Ţurrt loft

Mynd dagsins er fyrst og fremst valin vegna litanna - en sýnir fleira. Ţetta er samsett spákort fyrir 700 hPa-flötinn og gildir síđdegis á fimmtudag, 13. desember. Evrópureiknimiđstöđin sá um reikningana. Hungurdiskar hafa kynnt kort af ţessu tagi áđur en samt er rétt ađ fara í gegnum táknmáliđ.

w-blogg111212b3

Jafnhćđarlínur flatarins eru svartar og sýna dekametra. Hćđ 700 hPa-flatarins er oftast rétt undir ţremur kílómetrum og ţađ er 2820 metra línan sem strýkst viđ suđvestanvert Ísland. Hefđbundnar örvar sýna vindhrađa og stefnu. Rauđu strikalínurnar sýna ţykktina milli 700 og 1000 hPa. Ţetta er undantekning frá ţví sem er algengast (500/1000 hPa-ţykkt) en alveg sama á viđ - ţví hćrri sem tölurnar eru ţví hlýrra er loftiđ á hćđarbilinu.

Gráu og gulbrúnu svćđin skera mest í augu. Á gráu svćđunum er rakastig í 700 hPa hćrra en 70%. Ţar sem rakinn er yfir 90% má gera ráđ fyrir ađ ský séu í 3 km hćđ. Gera má ráđ fyrir ţví ađ aflangir dökkgráir flekkir séu tengdir úrkomusvćđum, jafnvel skilum.

Á gulu og rauđbrúnu svćđunum er loft mjög ţurrt, rakastig minna en 15% og á dekkstu brúnu svćđunum er rakastigiđ undir 5% - ţetta er auđvitađ međ ólíkindum ţurrt og getur einungis átt sér stađ í niđurstreymi - loftiđ á uppruna sinn talsvert ofar - jafnvel langt fyrir ofan.

Ţurrkur af ţessu tagi nćr aldrei niđur til jarđar [nema?] og á samsvarandi korti fyrir 850 hPa (um 1100 metra hćđ) er um 70% raki á ţessum slóđum. Ţar er hins vegar mjög ţurrt norđur af Vestfjörđum.

Á kortinu má einnig sjá litlar tölur í hvítum kössum og ţeim tengdar mjóar bláar og rauđar línur. Viđ sjáum bláu töluna 5 inni í brúna svćđinu viđ suđurströnd Íslands - og rauđa fjóra nokkru austar. Ţessar tölur sýna lóđrétta hreyfingu eins og hún reiknast í líkaninu, blátt segir frá niđurstreymi, en rautt frá uppstreymi. Mćlieiningin er afar torkennileg, Pa/s (paskal á sekúndu), okkur svelgist ekki á slíku. Talan 10 er ekki fjarri uppstreymishrađanum 1 m/s, fimm segir ţví ađ niđurstreymiđ sé um 0,5 m/s - ţađ telst mikiđ, enda nýtur loftstraumurinn trúlega ađstođar Vatnajökuls eđa Mýrdalsjökuls á floti sínu. 

Svo er auđvitađ spurning hvort ţessi ţurrkspá rćtist - og hvort viđ sjáum ţurrkinn (?).


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 647
  • Frá upphafi: 2351208

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 580
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband