Köld febrúarbyrjun

Fyrstu tíu dagar febrúarmánaðar hafa verið kaldir hér á landi (þrátt fyrir methlýindi á heimsvísu). Meðalhiti í Reykjavík er -3,6 stig, -3,5 stigum neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020 og -4,0 stig neðan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er næstkaldasta febrúarbyrjun í Reykjavík það sem af er öldinni, lítillega kaldara var árið 2009. Hlýjastir voru þessir dagar hins vegar 2017, meðalhiti þá +3,4 stig. Á langa listanum raðast hitinn nú í 138. hlýjasta sæti (af 152). Kaldast var 1912, meðalhiti þá -7,8 stig, en hlýjast 1965, meðalhiti +6,0 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú -5,0 stig, raðast í 78. sæti af 89 fyrirliggjandi.
 
Við Faxaflóa eru dagarnir tíu almennt þeir köldustu það sem af er öldinni, en á öðrum spásvæðum þeir næstköldustu, nema á Vestfjörðum, þar eru þeir í þriðjakaldasta sæti (22.hlýjasta). Á einstökum veðurstöðvum er neikvætt vik (miðað við síðustu tíu ár) mest á Þingvöllum, -7,9 stig, en minnst er neikvæða vikið á Hornbjargsvita, -2,3 stig.
 
Úrkoma hefur mælst 19,3 mm í Reykjavík og er það um 60 prósent meðalúrkomu. Á Akureyri hafa mælst 48 mm sem er meir en tvöföld meðalúrkoma (óstaðfest tala þó).
 
Sólskinsstundir hafa mælst 32,3 í Reykjavík, 13 stundum fleiri en að meðaltali. Á Akureyri hafa mælst 6,0 sólskinsstundir, rétt undir meðallagi.

Bloggfærslur 11. febrúar 2024

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 318
  • Sl. viku: 1828
  • Frá upphafi: 2353030

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1638
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband