Ekki oft

Ţađ er ekki oft sem jafndjúpar eđa dýpri lćgđir en sú sem nú er suđvestan Írlands sjást á Norđur-Atlantshafi í október. 

w-blogg111018a

Ţetta er sjávarmálskort evrópureiknimiđstöđvarinnar frá ţví kl.18 í dag, fimmtudag 11.október. Lćgđin er sögđ 937 hPa í miđju. Hún hreyfist í norđnorđaustur og á ađ fara fyrir austan Ísland á ađfaranótt laugardags. Til allar hamingju verđur ţá úr henni mesti vindurinn. Lćgđin sem olli rigningunni og hlýindunum hér á landi í dag er líka óvenjudjúp, um 947 hPa í miđju - ekki svo algeng tala heldur.

Lćgsti ţrýstingur sem vitađ er um hér á landi í október er 938,4 hPa, en hann mćldist á Stórhöfđa í Vestmannaeyjum 19.október 1963. 

w-blogg111018b

Kortiđ sýnir tillögu japönsku endurgreiningarinnar um sjávarmálsţrýsting, úrkomu og hita í 850 hPa ţann dag, kl.18. Í endurgreiningunni er miđjuţrýstingur lćgđarinnar 935 hPa - lítillega lćgri en í lćgđ dagsins í dag. Mjög sennileg ágiskun. 

Ţrautseigir lesendur hungurdiska muna e.t.v. eftir ţví ađ fyrir löngu var hér fjallađ um lágţrýsting í október 1963. Lćgđin á kortinu hér ađ ofan olli sjávarflóđi og tjóni allt frá Grindavík í vestri og austur í Mýrdal. Hvassara (og meira foktjón) varđ hins vegar í veđri nokkrum dögum síđar - sú lćgđ var talin 942 hPa í miđju og má á vef Veđurstofunnar sjá mynd af Íslandskorti sem sýnir meir en 100 hnúta međalvind á Stórhöfđa í Vestmannaeyjum. Gömul veđurnörd minnast ţessara veđra beggja eins og gerst hefđi í gćr. Í sama mánuđi hafđi fellibylurinn Flóra valdiđ gríđarlegu tjóni viđ Karíbahaf - banađi međal annars á áttunda ţúsund manns. Leifarnar náđu ađ lokum til Íslands ţann 14.október - lítilsháttar fokstjón varđ - en samt minnisstćđ stađa.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide11
  • w-1945v
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 50
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 1082
  • Frá upphafi: 2354746

Annađ

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 964
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband