Ađskiljanleg desembermet

Nú verđa rakin nokkur met desembermánađar sem ekki hefur veriđ fjallađ um á ţessum vettvangi áđur.

Sólarhringsúrkomumet desembermánađar er ekki gamalt, frá ţeim 18. 2007. Ţá mćldist sólarhringsúrkoman á Nesjavöllum 191,2 mm. Hér er átt viđ réttan úrkomusólarhring. Ţá er mćlt kl. 9 og úrkoman síđan kl. 9 morguninn áđur telst sólarhringsúrkoma. En ...

á annan dag jóla 1926 mćldist sólarhringsúrkoma í Vík í Mýrdal 215,8 mm - en féll ekki rétt á mćlisólarhringinn. Svo vildi til í Vík ađ ţađ byrjađi ađ rigna kl. hálf tólf (ađ ţáverandi ísl. miđtíma) ađ kvöldi 25. Um morguninn voru 122,5 mm komnir í mćlinn. Áfram rigndi linnulítiđ og kl. hálf tólf ađ kvöldi 26., sólarhring eftir ađ úrfelliđ hófst, mćldi veđurathugunarmađurinn úrkomuna aftur og höfđu ţá 93,3 mm bćst viđ morgunathugun. Ţetta met er ţví ekki alveg sambćrilegt viđ önnur sem ćtíđ eru fengin međ mćlingunni frá kl. 9 til 9 [8 til 8 ađ ţáverandi miđtíma]. Stöđin í Vík byrjađi ađ athuga 1925. Mikil skriđuföll urđu í ţessu úrfelli og lá m.a. viđ ađ manntjón yrđi ţegar skriđa féll á tvo bći ađ Steinum undir Eyjafjöllum

Nokkrir stađir eiga yfir 130 mm sólarhringa í desember, Andakílsárvirkjun í Borgarfirđi á 162,3 mm, ţ.5. 1995. Hólar i Dýrafirđi sama dag og ár, 131,8 mm, Seyđisfjörđur 135,3 mm ţ. 30. 1993, Kvísker í Örćfum 175,3 mm, ţann 20. 2006 og 173,3 mm 2. dag mánađarins 1989 og 136,2 mm í Snćbýli í Vestur-Skaftafellssýslu ţann 7. 1998.

Mest úrkoma í desember öllum kom í mćli á Kvískerjum í desember 2006, 770,4 mm. Í desember 1943 mćldist úrkoman í Fagradal í Vopnafirđi ađeins 0,4 mm. Ţađ er rétt á mörkum ţess ađ viđ trúum ţví, en látum ţađ standa í bili. 

Mesta sólarhringsúrkoma á sjálfvirkri stöđ í desember mćldist viđ Ölkelduháls ţann 10. áriđ 2008, 138,4 mm.

Mesta sólarhringsúrkoma í Reykjavík í desember er 55,1 mm en ţeir mćldust ţann 18. 1938. En talan 55,4 mm er líka til í Reykjavík. Sú úrkoma mćldist á sjálfvirku stöđinni á Veđurstofutúninu ţann 30. áriđ 2007 i eftirminnilegu slagviđri eđa eins og segir í yfirliti um veđriđ:

Talsvert tjón í hvassviđri og vatnsaga um suđvestanvert landiđ og víđa flćddi vatn í hús og truflađi umferđ á götum í Reykjavík.

Mesta snjódýpt á landinu í desember mćldist á Hornbjargsvita ţann 31. áriđ 1966, 200 cm. Ţetta er auđvitađ nokkuđ ónákvćm tala. Nćst ţessu koma 175 cm á Kálfsárkoti í Ólafsfirđi ţann 18. 1992 og 174 cm á Sandhaugum í Bárđardal 15. og 16. desember 1972.

Mesta snjódýpt í Reykjavík í desember mćldist 32 cm. Ţađ var ađ morgni gamlársdags 1978 eftir afskaplega minnisverđa snjókomu. Sama snjódýpt mćldist einnig 21. og 22. 1984. Á Akureyri var snjódýpt talin 100 cm dagana 7. til 9. áriđ 1965.

Ég var fyrir nokkrum dögum búinn ađ rćđa háţrýstimet desembermánađar í pistli. Ég hef fjallađ nokkuđ ítarlega um lágţrýstimet mánađarins á vef Veđurstofunnar, en ţađ er jafnframt lágţrýstimet árins.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Óviđkomandi ţessum pistli, en í tilefni ţingsályktunartillögu 14 ţingmanna um ađ seinka klukkunni, ţá vćri gaman ađ sjá hitastig á völdum stöđum um landiđ; kl. 17.30.,18.30. og 19.30. Ef viđ gefum okkur ađ kvöldmatartími sé ađ jafnađi kl. 18.30 og ţeir sem vilja seinka klukkunni, eru ţá ađ borđa miđađ viđ núverandi tíma, kl. 19.30.

Ég er hins vegar í ţeim hópi sem vill frekar flýta klukkunni ef eitthvađ er og myndi ţví borđa kl. 17.30.

Ég tala um ţetta, ţví margir vilja fá tćkifćri til ađ nýta sólina og ylinn betur í frítíma sínum ađ loknum vinnudegi, en sólin er ađ síga á bak viđ fjöllin, einmitt um núverandi kvöldmatarleiti, hér á Reyđarfirđi, eins og víđast hvar í dölum og fjörđum á Íslandi.

Ţađ munar miklu ef mađur vill borđa úti; á veröndinni/sólpallinum eđa í skógarrjóđri, hvort sólar nýtur eđa ekki. Ţví vćri áhugavert ađ sjá hitastigsmuninn á ţessum tímasetningum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.12.2010 kl. 16:17

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ţarna ćtti nú frekar ađ standa "...miđađ viđ núverandi sólstöđu (ekki tíma), kl. 19.30.".

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.12.2010 kl. 16:20

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Gunnar. Ég er alfariđ á móti ţví ađ klukkuhringl verđi tekiđ upp aftur, ţađ er veđurathugunum mjög erfitt og ruglingslegt. Ţví miđur er ég ekki međ tölur frá Kollaleiru fyrir meira en 3 ár viđ hendina, en ţú getur velt vöngum yfir ţeim:

Kollaleira í júní
klst hiti breyting á klst
1 5,66 -0,11
2 5,53 -0,13
3 5,46 -0,07
4 5,64 0,18
5 5,81 0,17
6 6,71 0,90
7 7,31 0,60
8 7,77 0,46
9 8,23 0,46
10 8,53 0,30
11 8,90 0,37
12 9,34 0,44
13 9,51 0,17
14 9,47 -0,04
15 9,32 -0,15
16 9,20 -0,12
17 8,93 -0,27
18 8,71 -0,22
19 8,26 -0,45
20 7,72 -0,54
21 7,27 -0,45
22 6,64 -0,63
23 6,11 -0,53
24 5,77 -0,34
Hér er međalhiti á klukkustundar fresti á Kollaleiru í júnímánuđi. Aftasti dálkurinn sýnir hitabreytingu frá ţví klukkustund áđur. Hiti fellur t.d. um 0,27 stig milli kl. 16 og 17. og svo framvegis. Auđvitađ munar meiru á sólskinsdögum en ég er ekki međ gögn heimaviđ til ađ finna út úr ţví. Lesa má um dćgursveifluna almennt í greinargerđ minni frá 2002:

http://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/greinargerdir/2002/02030.pdf

Trausti Jónsson, 15.12.2010 kl. 19:16

4 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Má ekki reyna ađ brjóta niđur fjöllin? Eđa ţá ađ sćtta sig viđ náttúrulegar ađstćđur.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 15.12.2010 kl. 20:38

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk kćrlega fyrir ţetta, Trausti. Ţú ert greinilega öđlingur

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.12.2010 kl. 22:26

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 44
  • Sl. sólarhring: 226
  • Sl. viku: 1330
  • Frá upphafi: 2352393

Annađ

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 1199
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband