Tíu desemberdagar

Meðalhiti fyrstu tíu daga desembermánaðar er +0,2 stig í Reykjavík, +0,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára, en -0,7 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020 og í 12.hlýjasta sæti á öldinni. Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2016, meðalhiti þá +7,1 stig, en  langkaldastir voru þeir 2011, meðalhiti -4,8 stig. Á langa listanum er hiti nú í 82. til 83.sæti (af 145). Á honum er hitinn 2016 í fyrsta sæti, en kaldastir voru þessir sömu dagar árið 1887, meðalhiti þá -7,2 stig. 

Meðalhiti dagana tíu er -2,6 stig á Akureyri, -2,2 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020, en -0,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti raðast nokkuð misjafnt eftir landshlutum. Hlýjast að tiltölu hefur verið á Suðurlandi, þar er hitinn í 11.hlýjasta sæti á öldinni, en kaldast hefur verið á Austurlandi að Glettingi, hiti þar í næstkaldasta sæti (19.) aldarinnar.

Á einstökum veðurstöðvum hefur verið hlýjast á Hjarðarlandi í Biskupstungum, hiti +1,0 stig ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast að tiltölu hefur verið á Brú á Jökuldal þar sem hiti er -2,9 stigum neðan meðallags tíu síðustu ára.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 26,0 mm - og er það í meðallagi. Á Akureyri hefur hún hins vegar mælst 88,1 mm og er það meir en þrefalt meðallag.
Sólskinsstundir hafa mælst 2,8 í Reykjavík - um helmingur meðallags.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 402
  • Sl. viku: 1581
  • Frá upphafi: 2350208

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1454
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband