaldastur var fyrri hluti ágústmánaðar 1912, meðalhiti aðeins 7,4 stig.

Á Akureyri stendur meðalhiti mánaðarins nú í 8,9 stigum, -1,6 stigi neðan meðaltals 1961-1990, en -2,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti er undir meðallagi síðustu tíu ára um land allt, reyndar í því í Jökulheimum, en mest er neikvæða vikið við Siglufjarðarveg, -3,2 stig.

Þetta er kaldasta ágústbyrjun á öldinni á þremur spásvæðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi. Sé miðað við öldina eina telst mánuðurinn kaldur um land allt.

Úrkoma hefur aðeins mælst 2,4 mm í Reykjavík, um tíundihluti meðallags. Við vitum um aðeins fjóra þurrari fyrri hluta ágústmánaðar, 1956, 1907, 1903 og 1952, en í þeim síðasttalda mældist engin úrkoma þessa daga.

Á Akureyri hefur úrkoma mælst 55,4 mm - um fjórföld meðalúrkoma - hefur einu sinni mælst meiri á sama tíma. Það var 1946. Úrkoma er meiri en áður hefur mælst sömu daga á allmörgum stöðvum við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum, en minni en áður er vitað um á sama tíma á allmörgum stöðvum á Suður- og Vesturlandi.

Sólskinsstundir hafa mælst 140 í Reykjavík til þessa í ágúst og hafa aðeins þrisvar verið fleiri á sama tíma, það var 1927, 1952 og 1960.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 1834
  • Frá upphafi: 2353134

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1654
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband