9.2.2014 | 02:04
Af röstinni
Í veðurfréttum frá útlöndum er sífellt verið að tuða um það sem þar er kallaðthe jet stream, þotufljótið - með ákveðnum greini. Ákveðni greinirinn gerir það sem greinar gera, greinir þetta ákveðna fljót frá öðrum slíkum - þau eru fleiri. Ritstjóri hungurdiska notar alltaf íslenska orðið röstsem þýðingu erlenda hugtaksins, en aftur á móti orðið skotvindur um það sem alþjóðlega er kallað jet streak, kjarnasvæði rastarinnar - þar sem hún er öflugust.
Vindur er stríður í röstinni (rétt eins og straumur í röstum á sjó) - þar sjást jafnvel 100 m/s. Hún er öflugust í kringum veðrahvörfin - en niður úr henni liggja oft hallandi hes í átt til jarðar. Þau sjást vel á þeim 500 hPa-norðurhvelskortum sem ritstjórinn heldur hvað mest upp á.
En veðrarastirnar eru sumsé fleiri, sé vafi um hverja þeirra er átt neyðast menn til þess að greina þær frekar - og bæta orðinu polarframan við jet stream, the polar jet stream. Hér kemur þá að ákveðnum vandræðum varðandi íslenska þýðingu - en meðan ekki finnst betra orð skulum við tala um heimskautaröst, eða þá norðurslóðaröst(a-ið á enda heimskauta- fer reyndar í taugarnar á ritstjóranum - en það er svo margt sem gerir það).
Norðurslóðaröstin ráfar oftast um langt frá heimskautum og er oftast ekkert sérstaklega polar heldur ef út í það er farið. Það er ekkert mjög oft sem hún liggur yfir Ísland eða í nágrenni landsins. Þess vegna hefur hún aldrei verið neitt uppáhalds í íslenskum veðurfréttum - tæpast að veðurfréttaneytendur hafi nokkru sinni rekist á hana.
Hún kemur þess meira við sögu á suðlægari breiddarstigum og sker úr um veður. Í Bandaríkjunum skiptir mjög miklu máli hvoru megin garðs verið er á vetrum, norðan eða sunnan við. Í Evrópu skiptir hins vegar mestu máli að á jöðrum rastarinnar verða til öflugar lægðir sem berast síðan með henni inn yfir Evrópu.
Þannig hefur ástandið í Vestur-Evrópu verið nú um langa hríð og sér ekki lát á. Kortið hér að neðan sýnir vind í 300 hPa-hæð um hádegi á sunnudag (9. febrúar) í kringum mestallt norðurhvel.
Vanir átta sig strax á kortinu en þar sýna litlar örvar vindstefnu en litir vindstyrk. Einnig má sjá jafnþrýstilínur við sjávarmál - sé þrýstingur 980 hPa eða neðar. Við sjáum nær samfellda röst allt vestan frá Kyrrahafi austur um Bandaríkin og til Spánar. Svipuð staða hefur verið uppi lengst af frá því fyrir jól hérna Atlantshafsmegin.
Yfir Norður-Afríku og austur um Asíu er líka röst. Þetta er líka norðurslóðaröst - en þó er þetta sennilega hes niður úr hvarfbaugsröstinni (sub-tropical jet stream) sem er öflugust aðeins ofar - veðrahvörfin eru mun hærri við jaðar hitabeltisins. Á vetrum renna rastirnar tvær að miklu leyti saman yfir Austur-Asíu - þar eru skotvindar oftast öflugastir (fyrir utan myndina).
Sú hugmynd hefur skotið upp kollinum að samskipti norðurslóða- og hvarfbaugsrastanna Atlantshafsmegin í heiminum geti verið með öðrum hætti heldur en nú er. Steli hvarfbaugsröstin systur sinni færist lægðagangur enn sunnar en hér er sýnt - þá breytist sú sérstaka (en varla nauðsynlega) staða að vestanvindabeltið við jörð sé einmitt á hagstæðasta stað - eins og nú er.
Syðri staða getur lokað Golfstrauminn (Norður-Atlantshafsstrauminn) af - þannig að lítið af honum komist norður fyrir 50. breiddarstig. Hvað þá? Sömuleiðis getur verið óheppilegt að meginás vestanvindabeltisins fari norður fyrir Nýfundnaland (á því er trúlega minni hætta) því lóðrétt hringrás Norður-Atlandshafs gæti þá raskast - en hvernig?
Látum nú af vitleysunni (eða hvað)?
Annað: Í dag (laugardaginn 8. febrúar) kom upp sú skemmtilega staða að Önundarhorn undir Eyjafjöllum skilaði bæði lægsta lágmarki landsins í byggð og hæsta hámarkinu.
Sjá viðhengið.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.3.): 2
- Sl. sólarhring: 196
- Sl. viku: 1711
- Frá upphafi: 2452463
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 1571
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
"Í veðurfréttum frá útlöndum er sífellt verið að tuða..." :)
"Mikið hefur snjóað í Tókýó og á fleiri svæðum í Japan um helgina. Sjö eru látnir og fleiri en þúsund manns eru slasaðir vegna vetrarveðursins. 27 sentímetra jafnfallinn snjór mældist í Tókýó í gærkvöldi en ekki hefur snjóað meira í höfuðborginni í 45 ár, að sögn veðurfræðinga."
> http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/02/09/sjo_latnir_i_tokyo_vegna_vetrarvedurs/
Óttarlegt tuð þetta!
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 9.2.2014 kl. 11:31
Takk fyrir Trausti. Betur sjá augu en auga. Þeim mun fleiri sem koma að skýringum á veður-heildarmyndinni, þeim mun víðsýnni og réttari verður sú mynd. Það er allra hagur að fá sem flestar hliðar inn í fræðslu-veðurfréttirnar.
Fjöl-mennt er máttur.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.2.2014 kl. 22:59
Um kvöldmatarleytið gerðist sennilega sögulegur lítill vindur á Stórhöfða. Og það í febrúarmánuði.
Eða er það kannski ímyndun hjá mér?
Pálmi Freyr Óskarsson, 10.2.2014 kl. 01:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.