Éljagarđur - erfiđur texti

Nú skal litiđ á óvenjuleg veđurkort - og lagt út af veđurstöđunni um ţessar mundir. Hiđ fyrra sýnir ţađ sem kallađ hefur veriđ stöđugleikastuđull og mćlir gróflega hversu stöđugt loftiđ í veđrahvolfinu er - hversu greiđar lóđréttar hreyfingar ţess geta orđiđ gefist tilefni til ţeirra. Ekki auđveldur texti - varla bjóđandi á almannafćri - en ritstjórinn sýnir hér enga miskunn. 

w-blogg040218xa

Viđ sjáum sjávarmálsţrýsting sem heildregnar línur - rétt eins og á venjulegu veđurkorti. Lćgđ er á vestanverđu Grćnlandshafi og veldur allhvassri suđvestanátt um land allt. Litakvarđinn segir til um mismun á mćttishita veđrahvarfanna og jafngildismćttishita í 850 hPa hćđ. Ţví minni sem munurinn er ţví óstöđugra er loftiđ á milli flatanna. 

Mćttishiti segir hver hiti lofts yrđi vćri ţađ dregiđ niđur úr ţeirri hćđ sem ţađ er í niđur í 1000 hPa ţrýsting. Sé raki í loftinu vćri hugsanlega hćgt ađ ţétta hann og losa ţar međ dulvarma - sem gćti ţá hćkkađ mćttishitann. 

Á grćnu svćđunum er mćttishiti veđrahvarfanna hár og stöđugleiki mikill, á rauđu og brúnu svćđunum er annađ tveggja mćttishiti veđrahvarfanna er lágur - eđa hitt ađ mjög rakt sé í 850 hPa (og jafngildismćttishiti ţar ţví hár). 

Viđ skulum líta á jafngildismćttishitann á sérstöku korti til ađ sjá ţetta betur.

w-blogg040218xd

Litirnir sýna jafngildismćttishitann á sama tíma og á fyrra korti (kl.18 á sunnudag). Austan viđ land er hámarkiđ 313K (=40°C). Á sama tíma er mćttishiti viđ veđrahvörf um 328K (=53°C), mismunurinn, 15, er talan sem viđ sjáum á ţessum slóđum á fyrra kortinu. Rakt og hlýtt loft hefur gengiđ yfir landiđ í dag - landsdćgurhámarkshitamet féll. 

Sjá má ađ kalt loft og ţurrara sćkir nú ađ úr suđvestri - kuldaskil eru yfir landinu. Mörk bláu litanna snerta vestustu nes landsins á kortinu - ţar er jafngildismćttishitinn kominn niđur í 288K (15°C). 

Á suđvestanverđu Grćnlandshafi má sjá blett ţar sem blái liturinn er ađeins ljósari en umhverfis, ţar má lesa töluna 281,9K. Viđ höfum upplýsingar um ađ ţar sé mćttishiti veđrahvarfanna um 284K - ekki munar nema 2 á ţessum tölum. - Á fyrra kortinu eru ţar líka dökkbrúnir flekkir og sé kortiđ stćkkađ geta sumir e.t.v. komiđ auga á töluna 2. 

Óstöđugleikinn austan viđ land og sá sem er á Grćnlandshafi er ţví af tvennum toga - fyrir austan land er loft svo hlýtt og rakt í neđri lögum ađ ţađ ógnar stöđugleika, en vestan viđ eru veđrahvörfin svo köld ađ ađeins ţarf örlítinn raka í neđri lögum til ađ ógna stöđugleikanum ţar. 

Á milli er síđan svćđi ţar sem loft er mun stöđugra. Ţetta ţýđir ađ él fara vart ađ ná sér upp ađ ráđi fyrr en óstöđuga loftiđ nćr til landsins (ţrátt fyrir ađ hin eiginlegu kuldaskil séu farin yfir) - ţegar vesturbrún grćna svćđisins kemur inn á landiđ.

Ţađ á ađ gerast í fyrramáliđ eins og stöđugleikastuđulskortiđ hér ađ neđan sýnir. 

w-blogg040218xb

Ţetta kort gildir kl.9 á mánudagsmorgni. Mjög óstöđugt loft er komiđ inn á landiđ vestanvert. Hér má líka benda á hćđina miklu suđvestur í hafi - 1048 hPa í hćđarmiđju. 

Síđasta kortiđ sýnir svonefnt ókyrrđarábendi (hverfiţungabreyting á massa- og tímaeiningu), viđ skulum ekki hafa áhyggjur af ţví hvađ ţađ er nákvćmlega. Ţađ nćr venjulega sínum hćstu gildum ţegar flotbylgjur brotna viđ fjöll (og í brotum viđ veđrahvörf) - og stöku sinnum má einnig sjá mjög há gildi í skilum og éljagörđum. 

w-blogg040218xc

Ritstjóranum finnst óvenjulegt ađ sjá svona há gildi úti á sjó eins og í éljagarđinum sem verđur ađ nálgast landiđ um hádegi á morgun, mánudag. Annar garđur - minni - verđur ţá búinn ađ ganga hjá sé ađ marka spár. Ţađ verđur svo ađ koma í ljóst hvort líkaniđ hefur hér rétt fyrir sér. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide11
  • w-1945v
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 130
  • Sl. sólarhring: 131
  • Sl. viku: 1162
  • Frá upphafi: 2354826

Annađ

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 1036
  • Gestir í dag: 114
  • IP-tölur í dag: 113

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband