Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2017

Hlýir og kaldir dagar

Leikur dagsins fellst í því að telja hlýja og kalda daga í Reykjavík frá 1920 til 2016 og sjá hvernig þeir skiptast á ár og tímabil.

Hlýr dagur telst sá sem er meðal þeirra fimm hlýjustu í safni almanaksbræðra sinna á tímabilinu öllu. Árin eru 97 og hver almanaksdagur á því 97 bræður. Þeir fimm hlýjustu eru þá kallaðir hlýir, en þeir fimm köldustu kaldir. Ef tilviljun réði væru um 19 kaldir og hlýir dagar að jafnaði á hverju ári. Auðvitað er þetta nokkuð subbulegt - en látum gott heita.

Hlýir dagar í Reykjavík 1920 til 2016

Lítum fyrst á dreifingu hlýju bræðranna. Sjá má mikla klösun - er svo má kalla - á línuritinu má frekar sjá fjallgarða heldur en staka tinda.

Flestir söfnuðust hlýju dagarnir saman árið 2010, 59 - allstór kór, en fáliðaðir voru þeir 1986 - tveir sungu veikum rómi. Rauða línan sýnir 10-árakeðju - við sjáum að hún fylgir í aðalatriðum meðalhita í gegnum árin - betur heldur en einstök ár gera. 

Kaldir dagar í Reykjavík 1920 til 2016

Köldu dagarnir sýna auðvitað aðra mynd. Þeir voru flestir í kringum 1980, 1979 og 1983 þar efst á stalli með 58 kalda daga hvort ár - en hlýskeiðin auðvitað rýrari. Svo brá við árið 2016 að enginn kaldur dagur kom til Reykjavíkur - eina árið á öllu tímabilinu sem þeim árangri náði. 

Það er varasamt að fara að leggja allt of mikið út af þessu (margs konar gildrur á ferð) og verður ekki gert hér. 


« Fyrri síða

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a
  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 38
  • Sl. sólarhring: 289
  • Sl. viku: 1054
  • Frá upphafi: 2351929

Annað

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 957
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband