Enn um sömu rigningarspá

Ađ gefnu tilefni verđur ritstjórinn enn ađ taka fram ađ hungurdiskar spá ekki um veđur heldur fjalla um spár og velta ţeim á ýmsar hliđar. Leitiđ annađ eftir alvöruspám. Nćsti pistill á undan ţessum fjallađi um úrkomuspá sem gildir kl. 18 á mánudag 2. júlí. Viđ lítum nú á nýjustu reiknirunu evrópureiknimiđstöđvarinnar (frá hádegi 1. júlí) og tilraun hennar til ađ spá um úrkomu á sama tíma, kl. 18 á mánudag.

w-blogg020712

Sem fyrr tákna litir úrkomuákefđ á 3 klukkustundum, frá kl. 15 til 18. Nú er mestri úrkomu spáđ viđ Faxaflóa - en hámarkiđ í gćr var nyrđra. Á litakvarđanum má sjá ákefđina í tölum.  Varla er nokkur von til ţess ađ spá sem ţessi rćtist í ţeim smáatriđum sem hún gefur til kynna. En hámarkiđ er í bláum bletti er yfir Ljósufjöllum og ţar er spáđ 5 til 10 mm á ţremur klukkustundum. Engin leiđ er ađ taka ţađ bókstaflega.

Í dag (sunnudaginn 1. júlí) komu fáeinir skúragarđar yfir Suđvestur- og Vesturlandi vel fram á veđursjánni á Miđnesheiđi. Gríđarleg úrkoma mćldist á Hellisheiđar- og Bláfjallasvćđinu, yfir 50 mm í Bláfjöllum og klukkustundarhámark ţar var 14,1 mm milli kl. 16 og 17. Í veđurlagi sem ţessu er úrkomumagni gríđarlega misskipt.

Ţađ var athyglisvert ađ skúragarđurinn sem gekk yfir Bláfjöll náđi talsvert á haf út á veđursjármyndunum. Ţađ bendir til ţess ađ hann hafi ekki veriđ eingöngu knúinn međ upphitun ađ neđan heldur hafi óstöđugt loft ofar komiđ viđ sögu.

Á myndinni ađ ofan má sjá 0°C jafnhitalínu í 850 hPa liggja yfir kortiđ bćđi norđan og sunnan viđ land. Á milli línanna er hiti lítillega yfir frostmarki (plúsmerkin). Ţeir sem fylgdust vel međ skýjafari vestanlands í dag (utan meginskúrasvćđanna) sáu fallega góđviđrisbólstra sem engin úrkoma féll úr. Inn til landsins voru aftur á móti háir og lođnir klakkar međ ţráđartoppa (ískristallar). Úr ţeim féllu demburnar.

Lengst af var í dag ţunnt og ósamfellt netjuskýjalag einnig á lofti. Háloftaathuganir benda til ţess ađ ţađ hafi veriđ í um 4500 metra hćđ. Ef til vill hafa öflugustu klakkarnir náđ ađ brjótast upp úr ţví.

Ástandiđ í háloftunum á ađ vera svipađ á morgun og var í dag nema hvađ íviđ rakara á ađ vera í lćgri lögum veđrahvolfsins. Verđi svo eiga skúrir morgundagsins möguleika á ađ ná sér upp víđar en í dag - m.a. á ţeim svćđum sem sjá má á kortinu hér ađ ofan.

Hvernig svo fer međ ţađ er auđvitađ óvíst. Reiknisyrpa bandarísku veđurstofunnar frá ţví kl. 18 í dag (sunnudag) gerir t.d. minna úr úrkomunni heldur en evrópureiknimiđstöđin. Á ţriđjudag er enn búist viđ svipuđu stöđugleikaástandi - en síđan hreinsar betur frá í háloftunum ţegar hitinn ţar á ađ hćkka lítillega. Hćkki hiti meir í háloftum en niđur viđ jörđ vex stöđugleiki og skúrir eiga mun erfiđara uppdráttar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg160524a
  • w-blogg160524i
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 14
  • Sl. sólarhring: 353
  • Sl. viku: 1164
  • Frá upphafi: 2354471

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 1050
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband