Kaflaskipt ár

Fyrstu ţrjá mánuđi ársins gekk á međ úrkomu og skaki en síđan stytti upp og róađist. Hvort nú breytir um aftur er enn ekki ljóst - međan viđ bíđum frekari frétta af ţví skulum viđ líta á tvö línurit sem sýna stađfestu veđurlagsins vel.

w-blogg190712a

Myndin sýnir reiknađa norđanátt á landinu öllu á hverjum degi frá 1. janúar til 30. júní 2012. Hér tákna jákvćđ gildi ađ međalvindur hafi veriđ úr norđri en neikvćđ sýna hvenćr suđlćgar áttir voru ríkjandi. Kvarđinn er í m/s. Lárétti kvarđinn markar tímann og er merki sett viđ 15. hvers mánađar. Hér virđast skiptin eiga sér stađ um 10. apríl. Fyrir ţann tíma er talsverđur öldugangur í áttinni - hún er ţó lengst af suđlćg ţađ eru ađeins örfáir dagar sem ná yfir núlliđ - í fjórum köstum.

Eftir 10. apríl er áttin hins vegar oftast úr norđri - helsta undantekningin er í hlýindunum í lok maí, um ţađ leyti var sunnanátt í nokkra daga og bjó til hćđarhrygginn mikla sem síđan hefur ráđiđ veđri hér - og hefur endurnýjađ sig nokkrum sinnum.

Umskiptin sjást líka mjög vel á hinni myndinni, en hún sýnir daglegt hlutfall stöđva ţar sem úrkoma mćlist 0,5 mm eđa meir. Tölurnar eru ţúsundustuhlutar (prómill). Talan ţúsund merkir ađ úrkoma hafi mćlst 0,5 mm eđa meir á öllum veđurstöđvum landsins. Ţađ hefur reyndar ekki gerst nema einu sinni á ţessari öld (á ţorláksmessu 2008).

Á sama hátt ţýđir talan núll ađ úrkoma hafi hvergi mćlst 0,5 mm eđa meiri. Ţađ hefur gerst ađ međaltali um fjórum sinnum á ári á öldinni en ţađ sem af er ţessu ári finnast tíu slíkir dagar (en ţeim fćkkar líklega eitthvađ ţegar upplýsingar hafa borist frá öllum stöđvum).

w-blogg1907112

Hér sjást kaflarnir tveir sérlega vel. Fram til 10. apríl er úrkoma 0,5 mm eđa meiri á nćrri tveimur ţriđju hlutum stöđva og ađeins sárasjaldan á fćrri stöđvum en 40 prósentum. Á seinna skeiđinu er međaltaliđ hins vegar ađeins um 22 prósent - langt undir međallagi. Ţađ er skemmtilegt ađ sjá hvernig úrkomudagarnir komu ţá í 5 til 6 gusum međ um ţađ bil 10 daga millibili.

En hvađ gerist nú? Óvenju djúp lćgđ stefnir í átt til landsins. Upplagt er ađ prófa mćlistikuna sem hér var fjallađ um fyrir nokkrum dögum. Hversu óvenjuleg verđur hún? Síđan er spurningin hvort hún nćr ađ róta upp í bylgjumynstrinu ţráláta ţannig ađ ţađ falli í annan farveg en veriđ hefur.


Bloggfćrslur 19. júlí 2012

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 75
  • Sl. sólarhring: 403
  • Sl. viku: 1633
  • Frá upphafi: 2352770

Annađ

  • Innlit í dag: 66
  • Innlit sl. viku: 1468
  • Gestir í dag: 66
  • IP-tölur í dag: 66

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband