Hitinn komst í 22 stig

Hitinn komst í 22 stig í dag, mánudag 3. júní. Hæstur varð hann á Raufarhöfn en fleiri stöðvar náðu 20 stiga markinu. Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári sem hitinn nær 20 stigum. Það er 11 dögum síðar heldur en að meðaltali 1995 til 2009 (meðaltal fyrir önnur árabil með sambærilegum stöðvafjölda hefur enn ekki verið reiknað). Líklegt er að hiti komist einhvers staðar í 20 stig á morgun (þriðjudag) og á miðvikudag (5. júní) er einnig góð von, en hins vegar lítil á fimmtudaginn. Ástæða kólnunar sést vel á kortinu hér að neðan.

w-blogg040613

Kortið gildir um hádegi á miðvikudag. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Vindur blæs nokkurn veginn samsíða þeim og er því meiri eftir því sem línurnar eru þéttari. Litafletir sýna þykktina en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Skipt er um lit á 60 metra þykktarbili og er jaðarinn milli grænu og gulu litanna við 5460 metra. Við segjum stundum óformlega að þar byrji sumarið - dagar með þykkt lægri en þetta eru þó fjölmargir á íslensku sumri.

Gulbrúni bletturinn fyrir norðaustan land er hitinn sem nú (á mánudag) er að fara yfir landið. Lægðardragið fyrir vestan land grynnist en þokast austur á bóginn með kaldara lofti, það verður yfir okkur á fimmtudag. Við sjáum að hæðarbeygja er á jafnhæðarlínunum yfir landinu - en vindur af suðri. Sunnanáttin ein og sér segir að það verði skýjað um landið suðvestanvert, en hæðarbeygjan eykur hins vegar líkur á að að hann rífi af sér - að minnsta kosti inn til landsins.

Við sjáum að þykktin yfir vestanverðu landinu er nærri 5460 metrunum áðurnefndu - það telst mikil heppni ef hiti undir slíkri þykkt nær 20 stigum - en ef sólin skín er aldrei að vita hvað gerist. Meiri líkur eru auðvitað á sólskini í sunnanáttinni norðaustanlands og þar er þykktin líka meiri.

En lægðardragið fer sum sé yfir á fimmtudag - en hæðarhryggur fylgir í kjölfarið. Hvað svo gerist er óljóst. Úrkomusvæði á að fara yfir seint á föstudag og/eða laugardag. Von um hlýindi felst helst í því að kuldapollurinn yfir Labrador dóli til austurs vel fyrir sunnan land - en allt of snemmt er að fjalla frekar um þann möguleika. Svo virðist sem við getum í bili að minnsta kosti verið róleg yfir kuldapollinum mikla í íshafinu - í dökkbláu litunum er vetur enn ríkjandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Trausti

Kannski þekki þú til veðmálsins mikla sem fer árlega fram í Alaska. Þar hafa menn fylgst grannt með því hvenær Nenana áin ryður sig og hafa gert það í 97 ár. Menn hafa sett upp tækjabúnað sem tengdur er nákvæmri klukku til að sannreyna atburðinn. Í ár var potturinn hvorki meira né minna en $318.500.   Þegar áin hefur rutt sig telja menn að sumarið sé komið á þessum slóðum.

"The Nenana Ice Classic is a pretty good proxy for climate change in the 20th century" sagði Martin Jeffries jarðeðlisfræðingur hjá University of Alaska í Fairbanks árið 2009.

Í ár brá svo við að þetta gerðist ekki fyrr en 20. maí klukkan 14:41 (2:41PM), en svo seint hefur áin ekki rutt sig þau 97 ár sem fylgst hefur verið með henni.

http://www.alaskadispatch.com/article/20130520/97-year-old-nenana-ice-classic-sets-record-latest-breakup-river-1

http://www.nenanaakiceclassic.com/photos.htm

Listi sem sýnir hvenær þessi atburður hefur átt sér stað í tæpa öld:

http://www.nenanaakiceclassic.com/Breakup%20Log.html

Sem sagt, hér er verðugt rannsóknarefni fyrir veðurnörda

Ágúst H Bjarnason, 4.6.2013 kl. 18:06

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Sá reyndar 23°C í smástund á Raufarhöfn um kl 17:30 í dag.... en stöðugar 22°C nokkuð lengi.

Ómar Bjarki Smárason, 4.6.2013 kl. 23:39

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ágúst. Jú ég hef heyrt um þessa spákeppni - þetta er skemmtileg tilbreyting. Menn stunda það um allan heim að tengja einstakar veðurvitnaraðir við hita á norðurhveli öllu - líka í svonefndum veðurvitnafræðum. Íslenska vorið (apríl og maí) var víst það kaldasta í Alaska frá upphafi samfelldra ríkismeðaltala (1930), en alþjóðavorið (mars til maí) náði ekki meti  - og ekki maí heldur því svo rækilega hlýnaði síðustu viku mánaðarins að nægði til að hífa mánuðinn upp í 10. neðsta sæti. - En þetta eru lausafréttir, það er hins vegar opinbert að maí var sá hlýjasti frá upphafi landsmeðaltalsreikninga í Noregi. Það eru líka tíðindi. Ómar Bjarki - hiti fór mest í 21,9 stig á sjálfvirku stöðinni á Raufarhöfn í dag (4. júní), en gaman að heyra af öðrum mælingum.

Trausti Jónsson, 5.6.2013 kl. 00:56

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Mælirinn í bílnum hjá mér virðist nokkuð réttur, en gefur hitann bara upp í heilum tölum. En hitinn á Raufarhöfn var mjög stöðugur þann 4. júní og fór upp í þetta skammt sunnan við Raufarhöfn. Þar sem ég er að leita að jarðhita hefði ég auðvitað átt að setja þennan stað inn í GPS tækið! Þann 5. júní var hitinn 21°C langleiðina yfir að Öxarfirði, sem kom mér á óvart. Þetta var um kl 14.

Ómar Bjarki Smárason, 7.6.2013 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide11
  • w-1945v
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 31
  • Sl. sólarhring: 75
  • Sl. viku: 1063
  • Frá upphafi: 2354727

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 946
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband