Óbreytt ástand (samt svalara)

Hæðarhryggurinn yfir Grænlandi og hafinu þar suður af virðist ætla að verða þrálátur. Helsta tilbreytingin er sú hversu nálægt hryggjarmiðjan hefur verið hverju sinni. Þegar hún er nærri ríkir hæðarbeygja á vindi en henni fylgir oftast niðurstreymi og þar með er bjartviðri ríkjandi um talsverðan hluta landsins. Síðan koma stöku dagar þegar hryggjarmiðjan þokast fjær og lægðardrög ganga hjá. Þeim fylgir lægðarbeygja, þyngri skýjahula og meiri líkur á skúrum. Í dag (laugardag) gera allar fáanlegar spár ráð fyrir því að þetta ástand haldi áfram eins langt og séð verður. Sumir fagna því sjálfsagt - en öðrum þykir miður.

Í dag (laugardag) vorum við í hæðarbeygjuástandi - veikur þverhryggur lá úr vestri yfir Ísland. Sólin gat því skinið baki brotnu og víða varð hlýtt inn til landsins - einn besti dagur sumarsins segja margir. En næsta lægðardrag fer hjá á sunnudag og mánudag. Því fylgir heldur kaldara loft úr norðri og skýjabakki. Hann er kominn inn yfir Vesturland þegar þetta er skrifað. Úrkoma gæti fallið - en reikningar gera heldur lítið úr henni. En lítum á 500 hPa spá sem gildir kl. 12 á sunnudag.

w-blogg240612

Jafnhæðarlínur eru svartar og heildregnar og sýna hæð 500 hPa-flatarins í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Línurnar eru hvergi þéttar nema yfir sunnanverðum Bretlandseyjum og Niðurlöndum - trúlega með leiðindaveðri. Að vanda teygir hæðarhryggurinn sig frá Nýfundnalandi og norður yfir Grænland. Austan í hryggnum er lægðardrag sunnudagsins og hreyfist suðsuðaustur. Því fylgir dálítill kuldapollur.

Það sjáum við af jafnþykktarlínunum en þær eru rauðar og strikaðar - sömuleiðis í dekametrum. Því meiri sem þykktin er því hlýrra er í neðri hluta veðrahvolfs. Í dag (laugardag) var þykktin yfir landinu um 5480 metrar þannig að kólnunin sem fylgir lægðardraginu er ekki mikil - en ef skýjað verður munar mestu um sólarleysið. Ekki skal um það spáð á þessum vettvangi.

En eftir að lægðardragið fer hjá nálgast hryggjarmiðjan aftur með heldur hlýrra lofti og hæðarbeygju - þar til næsta lægðardrag kemur úr norðri um eða eftir miðja viku. Spurning hvað síðdegisskúrir Suðurlands gera þessa daga.


Bloggfærslur 24. júní 2012

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide11
  • w-1945v
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 1059
  • Frá upphafi: 2354723

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 943
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband