Meir af (jóla-)vindstrengjunum tveimur

Í gær var hér fjallað um tvo vindstrengi sem munu ef spár rætast plaga okkur um jólin. Annar kemur úr norðri - breiðist frá Grænlandssundi og inn á land að kvöldi þorláksmessu. Hinn kemur úr suðaustri síðdegis á aðfangadag og fylgir einni dýpstu lægð sem sést hefur á Norður-Atlantshafi - hún gæti orðið sú dýpsta það sem af er 21. öldinni.

Við lítum á kort sem gildir kl. 21 að kvöldi þorláksmessu og sýnir hæð 925 hPa-flatarins ásamt vindstyrk, vindátt og hita í fletinum.

w-blogg221213a 

Ofurlægðin er í suðurjaðri kortsins. Þar sést það sem sést nærri því aldrei - að 925 hPa flöturinn er við það að snerta jörð. Yfirleitt er hann í mörg hundruð metra hæð - ef maður hefur ekki græna glóru er giskað á 600 metra.

Grænlandssundsstrengurinn nær hér inn á Vestfirði (eða þar um bil) með sínum 30 til 35 m/s í fjallahæð. Meira er að bætast í kalda loftið úr norðri þannig að strengurinn breiðir úr sér. Þetta loft er þó ekki sérlega kalt miðað við uppruna - en er kólnandi. Í pistli gærdagsins var fjallað um kuldapollinn litla sem er á leið til suðvesturs meðfram Grænlandi.

En hlýja loftið við lægðina er líka í framsókn, mest munar þó um það að lægðin er á hreyfingu til norðausturs og grynnist lítið. Það verður - sé að marka spár - um eða fyrir hádegi á aðfangadag að norðaustanstrengur hennar nær að teygja sig til Íslands.

Reiknimiðstöðvar eru ekki alveg sammála um framhaldið - en hér að neðan má sjá tillögu evrópureiknimiðstöðvarinnar um vind í 100 metra hæð á aðfangadagskvöld kl. 18. Rétt er að hafa í huga að upplausn líkansins nær ekki taki á landslagi og er mælt með því að smáatriði spárinnar yfir landi séu tekin með varúð.

w-blogg221213b 

Hér má sjá strengina tvo - mjög snyrtilega. Annan með bólstað við Vestfirði - en hinn við Suðausturland. Staðan er síst betri sólarhring síðar (jóladag).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur spáir mjög slæmu norðankasti um landið norðan- og austanvert um jólin. Þetta verði samfellt hríðarveður í 3-4 sólarhringa. Á jóladag megi búast við versta norðankasti í a.m.k. hálfa öld og þ.a.l. megi búast við miklum samgöngutruflunum á Norður- og Austurlandi."(sic)

> http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/12/22/versta_nordankast_i_halfa_old/

Er e.t.v. kominn tími fyrir suma að viðurkenna að það er farið að kólna örlítið? :)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 22.12.2013 kl. 15:29

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Datt mér ekki hug að þú mundir gripa gæsina með MBL.is-fréttina Hilmar.

Þetta er bara "smá" hiksti í hlýnunni (lesist ekki hjá mér sem óðahlýnun).

Pálmi Freyr Óskarsson, 22.12.2013 kl. 16:25

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það kemur þarna fram að loftið sé ekki sérlega kalt miðað við uppruna. Kannski er það einmitt vegna þess að það er að hlýna ofurlítið! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.12.2013 kl. 20:22

4 identicon

Myndi nú frekar hafa áhyggjur á öfgum í veðrum, frekar en að einblína á hlýnun jarðar.

Bjarki (IP-tala skráð) 22.12.2013 kl. 23:14

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Einhvern tíma henda mestu afbrigðin fyrir hvaða daga sem er. Enginn ástæða til að lesa neitt sérstakt út úr þessu.

Sigurður Þór Guðjónsson, 22.12.2013 kl. 23:22

6 identicon

"Trausti Jónsson veðurfræðingur segir að vindstrengurinn sem kemur til landsins síðdegis á aðfangadag fylgi einni dýpstu lægð sem sést hafi á Norður-Atlantshafi. Hún geti orðið sú dýpsta það sem af er 21. öldinni."(sic)

> http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/12/22/gaeti_ordid_dypsta_laegd_21_aldar/

Ef menn hirða um að lesa blogg Trausta þá kemur þar glögglega fram að: "Hinn kemur úr suðaustri síðdegis á aðfangadag og fylgir einni dýpstu lægð sem sést hefur á Norður-Atlantshafi".

Sigurður Þór Guðmundsson ætti að gera sér grein fyrir því að loft sem berst inn yfir landið með lægð úr suðaustri er eðlilega ekki sérlega kalt :) Hitt er svo annað mál að Íslandskortið er þokkalega blátt fram á nýárið.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 23.12.2013 kl. 00:04

7 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Við verðum í kuldanum út árið. Í staðinn fá íbúar meginlands Evrópu hlýindin.

Emil Hannes Valgeirsson, 23.12.2013 kl. 00:15

8 identicon

Ég spyr á ég þá ekki að ferðast frá Selfossi eftir kl 16:00 til Voga vatnsleysuströnd á aðfangadag ein í bíl ?

Sunna Sturludóttir (IP-tala skráð) 23.12.2013 kl. 00:39

9 Smámynd: Trausti Jónsson

Sunna, hér eru engar spár - aðeins fjallað um þær. Til að gera alvöruspár þarf að fylgjast með veðri allan sólarhringinn - það getur ritstjóri hungudiska ekki. Veðurstofan tekur þér ábyggilega vel ef þú slærð á þráðinn og berð upp þessa spurningu.

Trausti Jónsson, 23.12.2013 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg211124a
  • w-blogg181124a
  • w-blogg151124c
  • w-blogg151124b
  • w-blogg151124a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 935
  • Sl. sólarhring: 951
  • Sl. viku: 2730
  • Frá upphafi: 2413750

Annað

  • Innlit í dag: 878
  • Innlit sl. viku: 2478
  • Gestir í dag: 852
  • IP-tölur í dag: 830

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband