Aldur landsdćgurmeta

Stöđugar fréttir berast frá útlöndum um hitametafall, langoftast er veriđ ađ tala um met sem tengjast almanaksdegi, hćsti eđa lćgsti hiti sem mćlst hefur viđkomandi almanaksdag, ýmist ţá á einstökum veđurstöđvum eđa í heilu landi. Ţađ er oft erfitt ađ ráđa í raunverulega merkingu ţessara frétta. Ţess er til dćmis sjaldan getiđ hversu löng mćlitímabil er miđađ viđ. 

Ţađ gefur auga leiđ ađ fyrsta ár sem mćlingar eru gerđar á stöđ eru hámarks- og lágmarksmet slegin á hverjum degi. Nćsta ár verđa ţau fćrri - og svo koll af kolli. Á stöđ sem athugađ hefur í hálfa öld má búast viđ um 7 hámarks- og 7 lágmarksdćgurmetum ár hvert - haldist veđurfar nokkurn veginn óbreytt. Fari veđurfar hlýnandi má búast viđ ţví ađ ný hámarksmet verđi flein en lágmarksmetin. Um ţetta höfum viđ fjallađ hér á hungurdiskum oftar en einu sinni. „Sćmilegt“ samband reynist milli hlutfalls fjölda nýrra hámarks- og lágmarksdćgurmeta á landinu og međalhita ársins. 

Fyrir allmörgum árum bjó ritstjóri hungurdiska til skrá yfir hćsta og lćgsta hita sem mćlst hefur á landinu alla daga ársins. Ţessi skrá er ekki endilega mjög traustvekjandi. Í henni er fjöldi mćlinga sem varla myndu standast nákvćma skođun. Kemur margt til sem viđ skulum ekki ergja okkur á hér og nú. Annađ sem verđur ađ hafa í huga er ađ mćlihćttir hafa breyst á ţeim tíma sem lagđur er undir. Hámarksmćlar voru á fáum stöđvum á árum áđur (lágmarksmćlar fleiri) auk ţess sem mćliskýli hafa breyst. Ţrjár ađaltegundir skýla (og fáeinar sjaldgćfari) hafa veriđ í notkun. Allar tegundirnar hafa kosti og galla, gallarnir koma helst fram einmitt ţegar meta er ađ vćnta. Hefđu mćlingar veriđ gerđar á nákvćmlega sama hátt, á sama tíma dags, í eins skýli og međ sams konar hitamćlum allan tímann vćri metaskráin örugglega öđruvísi heldur en hún er - og álitamál önnur (ţau yrđu ţó alltaf einhver). 

Ţađ sem hér fer ađ neđan eru ekki harđkjarnavísindi - meira til gamans gert. Ritstjórinn gćti alveg haldiđ áfram og skrifađ fjölmarga pistla um ţetta mál - sumir ţeirra eru beinlínis ađ biđja um ađ vera skrifađir (og ađrir hafa ţegar veriđ birtir). En ţađ er bara svo margt sem er á biđlistanum. 

Ađ ţessu sinni látum viđ nćgja ađ líta á tvćr myndir (línurit) - nokkuđ óvenjuleg. 

w-blogg300423a

Hér má sjá „aldur“ landshámarkshitameta Íslands. Á lóđrétta ásnum eru ártöl, en lárétti ásinn fer í gegnum áriđ, frá 1. janúar til vinstri til 31. desember til hćgri. Viđ sjáum ađ elstu dćgurmetin hafa haldiđ út allt frá ţví á 19. öld, ţađ elsta sett 1885. Yfir veturinn eru mjög fá hámarksdćgurmet eldri en 1970 - telja má ţau á fingrum beggja handa. Langflest eru ţrautseigu metin í kringum sólstöđurnar - og einnig er mikiđ um gömul met í september. 

Međalártaliđ er 1987. 

w-blogg300423b

Lágmarksdćgurmetamyndin er nokkuđ öđru vísi. Ţar eru mjög gömul met talsver fleiri og auk ţess má sjá ađ mjög fá lágmarksdćgurhitamet hafa veriđ sett á síđari árum - en ţó eru ţau ţarna, einna flest í júní og ágúst. Međalártaliđ er 1968, 19 árum eldra en hámarksmetameđaláriđ. Sýnir ađ meira hefur veriđ um hámarkshitamet á síđari árum heldur en lágmarksmet. Hér er eingöngu miđađ viđ byggđir landsins. Hálendisathuganir voru fáar fyrr en eftir 1995 og ef viđ bćtum ţeim athugunum viđ fjölgar nýlegum lágmarkshitalandsmetum, međaláriđ fćrist frá 1968 til 1978. Sýnir ţetta vel ađ fjölgun stöđva á köldum stöđvum hefur auđvitađ áhrif. 

En minnum aftur á ţađ ađ saga hámarks- og lágmarkshitamćlinga á landinu er ekki einsleit og ađ sum (eđa jafnvel mörg) dćgurmetanna standast varla skođun. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 107
  • Sl. viku: 1491
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1298
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband