Þrýstibreytingakort

Áður en tölvuspár urðu (nærri því) jafngóðar og nú er var mikið lagt í greiningarkort. Þau eru reyndar gerð enn. Á kortin eru færðar samtímaveðurathuganir á gildistíma kortsins. Hér á landi allt frá Bandaríkjunum í vestri og austur til Finnlands. Veðurfræðingur dregur jafnþrýstilínur á kortið, reynir að staðsetja veðraskil og úrkomusvæði. Út frá kortinu og breytingum frá næstu greiningu á undan er síðan reynt að meta hverjar breytingar séu líklegar næsta sólarhringinn. Já, spár náðu yfirleitt ekki meir en um það bil sólarhring fram í tímann.

Eitt þeirra atriða sem mikilvægt var að greina á kortinu voru nýlegar þrýstibreytingar. Að hefð var alltaf miðað við breytingu síðustu 3 klst. Oft voru þá dregnar „jafnþrýstibreytingalínur“, fallandi þrýstingur var einkenndur með rauðum strikalínum, en stígandi með bláum. Á milli þeirra var stundum sett „núlllína“ þar sem þrýstingur hafði ekki breyst neitt.

Af þrýstibreytingunum má ráða hvert veðurkerfi eru að hreyfast og hvort þau eru að styrkjast eða veikjast. Auk þessa komu á árum áður ýmsar reynslureglur til hjálpar - m.a. þarf að vita hvað er venjulegt og óvenjulegt. Ein þessara reglna var t.d. sú að huga átti að stormi ef þrýstingur breyttist meira en 8 hPa á þremur klukkustundum  - jafnvel þótt lægðir sýndust ekki illvígar. Mjög ískyggilegra var ef þrýstingur féll mikið vestan megin við dýpkandi lægð, þrýstibreytingar suðaustan við lægðina voru taldar merki um dýpkunarhraða hennar o.s.frv.

Við skulum nú til gamans líta á spákort sem gildir kl. 9 að morgni mánudagsins 12. nóvember (sá tími verður liðinn hjá þegar flestir lesendur lesa þetta).

w-blogg121112

Ísland er rétt ofan við miðja mynd - Bretlandseyjar í neðra hægra horni en Grænland vinstra megin. Allkröpp lægð er á Grænlandshafi og þrýstilínur (heildregnar) mjög þéttar við Ísland, enda austan- eða suðaustanstormur um landið sunnan og vestanvert.

Þrýstibreytingar síðustu 3 klst eru merktar með rauðum (fallandi) og bláum (stígandi) litaflötum. Á dökkrauða svæðinu hefur þrýstingur fallið um 6 til 8 hPa á þremur klukkustundum. Mjög skarpt lægðardrag er á mörkum rauða fallsvæðisins og hógværara stigssvæðis sunnan við. Þetta þýðir að veðrið gengur fljótt niður. Fyrr á árum var giskað á hraða lægðardragsins með því annað hvort að bera saman stöðu þess á kortinu næst á undan og reikna með svipuðum hraða - eða þá að reiknaður var þrýstivindur hornrétt á bakhlið lægðardragsins. Ekki er gott að meta hann af þessu korti (kvarða vantar) - en þó má giska á um 15  m/s (nálægt 50 km/klst). Svo virðist (en það er ágiskun) að skilin séu á kortinu um 200 km suðvestur af Reykjanesi - ágiskunin segir því að það eigi að lægja á höfuðborgarsvæðinu um 4 klst síðar - eða um kl. 13.

Nú á tímum treystum við tölvunum fyrir þessum reikningum - þeir eru miklu betri heldur en ágiskanir gerðar með reglustiku - auk þess sem greiningin er að jafnaði betri. En samt - er rétt að fylgjast vel með því sem athuganir eru að segja - þær eru sannleikurinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 49
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 690
  • Frá upphafi: 2351251

Annað

  • Innlit í dag: 45
  • Innlit sl. viku: 619
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 42

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband