Smávegis af júní 2024

Það var kalt í júní hér á landi. Meðan við bíðum eftir endanlegum tölum frá Veðurstofunni skulum við líta á stöðuna í háloftunum - og sjá hvernig meðalhiti spásvæðanna raðast miðað við aðra júnímánuði það sem af er öldinni. Landsmeðalhiti í byggð reiknast 7,7 stig, nánast það sama og í júní 2015, en nokkru hærra heldur en var í júní 2011. Þá var júní sérlega kaldur.

Norðanátt var ríkjandi í háloftunum í mánuðinum. Hún var þó meiri í júní 2019 og 2012 heldur en nú, en þá var hæð 500 hPa-flatarins nokkru meiri en nú - og loftið því hlýrra - annað hvort vegna þess að það átti uppruna af suðlægari slóðum - eða niðurstreymis austan Grænlands naut í ríkara mæli heldur en nú. 

w-blogg010724a

Hér má sjá meðalhæð 500 hPa-flatarins í júní. Litirnir sýna vikin, ráða má ríkjandi vindátt af jafnhæðarlínunum og litirnir gefa til kynna hversu mikið áttin víkur frá meðallagi. Norðanátt greinilega talsvert algengari en venjulegt er. 

Ef við leitum að „ættingjum“ þessa mánaðar kemur júní 1952 fljótt upp. Kortið hér að neðan sýnir stöðuna þá - að mati era20c-endurgreiningarinnar. 

w-blogg010724c

Afskaplega sviplíkt kort, nema norðanáttin var enn ákveðnari heldur en í nýliðnum júní. Reyndar vekur athygli að þótt líkindin með þessum tveimur kortum séu mikil - og að okkur flestum hafi fundist kalt var mun kaldara í júní 1952 heldur en nú, sérstaklega á norðausturhluta landsins. Meðalhiti á Akureyri var þá aðeins 5,9 stig og aðeins vitað um tvo eldri og enn kaldari júnímánuði þar, kaldastur var júní 1882, meðalhiti 4,5 stig. Enn lægri voru tölurnar við ströndina, 2,5 stig í Skoruvík á Langanesi og 3,4 stig á Þorvaldsstöðum í Bakkafirði. Þá voru 11 alhvítir morgnar í Möðrudal. 

Svo vill til að ritstjóri hungurdiska er einmitt þessa dagana að vinna í yfirliti ársins 1952. Má þar lesa um hvítasunnuhretið mikla þetta ár og kuldana upp úr því (og marga fleiri athyglisverða veðurviðburði). 

En aftur að nýliðnum júní:

w-blogg010724b

Taflan sýnir röðun meðalhita á spásvæðunum í samanburði við aðra júnímánuði á þessari öld. Þetta er sá næstkaldasti á tveimur spásvæðanna, Norðurlandi eystra og við Breiðafjörð. Hæst raðast hitinn á Suðausturlandi, þar finnum við sex kaldari júnímánuði á öldinni. 

Dagurinn í gær, 30.júní var mjög hlýr, sérstaklega um landið norðan- og austanvert og sömuleiðis kom hár hiti á stöku stað um landið norðvestanvert á óvart. Ritstjórinn reiknar daglega það sem hann kallar hitabylgjuhlutfall, hlutfall þeirra stöðva í byggð þar sem hiti nær 20 stigum eða meira. Í gær náði þetta hlutfall 30 prósentum stöðva - sem er býsna hátt. Ekki þarf þó að fara meir en þrjú ár aftur í tímann til að finna hærra hlutfall í júní, það var bæði 26. og 29. júní 2021 - og þann 30. júní það ár var hlutfallið nærri því það sama og nú (29,5 prósent) - ómarktækur munur. 

En hitinn gekk fljótt hjá. Fleygur af hlýju lofti kom langt sunnan úr höfum. Svo vel hitti á að háloftaathugun á Keflavíkurflugvelli náði mælingu meðan hann fór þar yfir. Hiti í 850 hPa mældist 12,4 stig, jafnhátt og hæst hefur mælst í júní áður og í 700 hPa hefur aðeins tvisvar mælst hærri hiti í júní. Ekki hjó nærri metum ofar. Nokkuð hvasst var í lofti í gær og hefur það átt þátt í að auðvelda hitamet á fáeinum stöðvum - umfram það sem almennt gerist og algengt er. Háloftahlýindin voru mjög skammvinn, tólf tímum síðar hafði hiti í 850 hPa fallið úr 12,4 stigum niður í 1,0 stig og í 700 hPa úr 5,0 í -3,2 stig. 

Við þökkum BP að vanda fyrir kortagerðina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg031124c
  • w-blogg031124b
  • w-blogg031124a
  • w-blogg311024a
  • w-blogg311024b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.11.): 136
  • Sl. sólarhring: 138
  • Sl. viku: 1604
  • Frá upphafi: 2407004

Annað

  • Innlit í dag: 124
  • Innlit sl. viku: 1440
  • Gestir í dag: 112
  • IP-tölur í dag: 112

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband