Enn rís hryggurinn

Hćđarhryggurinn fyrir vestan land og yfir Grćnlandi virđist enn vera ađ ganga í endurnýjun lífdaga ţar sem hann hefur nú gengiđ aftur síđan í maí (og ađ vissu leyti frá ţví í apríl).

Ţađ sló lítillega á hann í gćr (föstudag) og í dag (laugardag) og á morgun hneigir hann sig augnablik fyrir köldu lćgđardragi sem kemur yfir Grćnland. Síđan rís hann aftur upp af endurnýjuđum krafti. Fyrra kortiđ sýnir ţetta í líki 500 hPa hćđar- og ţykktarspár evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir kl. 18. á mánudag (9. júlí).

w-blogg080712a

Táknmál kortanna er ţađ sama og venjulega. Jafnhćđarlínur eru svartar og heildregnar en ţykktin er sýnd sem litađir fletir međ 60 metra bili. Mörkin á milli grćnu og gulu litanna eru viđ 5460 metra.

Kuldapollurinn rétt austan viđ land er býsna snarpur en fer hratt hjá til suđurs og endurnýjar leiđindin yfir Bretlandi. Vestan Grćnlands er mikil sunnanátt sem rífur mikiđ af mjög hlýju lofti til norđurs. Viđ sjáum ađ ţađ er 5580 metra ţykktarlínan sem liggur norđur međ Grćnlandi. Hvort djúpir firđir Grćnlands njóta hitans er óvíst - en ţađ gćti veriđ, verst er hvađ veđurstöđvar eru fáar ţar um slóđir.

En framhaldiđ er athyglisvert - ef rétt er spáđ (sem aldrei er ađ vita). Viđ lítum ţví á annađ kort sem gildir ţremur sólarhringum síđar - um hádegi á fimmtudag.

w-blogg080712b

Ţarna hefur hćđarhryggurinn alveg lyft sér út úr heimskautaröstinni og myndađ gríđarmikla fyrirstöđuhćđ yfir Grćnlandi sem mun trúlega reika um í nokkra daga ţar til röstin grípur hana - eđa ţá ađ hún kólnar smám saman upp og flest út. Ţetta er gott ástand fyrir íslenska sóldýrkendur - en gallinn er sá ađ auđvelt er fyrir tiltölulega kalt loft úr norđri ađ undirstinga hlýindin efra. En hćđabeygja ríkir og henni fylgir sjaldnast úrkoma sem talandi er um. (Jú, ţađ eru víst undantekningar á ţví - en eiga ekki viđ hér).

En ţađ er heldur óábyrgt af hungurdiskum ađ sýna fimm daga spá - oft er lítiđ á ţeim ađ byggja. En sagan sem reiknimiđstöđin býđur upp á um hrygginn sem verđur ađ fyrirstöđu er nokkuđ sannfćrandi - bandaríska veđurstofan er í stórum dráttum á svipuđu máli.

Allrosalegur kuldapollur (miđađ viđ árstíma) er viđ Novaya Zemlya, hann var viđ Norđaustur-Grćnland fyrir nokkrum dögum og virđist helst ćtla ađ taka lćgđahringinn um norđurskautiđ. Alltaf rétt ađ hafa augun á svona nokkru. 


Bloggfćrslur 8. júlí 2012

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 327
  • Sl. viku: 1827
  • Frá upphafi: 2353029

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1637
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband